Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Síða 17
Sjö leiðir til að lækka Skattinn Neytendur 17Mánudagur 18. febrúar 2013 n Svona færð þú milljón króna ívilnun n Nokkrar einfaldar leiðir geta skipt sköpum n Passaðu samt að fylgja lögum og reglum svo lengi sem ferðamátinn er vist- vænn. Þetta má vera vegna reiðhjóls sem notað er til ferða í vinnuna eða kostnaðar við strætó. Einnig getur starfsmaðurinn gengið í vinnuna og fengið samgöngustyrk. Ekki er greitt fyrir bíl eða önnur vélknúin ökutæki. Undanþegin fjárhæð getur aldrei farið yfir 7.000 krónur á mánuði þótt greitt sé fyrir fleiri en einn ferðamáta. Skriflegur samningur þarf að vera á milli launþega og laungreiðenda um notkun vistvænna samgangna svo þennan frádrátt megi gera. Undanþága: 84 þúsund krónur á ári. Líkamsrækt Heilsurækt er mikilvæg en einnig skattfrjáls. Laungreiðandi getur greitt fyrir íþróttaiðkun starfsmanns. Ekk- ert er því til fyrirstöðu að viðkomandi hljóti þá lægri laun í staðinn. Sum stéttar- félög gera þetta líka. Slíkar greiðslur eru undanþegnar skatti, allt upp að 50 þús- und krónum á ári. Skil- yrði er að starfsmaður leggi fram fullgilda og óvefengjanlega reikn- inga fyrir greiðslu. Átt er við greiðslu á aðgangi að líkamsræktarstöðvum, sundlaugum, skíðasvæðum, æfinga- gjöldum í íþróttasali og félagsgjöld- um í golfklúbba, en jafnframt vegna þátttökugjalda vegna annarrar hreyf- ingar sem stunduð er reglulega. Að sama skapi má draga frá kostnað vegna heilsuræktar, svo sem jóga. Undanþága: 50 þúsund krónur á ári. Lífeyrir Frá skattskyldum tekj- um má draga ið- gjald í lífeyrissjóð. Hámarksfrádráttur er 4 prósent af ið- gjaldsstofni, það er, stofni skattskyldra launa og hlunninda. Einnig má færa til frádráttar allt að 2 prósentum í viðbót vegna viðbóta- lífeyrissparnaðar. Skilyrði frádráttar er í báðum tilvikum að iðgjöld séu greidd reglulega. Sömu reglur gilda um sjálfstæða atvinnurekendur og launþega, heimilt er að halda ið- gjaldinu utan staðgreiðslu. Þetta er þó ekkert örlæti af hálfu ríkisins enda greiðir þú skatt af lífeyrinum þegar hann verður greiddur út aftur. Undanþága: 288 þúsund krónur á ári.* *Greiða þarf skatt af greiðslu elli- lífeyris. Dagpeningar Ef þú ert að fara í vinnutengda ferð getur þú fengið dagpeninga og þeir eru skattfrjáls- ir. Þegar starfsmaður fer í vinnutengda ferð utan vinnutíma má greiða honum dagpeninga skatt- frjálst. Þetta á við hvort sem ferðin er innanlands eða utanlands. Þessi fjár- hæð getur numið allt að 22 þúsund krónum á dag innanlands sé greitt fyrir gistingu og fæði. Jafnvel þótt að um sex tíma ferðalag sé að ræða – rúmur akstur til Akureyrar – getur þú látið greiða þér tæplega fimm þús- und krónur í dagpeninga. Dagpeningar eru nokkuð hærri fyrir utanlandsferðir en mismunandi eftir áfangastað. Starfsmaðurinn þarf að taka kvittanir til þess að geta sýnt fram á útlögð gjöld í slíkum ferðum. Frádrátturinn er einnig háður því að í bókhaldi starfsmanns og vinnuveit- anda séu gögn um tilefni ferðar og fjölda dvalardaga og upphæð dag- peninga. Undanþága: Allt að 22 þúsund krónur daglega innanlands. Framfærsla ungmennis Framfærandi sem hefur á sínu framfæri ung- menni sem er í námi getur átt rétt á lækkun. Með námi í þessu sambandi er átt við nám sem ekki veitir rétt til námslána. Þá er fyrst og fremst átt við ungmenni á aldrinum 16–21 árs. Há- mark ívilnunar var í fyrra 317 þúsund krónur fyrir árið en þá var gert ráð fyrir því að ungmennið hefði engar tekjur. Undanþága: Allt að 317 þúsund krónur á ári. Verulegt eignatjón Hafi einstaklingur orðið fyrir veru- legu eignatjóni sem ekki fékkst bætt er hægt að sækja um ívilnun vegna þessa fyrir árið. Slíkt hið sama á við vegna tapaðra krafna í þrotabú. Undanþága: Breytileg upphæð. Endurbætur á húsinu Það er kjörið að ráðast í endurbæt- ur í ár til þess að spara skattkostn- að. Átakið „Allir vinna“ verður í gildi út árið en í því felst að eigend- ur húsnæðis sem ekki er notað til atvinnu geta fengið endurgreidd- an allan virðisaukaskatt sem þeir greiða af vinnu iðnaðar- og verka- manna vegna nýbygginga, endur- bóta og viðhalds. Í janúar á næsta ári fellur endurgreiðsluhlutfallið niður í 60 prósent en hverfur fyrir frístunda- heimili. Endurgreiðslan er háð fram- lagningu fullgildra reikninga frá selj- anda þjónustunnar. Eigendum íbúðarhúsnæðis og frí- stundahúsnæðis er endurgreiddur sá virðisaukaskattur sem þeir greiða af vinnu iðnaðar- og verkamanna á byggingarstað en ekki er endur- greiddur virðisaukaskattur af efni eða vinnu stjórnenda farandvinnu- véla og vinnuvéla. Undanþága: 25,5% af kostnaði. Ef ég væri fyrirtæki … S kráð hlutafélög og einka- hlutafélög greiða 20 pró- sent tekjuskatt. Arðgreiðsl- ur úr slíku félagi teljast sem fjármagnstekjuskattur og því þarf að greiða 20 prósent skatt af þeim. Aðili í sjálfstæðum atvinnurekstri myndi því greiða 36 prósent skatt allt í allt ef gert er ráð fyrir því að viðkomandi myndi greiða sér arð sem nemur hagnaði fyrirtækis- ins – þá er tekið mið af greiðslu tekjuskatts. Þetta er þó með þeim fyrirvara að arðgreiðslan væri minna en einn fimmti af eigin fé fyrirtækisins, því allar arðgreiðsl- ur sem fara yfir það hlutfall bera 50 prósent skatt. Hér er ekki tekið inn í reikn- inginn að fyrirtæki mega tefla fram rekstarkostnaði gegn rekstrar tekjum, svo þau þurfa ekki að borga skatt af útgjöld- um sínum líkt og hefðbundnir launþegar heldur einungis hagn- aði. Félög draga rekstrarkostnað frá skattstofni sínum, rekstrar- kostnaður er þau gjöld sem eiga á árinu að ganga til að afla tekn- anna, tryggja þær og halda þeim við. Innifalið í þessu er gjald sem manni ber að reikna sér fyrir hvers konar vinnu, starf eða þjónustu. Því er skattaumhverfi fyrirtækja strax hagkvæmara en launþega. En það er talsvert flóknara að reka fyrirtæki og það er dýrt að stofna það – stofnun einkahluta- félags kostar 130 þúsund krónur og stofnun hlutafélags kostar 265 þúsund. Fleiri gjöld eru á bak við stofnun fyrirtækis svo sem skrán- ingargjald hjá sýslumanni sem er fimm þúsund krónur. Þar að auki þarf fyrirtæki að sjá til þess að borga virðisaukaskatt af seldri þjónustu ásamt því að það þarf að greiða útvarpsgjald. En stund- um borgar það sig tvímælalaust að stofna félag. Bílaverkstæði Varahlutaverslun Smurstöð Dekkjaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa www.bilaattan.is Allt á einum stað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.