Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Page 20
20 Sport 18. febrúar 2013 Mánudagur Vorhreingerning á Anfield n Brendan Rodgers hyggst henda fjölda leikmanna á útsölu strax eftir leiktíðina S vo virðist sem nýr þjálfari hafi ekki verið sú töfralausn sem vonast var til hjá Liverpool. Staðhæft er að Brendan Rod­ gers ætli sér að moka út leikmönn­ um liðsins og það á útsölu ef ekki vill betur til í því skyni að byggja liðið upp að nýju. Þeir leikmenn sem heimildar­ maður Sunday Mirror fullyrðir að séu á útleið eftir leiktíðina eru Pepe Reina, Martin Skrtel, Jose En­ rique, Jordan Henderson og Stewart Downing og þá á að reyna að losna við Andy Carroll líka. Sebasti­ an Coates verður látinn fara og í ofanálag er Jamie Carragher að leggja skóna á hilluna og taka til við þjálfun. Jafnvel þó Sunday Mirror sé ekki mest traustvekjandi miðill Bretlands hafa aðrir miðlar líka greint frá svip­ uðum hugmyndum þó ekki hafi þeir nafngreint þá leikmenn sem spark­ ið eiga að fá. Ekki er mikið leyndar­ mál að Liverpool hefur um hríð leit­ að vítt og breitt að góðum markverði og varnarmanni án þess að hafa haft erindi sem erfiði. Aðalatriði er þó að halda helsta markaskorara liðsins, Luis Suarez, sem sagður er vilja eitthvað meira og betra en að vera hjá miðlungsliði. Það hefur Liverpool verið í vetur og hangið um miðja úrvalsdeildina. Vinningshlutfall liðsins í öllum leikjum í öllum keppnum þessa leiktíðina er nokkuð undir helmingi en Rodgers hefur leitt lið sitt til sig­ urs í alls sautján leikjum af 41 alls fyrir síðustu helgi. Þá er alls óvíst hvort liðinu tekst að komast lengra í Evrópudeildinni eftir 2–0 tap á úti­ velli gegn Zenit frá Rússlandi í vik­ unni. Stóra spurningin er þó kannski hversu djúpir vasar eigenda Liver­ pool eru eða öllu frekar hversu miklu þeir tíma að eyða í nýja leik­ menn en þeir eru lítt þekktir fyr­ ir eyðslusemi. Enginn þeirra leik­ manna sem rætt er um að fari munu skila miklu í kassann og þeir leik­ menn sem Liverpool hefur hingað til sýnt áhuga á hafa reynst of dýr­ ir. n albert@dv.is Ó hætt er að fullyrða að það sé óvenju mikil pressa á leikmönnum Arsenal fyrir þriðjudaginn en þá mætir liðið Þýskalandsmeisturum Bayern München í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistara­ deildar Evrópu. Pressan helgast af tvennu; Arsenal hefur aldrei haft bet­ ur samanlagt gegn Bayern í Meist­ aradeildinni og um helgina spilaði liðið sennilega sinn allra versta leik á öllu keppnistímabilinu í 0–1 tapi á heimavelli gegn Blackburn í ensku bikarkeppninni. Eftir þann leik heyrðust niður­ lægjandi hróp og köll frá stuðn­ ingsmönnum sem voru fjarri því að vera sáttir við tap gegn slöku neðri­ deildarfélagi á heimavelli en þau voru ekki einskorðuð við leikmenn liðsins heldur fékk Arsene Wenger þjálfari sinn skammt líka. Bjartsýni af skornum skammti Formaður aðdáendaklúbbs Arsenal á Íslandi, Sigurður Enoksson, er fyrir sitt leyti ekki ýkja bjartsýnn á að Arsenal verði meðal liða í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar jafn­ vel þótt hann telji sína menn geta lagt Þjóðverjana að velli í London. „Mér kæmi ekki á óvart að Arsenal legði Bayern að velli annað kvöld á heimavelli. Ætli við höfum þetta ekki 2–1 og þó ljótt sé að segja þá skýt ég á að við töpum útileiknum 3–0. Við verð­ um slegnir út 4–2 þegar upp er staðið.“ Sigurður tekur undir með þeim er segja að Arsenal hafi leikið sinn allra lakasta leik þetta tímabilið um liðna helga en hann telur sökina liggja meira hjá leikmönnum sjálf­ um en Arsene Wenger þjálfara. „Það er þetta klassíska að það tekur tíma að smíða allt saman. Þarna koma inn þrír nýir leikmenn á meðan van Persie fer annað. Kannski var Wen­ ger að hengja sig of mikið á hann. Svo verður líka að horfa á vörnina. Hann er alltaf að missa fjölda leikmanna og verður alltaf að breyta til þar. Það vantar allan stöðugleika og það vant­ ar bara almennt fleiri menn.“ Aðspurður hvort hann telji að Wenger verði áfram hjá Arsenal eftir leiktíðina segist Sigurður ekki leng­ ur viss um það en telji þó líklegra að hann klári samning sinn sem nær til 2014. Fyrirtaks þriðjudagskvöld Leikur Arsenal og Bayern er annar af tveimur leikjum sem fram fara í Meistaradeildinni annað kvöld. Hins vegar mætast Porto og Malaga sem einnig verður æði spennandi leikur fyrir þá sem með fylgjast. Porto er enn eina liðið sem unnið hefur sig­ ur í leik gegn spútnikliði PSG í Meist­ aradeildinni meðan Malaga rúllaði upp riðli sem í voru lið á borð við Milan og Zenit. n Allt er þá þrennt er n Arsenal og Bayern mæst tvisvar í Meistaradeildinni áður n Arsenal aldrei unnið Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar ritstjorn@dv.is „Mér kæmi ekki á óvart að Arsenal legði Bayern að velliÍ þá gömlu góðu daga Eflaust hugsa margir áhangendur Arsenal til þess tíma þegar Thierry Henry var upp á sitt besta en „bona fide“ markaskorara er Arsenal ekki lengur með í sínum röðum. Pressan eykst Arsenal tapaði með hörmulegum hætti um helgina og að margra mati spilaði liðið sinn lélegasta leik á öllu keppnistímabilinu. Engir aukvisar eru að mæta til leiks á morgun Leikir vikunnar Þriðjudagur 19. febrúar Arsenal – Bayern München Porto – Malaga Miðvikudagur 20. febrúar Milan – Barcelona Galatasaray - Schalke Síðustu leikir n Arsenal og Bayern mættust í riðla- keppni Evrópukeppninnar 2001. 2–2 jafntefli í Englandi en Bæjarar unnu 1–0 heima. n Liðin mættust í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinn 2005. Þá vann Arsenal heimaleikinn 1–0 en tapaði í Þýskalandi 3–1 og féll úr leik. Grípur um andlit sér Reina er einn þeirra leikmanna sem fullyrt er að verði ekki mikið lengur hjá liðinu en út þessa leiktíð. Bale til Real Madrid Líkurnar aukast dag frá degi á því að Gareth Bale yfirgefi Tottenham fyrir grænni grundir á Spáni. Nán­ ar tiltekið hjá Real Madrid en þar hafa menn lengi vel sýnt sóknar­ manninum áhuga án þess þó að gera mikið meira úr því. Bale hefur sem kunnugt er ekki viljað skrifa undir nýjan samning hjá liði sínu og ástæðan kann að vera sú að hann hafi rætt við forseta Real Madrid, Florentino Pérez, um að ganga til liðs við spænsku meistar­ ana. Þar eru ívið meiri peningar í boði og Real er töluvert stærri klúbbur en Tottenham. Svo telur Bale Cristiano Ronaldo mun betri leikmann en Leo Messi. Laudrup í stað Mancini Annar stjóri sem er sagður undir smásjá eigenda er Roberto Mancini hjá Manchester City. Stjórn liðsins er ekki sátt við hans vinnu þessa leiktíðina og víst er að liðið er að spila mun lakari bolta en á síðustu leiktíð. Daninn Michael Laudrup er orðaður við starfið fari svo að þolinmæðina þrjóti gagnvart Ítalanum sem einnig hefur nokkurn veginn úr ótakmörkuðu fjármagni að ráða til að kaupa leikmenn. Bekkur fyrir Beckham David Beckham er ekki í nægilega góðu formi til að vera valinn í lið PSG fyrr en um næstu helgi í fyrsta lagi segir Carlo Ancelotti, þjálfari franska liðsins. Bíða margir þess spenntir að sjá goðið í hinum nýja búningi sínum og ekki síst hvort hann hafi ennþá eitthvað fram að færa í evrópskum bolta sem að flestra mati er skör ofar en bolt­ inn vestanhafs í Bandaríkjunum þar sem Beckham hefur verið undanfarin ár. Fyrsti leikur Beck­ ham verður því líklega í París gegn Marseille.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.