Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Qupperneq 18
18 Lífsstíll 18. febrúar 2013 Mánudagur G uðbjörg Ragnarsdóttir er Íslandsmeistari kvenna í frisbígolfi, folfi, árið 2012, en hún segist vonast til þess að fá fleiri stelpur til að stunda þetta skemmtilega sport. Folf er með aðstöðu um allt land og fer þeim ört fjölgandi sem stunda þetta skemmtilega sport. DV hitti Guðbjörgu á dögunum og fékk hana til að fræða okkur um þessa íþrótt nánar. Hvað er Folf? „Folf eða frisbígolf eins og það heitir er íþrótt sem er spiluð eins og golf, en í stað kylfa og bolta not­ um við frisbídiska og maður kastar ofan í körfu en ekki holur. Gild­ ir það sama og í golfi að reynt sé að klára hverja braut í sem fæstum köstum. Frisbídiski er kastað frá teig í átt að körfu. Og valið á disk­ um fer eftir lengd á braut og veður­ fari. En oftast byrjar maður að kasta „ driver“, þegar að honum kemur setur maður niður lítinn frisbídisk sem er oftast kallaður mini eða „marker“ og má maður þá taka „dri­ verinn“ upp og kasta aftur. Annað­ hvort með sama diski eða skipta um disk. Það fer alveg eftir hvort þú sért nálægt körfunni eða dálítið frá henni. Ef svo er þá er „midrange“­ diskurinn notaður sem er eins kon­ ar miðjudiskur, en honum kastar þú alveg eins og hinum diskunum í átt að körfunni. Þegar þú kemur að körfunni er best að notað „putt­ er“­diskinn . Þá er bara málið að koma pútternum ofan í körfuna og þá er brautin búin, köst talin og skráð á „score“­ kort. En brautirnar eru mismunandi með mismiklum hindrunum sem geta verið hólar, hæðir, tré, ljósastaurar, nú eða rok. Þegar fyrstu brautinni er lokið þá er farið yfir á næstu og svo koll af kolli þangað til að allar brautirnar eru kláraðar. Þá er talið saman skorið og maður getur þá alltaf séð hvern­ ig maður stendur sig hverju sinni,“ segir Guðbjörg. Féll fyrir þeim sem stunduðu íþróttina og útiverunni Af hverju byrjaðir þú að spila þessa íþrótt? „Ég kynntist frisbígolfi í Dan­ mörku fyrir um 10 árum. Ég féll gjör­ samlega fyrir íþróttinni um leið, þó að við spiluðum fyrst með frisbí­ diskum sem voru vægast sagt al­ gjört drasl. Mjög fljótlega kynntumst við fleirum sem spiluðu leikinn og áður en ég vissi af var ég búin að skrá mig á eitt stærsta mótið í Danmörku á þeim tíma – með aðeins tveggja vikna reynslu í íþróttinni, en sé alls ekkert eftir því, því þetta var frábær upplifun og fékk ég að spila með bestu spilurum á Norðurlöndunum. Með því að spila með öðrum sem eru betri þá lærir maður nefnilega alveg heilmikið. Það var ekki bara útiver­ an og diskarnir sem ég féll fyrir held­ ur einnig fólkið. Allir voru eitthvað svo jákvæðir og klöppuðu ef maður átti ágætis skot, sem varð til þess að maður varð stoltur af sínu spili. Jafn­ vel þeir bestu gáfu manni hrós, sem sýndi mér að maður var alveg vel­ kominn þó eitthvað hafi vantað upp á kunnáttuna.“ Þetta er fjölskylduíþrótt „Ég flutti svo til Íslands 2004 og var auðvitað búin að kanna aðstæður; hvort þetta væri ekki til hér og var ég heldur betur ánægð með að finna einn völl. Síðan þá hefur mik­ ið vatn runnið til sjávar og strák­ arnir mínir hafa unnið frábært starf með að koma íþróttinni á framfæri, byggja velli og halda utan um þetta allt saman. Ég er mjög ánægð með þróunina hér á landi þó að það séu ekki margar konur í folfi, en ég reyni yfirleitt að koma því á framfæri hvar og hvenær sem er. Einnig er barna­ flokkurinn lítill en vonandi þegar konurnar fara að mæta meira á völl­ inn þá taka þær börnin með sér. Því eins og ég segi þá kalla ég þetta fjöl­ skylduíþrótt,“ segir Guðbjörg. Frisbígolfið kom til Íslands um árið 2000 „Þessi íþrótt kemur frá Bandaríkj­ unum og var byrjað að spila þar um 1960. Hefur hún þróast mikið og er núna víða leikin um heim allan þar sem fólk æfir og keppir allt árið. Núna í fyrsta skiptið á að byrja að sjónvarpa frá mótum í Bandaríkj­ unum á þessu ári. Sem er stórt skref fyrir íþróttina,“ segir hún aðspurð um uppruna frisbígolfs. Hvar er aðstaða til að spila? „Nýjasti völlurinn er á Klambra­ túni, sem er níu holu völlur, en hann hefur aldeilis hjálpað til við fjölgun þátttakenda í sportinu. Mjög flott og skemmtileg aðstaða. Stærsti völlur­ inn, sá sem fyrst var settur upp og er jafnframt eini völlurinn sem er 18 holu völlur, er í Gufunesi. Þar er alls konar aðstaða, leiktæki og grill­ hús ef maður vill gera meira úr ferð sinni þangað. Einnig eru níu holu vellir á Úlf­ ljótsvatni og á Akureyri. Svo eru einhver vísir að völlum til dæmis á Tálknafirði, Egilsstöðum, Akranesi, Fossatúni, Hólavatni í Eyjafirði, í Vatnaskógi og Möðrudalsöræfum.“ Kostar eitthvað að vera með? Nei, það kostar í raun ekkert að vera með. En við mælum samt með því að maður hafi góða diska sem eru notaðir í þessari íþrótt, en þeir eru ekki dýrir. Einnig erum við með félag sem heitir Frisbígolfsamband Íslands og greiðir maður þá árs­ gjald, en þá er ódýrara að taka þátt á mótum. Geta allir verið með eða er aldurstakmark? Já, þetta er fjölskylduíþrótt, en ég myndi samt tala um börn frá um sex ára aldri, því yngri börn eiga kannski verra með að halda einbeitingunni. En þetta er auðvelt og skemmtilegt, en eldri borgarar hafa einnig próf­ að frisbígolf og voru mjög ánægðir með íþróttina.“ Allir velkomnir og geta fengið diska að láni Keppið þið í þessu áhugaverða sporti? Já, það eru haldnar keppnir allt árið, reyndar færri að vetri til en Ára­ mótið er orðið árlegur viðburður, en það er haldið í fyrstu viku janúar­ mánaðar, alveg sama hvernig viðr­ ar. Á sumrin eru hins vegar fleiri mót. Þar má nefna Mánaðamótin, sem eru minni mót, Úlli Ljóti og Ace Race. Stærsta mótið á árinu er svo Ís­ landsmeistaramótið sem hefur ver­ ið árlegur viðburður allavega síðan ég flutti til landsins og má þá nefna að ég er Íslandsmeistari kvenna árið 2012. Á mánudögum höfum við haft æfingar og öllum er velkomið að vera með, einnig er hægt að fá lánaða fris­ bídiska á meðan æfingu stendur. Ef um hópa er að ræða mæli ég með að haft sé samband á folf@folf.is“ Stærð og aldur skiptir ekki máli „Þetta er fyrir alla. Konur, karla, feita, mjóa, unga og aldraða. Þetta er auðveld íþrótt sem er góð hreyf­ ing, skemmtilegur félagsskapur, eykur heilastarfssemi og, eins og við kölluðum það síðasta sumar, forvörn, því unglingar sáust mikið á vellinum og vorum við auðvitað ánægð með það. Ætli við séum ekki svona fimm konur sem spilum frisbígolf að einhverju ráði. En við vitum af nokkrum sem hafa verið að prófa þá með kærasta sem æfir frisbígolf eða með hópi sem kem­ ur að prófa. En vona ég að kvenna­ hópurinn stækki því það er bara svo skemmtilegt að spila með okk­ ur,“ segir Guðbjörg að lokum. n iris@dv.is Fjölskyldusport sem kostar lítið n Konur eru hvattar til að spila folf í meira mæli n Auðveld og góð hreyfing fyrir alla Folfvellir Það má finna marga glæsilega velli víðsvegar um landið: Gufunes Í Gufunesi er eini 18 holu völlurinn og er hann fjölbreyttur og krefjandi þar sem finna má lengstu folfbraut landsins. Hamravöllur Á Akureyri er þessi níu holu völlur sem liggur fyrir ofan tjaldsvæðið að Hömrum. Völlurinn reynir töluvert á hæfni spilara. Fossatún Á tjaldsvæðinu á Fossatúni við Grímsá í Borgarfirði er þessi níu holu púttvöllur. Hægt er að fá lánaða diska í þjónustuhúsinu á Fossatúni. Í hjarta höfuð- borgarinnar Búið er að setja upp glæsilegan níu holu völl á Klambratúni og er umhverfið á þar kjörið fyrir frisbí­ golf, há tré og gróður sem búa til skemmtilegar aðstæður til að spila folf. „Þetta er fyrir alla. Konur, karla, feita, mjóa, unga og aldraða. Þetta er auðveld íþrótt sem er góð hreyfing. Þrír forfallnir folfarar Hér eru þau Guðbjörg Ragnars­ dóttir, Ágúst Bent Sigberts­ son, betur þekktur sem rapparinn Bent og Steindi jr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.