Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Side 16
Sjö leiðir til að lækka Skattinn
16 Neytendur 18. febrúar 2013 Mánudagur
Útsölurnar gengu misvel
n Áfengissala dróst saman n Skóverslun jókst
Ú
tsölurnar í janúar gengu mis-
vel samkvæmt nýjum upp-
lýsingum frá Rannsóknar-
setri verslunarinnar. Velta í
skóverslun jókst um fjórðung að
raunvirði miðað við janúar í fyrra,
enda lækkaði verð á skóm um ell-
efu prósent á því tímabili. Velta í
fataverslun dróst hins vegar saman
um 1,3 prósent að raunvirði. Fata-
verslun virðist eiga erfitt um vik og
hefur ekki náð sér á strik allt frá
hruni. Verð á fötum hefur hækkað
um 1,8 prósent frá því í fyrra.
Á árinu hefur áfengissala dreg-
ist saman í skugga verðhækkunar
ásamt því að verð á matvöru hefur
aukist og kaupin líka. Sala á hús-
gögnum jókst þó nokkuð þegar um
sérverslanir er að ræða en einnig
voru keypt fleiri húsgögn almennt.
Sala áfengis dróst saman í janú-
ar um 0,8 prósent miðað við sama
tíma í fyrra í föstu verðlagi. En verð
á áfengi hækkaði um 2,2 prósent.
Velta sérverslana með rúm jókst
um 57,4 prósent á föstu verðlagi en
sé litið til húsgagnaverslana jókst
hún um 4,9 prósent. Verð á hús-
gögnum var 5,2 prósentum hærra
í janúar síðastliðnum en í fyrra. Þá
jókst velta í dagvöruverslun. Kaup
á mat- og hreinlætisvöru jukust
um 1,2 prósent á föstu verðlagi en
verð á slíkum vörum hefur hækkað
um fimm prósent á árinu.
simon@dv.is
Algengt verð 264,4 kr. 265,7 kr.
Algengt verð 264,2 kr. 265,4 kr.
Höfuðborgarsvæðið 264,1 kr. 265,3 kr.
Algengt verð 264,4 kr. 265,6 kr.
Algengt verð 266,9 kr. 265,9 kr.
Melabraut 264,2 kr. 265,4 kr.
Eldsneytisverð 17. feb.
BenSín DíSilolía
N
ú þegar skattbyrðin er þung
skiptir öllu að nýta sér allar
ívilnanir sem í boði eru.
Þær eru nokkrar. Með ráð-
kænsku getur hinn almenni
launþegi skaffað sér umtalsverðar
undanþágur, sumar er auðvelt að
verða sér úti um, en aðrar erfiðara.
Í öllum tilvikum þarf eitthvað að
semja við vinnuveitanda.
Auðveldast er að verða sér úti um
undanþágur vegna líkamsræktar og
vistvænna samgönguleiða. Aðrar
undanþágur sem launþegi getur nýtt
sér eru vegna sérstakra aðstæðna,
svo sem ef viðkomandi á barn eða
hefur orðið fyrir umtalsverðu eigna-
tjóni. Þá er einnig hægt að fá greidda
dagpeninga skattfrjálst frá launveit-
andanaum farir þú í utanlandsferð
eða eitthvert út á land í vinnutengda
ferð.
Hlunnindi ekki skattfrjáls
Samkvæmt ríkisskattstjóra eru all-
ar tekjur sem metnar verða til fjár
skattskyldar. Slíkt hið sama á við um
öll gæði hvort sem það er fatnaður,
húsnæði, fæði, fríðindi, greiðslur í
vörum eða afurðum eða gjafir. Um-
ráð yfir bílum eru skattskyld hlunn-
indi en líkt og rakið er hér til hliðar
borgar það sig samt að láta fyrirtækið
kaupa bílinn.
Til hlunninda teljast allar gjafir,
að undanskildum verðminni tæki-
færisgjöfum, öll fæða sem veitt er
og einnig húsnæði sem vinnuveit-
andinn veitir. Í þeim dæmum sem
hér eru tekin er notast við meðaltals-
laun á Íslandi sem eru samkvæmt
Hagstofunni 400 þúsund krón-
ur.
Fyrirtækjabíll
Fyrir eldri bíl, sem
tekinn var í notk-
un 2007 eða fyrr,
eru skattskyldar
tekjur 18 prósent af
andvirði bílsins. Greiði starfsmað-
urinn sjálfur rekstrarkostnað bíls-
ins, eldsneytiskostnað og kostnað
vegna smurningar og þess háttar,
lækkar þetta hlutfall niður í tólf pró-
sent. Segjum sem svo að launþegi
fái til afnota nýjan Volkswagen Polo.
Þá þarf hann að lista 26 prósent – 20
ef hann greiðir rekstrarkostnað – af
kaupverði bílsins sem tekjur.
Það þýðir að árlega þarf að lista
510 þúsund krónur sem tekjur ef
launþeginn greiðir bensínkostnað,
og því þarf að greiða tæplega 200
þúsund krónur í skatt, sé gert ráð fyr-
ir engum persónuafslætti. Þetta þýð-
ir rúmlega 16.500 krónur mánaðar-
lega í skatt fyrir afnot af bílnum.
En hér kemur tækifærið til
ívilnunar. Segjum sem svo að fyrir-
tækið krefjist þess að þú greiðir raun-
ar bílinn, sem er sjálfsögð krafa, í
staðinn fyrir að gefa þér hann. Ger-
um þá ráð fyrir því að þú greiðir fyrir-
tækinu 342 þúsund krónur árlega
fyrir bílinn, sem þýðir að hann verð-
ur fullgreiddur eftir átta ár ásamt því
að þú greiðir bifreiðagjöld. Þetta get-
ur einfaldlega verið dregið frá laun-
um.
Sé þetta fyrirkomulagið máttu
tefla fram því sem þú greiðir fyrir
afnot af bílnum gegn hlunninda-
upphæðinni hér að ofan. Í staðinn
fyrir að greiða 16.500 krónur í skatt
mánaðarlega greiðir þú 5.166 krón-
ur, ásamt því náttúrulega að fyrir-
tækið dregur rúmlega 26.500 krón-
ur mánaðarlega af launum þínum.
Þetta þýðir að þú greiðir raunar 496
þúsund krónur af kaupverði bílsins –
sem er 2.550 þúsund – í skatt. Berum
þetta saman við hefðbundnu leiðina
– að kaupa bílinn eftir útgreidd laun.
Hafir þú 400 þúsund á mánuði má
gera ráð fyrir því að þú gætir greitt
bílinn að fullu eftir rúma sex mánuði
ef þú eyðir hverri krónu í bílinn. Það
þýðir að þú hefur greitt 670 þús-
und krónur í skatt, með því að nýta
þér sex mánuði af persónu afslætti.
Munurinn á þessum tveimur er 174
þúsund krónur og því er bersýni-
lega hagstæðast að fá fyrirtækið til
þess að kaupa bílinn. Hægt væri að
gera dæmið enn hagstæðara með
því að láta fyrirtækið draga kostnað
af rekstri bílsins af launum þínum –
svo sem bifreiðagjöld. Ef við einföld-
um íslenskt skattkerfi allverulega og
segjum að þú greiðir jafnan þriðjung
launa þinna í skatt getum við sagt
að þessi sparnaður sé ígildi þess að
fá 522 þúsund krónur undanþegnar
skatti.
Undanþága: 522 þúsund kr. *
*Samkvæmt gefnum forsendum.
Samgöngur
Gakktu eða hjól-
aðu í vinnuna og
gerðu samning
um það við vinnu-
veitandann. Laun-
greiðandi má borga
sjö þúsund krónur skattfrjálst vegna
samgöngukostnaðar starfsmanns,
n Svona færð þú milljón króna ívilnun n Nokkrar einfaldar leiðir geta skipt sköpum n Passaðu samt að fylgja lögum og reglum
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
Útsölur Útsölurnar í janúar gengu misvel ef miðað er við tölur frá því í fyrra. Skóverslun jókst
um 25 prósent enda hefur verðið lækkað um ellefu prósent. Fataverslun átti hins vegar erfiðara
uppdráttar en hún hefur ekki náð sér á strik eftir hrun. Veltan dróst saman um 1,3 prósent.
Mesta verð-
hækkunin
í Iceland
Matvöruverð í versluninni Iceland
hefur hækkað um ríflega tíu pró-
sent frá því í september í fyrra.
Þetta kom fram í verðkönnun ASÍ
á dögunum. Mesta verðhækkunin
varð í Iceland en matarkarfan
hækkaði um álíka mikið í Krón-
unni – um níu prósent. Í verslun-
inni Víði hefur heildarverð vöru-
körfunnar hækkað um 1 prósent
síðan í haust, í Nótatúni og Sam-
kaupsverslunum nemur hækkun-
in 2–3 prósentum. Í Nettó hækkaði
verð matarkörfunnar um 2,8 pró-
sent. Þess skal getið að það er ekki
um samanburð á verðlagi að ræða
heldur einungis verðlagsþróun
innan ákveðinna verslana.
„Fráleitt“
„Það er fráleitt að Neytenda-
samtökin myndu svara selj-
endum á þennan hátt og því er
vísað alfarið á bug,“ segir Þuríður
Hjartardóttir hjá samtökunum.
Tilefnið er last sem birtist á neyt-
andasíðum DV þann 6. febrúar
síðastliðinn. Þar var greint frá
kvörtun frá viðskiptavini Vefn-
aðarvöruverslunarinnar Virku
sem sagðist hafa verið óánægður
með vöru sem fékkst þar. Svörin
sem hafi fengist frá versluninni
hafi verið að enginn hafi kvartað
áður vegna sömu vöru og sagð-
ist verslunin hafa talað við Neyt-
endasamtökin.
„Í samtali við starfsmann
Virku kom skýrt fram að í gegn-
um síma er ekki hægt að segja af
eða á um hvort varan sé gölluð,
hlutlausir fagmenn yrðu að meta
það,“ segir Þuríður og bendir
neytendum á að leita sjálfir til
samtakanna í svona málum.
„Geta valdið
heimsfaraldri“
Hrossahræ með dýralyfinu phenyl-
butazone voru notuð til manneldis
í Bretlandi og Frakklandi. Þetta
kemur fram í könnunum breska
matvæla-
eftirlitsins en
lyfið er hættu-
legt inntöku
fyrir menn.
Breska blaðið
Guardian
greinir frá því
að 2–5 prósent
sýna hafi sýnt
að lyfið væri í hrossakjöti sam-
kvæmt eftirliti í Evrópu á árunum
2007–2011.
Franska dreifingarfyrirtæk-
ið Comigel er nú til rannsóknar
vegna málsins þar sem það dreifði
kjötinu. Vilhjálmur Ari Arason
læknir er harðorður í pistli sínum
um málið: „Þeir vissu um glæpinn
strax í haust, en héldu honum
leyndum fram til dagsins í dag. Á
sama tíma og milljónir manna í
Evrópu allri gæddu sér á ógeðinu.“
Vilhjálmur segir það mikilvægt
að þekkja uppruna þess matar sem
við borðum enda getur hrossakjöt
sem inniheldur lyfið hæglega ratað
til Íslands.