Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Síða 22
22 Menning 18. febrúar 2013 Mánudagur Illa farið með góðan mann É g get ekki sagt að ég hafi far- ið fullur eftirvæntingar á A Good Day To Die Hard þar sem Bruce Willis fer með hlut- verk goðsagnakennda lögreglu- mannsins John McClane í fimmta skiptið. Ástæðan fyrir því að ég fór ekki með neinar væntingar á þessa mynd má nokkurn veginn rekja til kynningarstiklu úr myndinni. Það eina sem hún segir manni er að John McClane er í Rússlandi með syni sínum. Það kom síðan á daginn að myndin er í rauninni ekkert meira en John McClane að hlaupa um eins og óður maður um Rússland þar sem hann skýtur mann og annan, ásamt syni sínum. Sögu- þráður myndarinnar er kjána- legur og mér var virkilega farið að leiðast yfir alltof löngum bíla- eltingaleikjum og skotbardögum þar sem maður var ekki alveg viss með tilgang þeirra því maður fær varla að vita neitt fyrr en myndin er vel hálfnuð. Ég verð að segja að í þessari mynd er virkilega illa farið með hetjuna mína John McClane sem er hvað frægastur fyrir að stöðva óvægna þýska þjófa í Nakatomi- byggingunni sælla minninga í fyrstu Die Hard-myndinni. Þá átti hann í hjónabandserfiðleikum og var bara venjulegur maður sem reyndist hinn allra mesti þegar hættan steðjaði að. Hann einhvern veginn breytti alltaf rétt og var alltaf umhugað um saklausa borgara og heillaði eiginkonu sína upp úr skónum með því að bjarga degin- um. Í þessari mynd hins vegar kýl- ir hann saklausa borgara kalda ef þeir eru fyrir honum. Hann glataði ákveðnum sjarma í mínum huga í þessari mynd. Kannski er þetta samt bara þróunin á honum eftir áratuga störf við löggæslu, hann er einfaldlega kominn með nóg. Hin útskýringin er að þeir sem standa að Die Hard séu hreinlega búnir að gleyma hver John McClane er. Það má hins vegar ekki gleym- ast að það sem gerði fyrstu Die Hard-myndina svona frábæra var illmennið Hans Gruber sem Alan Rickman lék eftirminnilega. Ill- mennið í þessari mynd er hins vegar eitt það allra óeftirminnileg- asta sem sést hefur á hvíta tjaldinu. Væntanlega eru aðstandendur myndarinnar að sjálfsögðu hjart- anlega ósammála þeirri skoðun og benda á hasaratriðin en því miður þá eru þau algjörlega tilfinninga- laus og óeftirminnileg. Ég veit að þessi dómur á ekki eftir að stöðva harða aðdáendur McClane í að sjá hana en ég vara ykkur við. Ég get fúslega viðurkennt að í henni eru fjölmörg atriði sem gleðja aug- að, en það þarf meira til að búa til góða kvikmynd og sérstaklega ef þú ætlar að búa til kvikmynd um hetjuna mína, John McClane. n Bíómynd Birgir Olgeirsson birgir@dv.is A Good Day To Die Hard IMDb 6,4 RottenTomatoes 13% Leikstjóri: John Moore. Aðahlutverk: Bruce Willis og Jai Courtney. I ngibjörg Sigurjónsdóttir og Daníel Björnsson opnuðu saman sýninguna Endurskin frá garði í Listamönnum galleríi við Skúlagötu á laugardaginn þar vinna þau hvort sitt verkið. Daníel lagar síróp úr eplum á meðan Ingi- björg lætur gylla mannhæðar háan stafla af prentuðum pappír með gamalli aðferð. Ingibjörg er nýkomin frá snævi- þakinni New York-borg þegar blaða- maður hefur samband við hana rétt áður en sýningin var opnuð. Þar opnaði Ragnar Kjartansson kærasti hennar sýningu og gerði garðinn frægan. Það er skammt stórra högga á milli og síðan hún kom heim úr ferðalagi sínu hefur hún unnið að verki sínu á sýningunni. „Við Daníel vinnum saman í Kling og Bang galleríi, erum góðir vinir og tölum mjög mikið saman og spáum og spekúlerum saman í myndlist. Við vinnum mjög ólíkt en þetta eru hugmyndaheimar sem eiga samt snertifleti,“ segir Ingibjörg um efnistökin. Lífrænt síróp og flakk á milli vídda „Daníel er að gera skúlptúr og vinnur með lífrænt ferli. Hann býr til nokkurs konar trekt sem í fara sykruð epli og svo ummyndast þau og breytast með tímanum í síróp sem lekur niður trektina. Þetta er hringrásarferli sem verður til í þessari ummyndun. Hann hefur gert þetta áður og geymdi sírópið sem kom út úr þeirri trekt. Hann sýn- ir líka gamla sírópið. Þannig verð- ur þetta ferli keðja í öðru ferli. Þetta verður tímalúppa. Hann vinnur svo- lítið með það hvernig allt vísar fram og til baka í tíma. Ég er að sýna skúlptúr sem er gerður úr miklu magni af prentuð- um pappír. Ég tók ljósmynd af glitr- andi pappírsbút sem ég er búin að eiga í fórum mínum í dálítið mörg ár. Saman brotinn einhvers staðar. Sem ég vissi að einhvern tímann yrðu mikil not fyrir,“ segir hún og hlær. „Hann hefur fengið nafnið Blue Sensor. Hann var upphaflega tví- víður en svo er hann brotinn saman í þrívídd, þá tek ég ljósmynd af hon- um og prenta út. Ég stafla svo pappírnum í mann- hæðarháa súlu og þannig verður pappírinn aftur þrívíður og þetta verður flakk á milli vídda.“ Fíngerð gylling á grófan stafla Þegar Ingibjörg leitaði til prent- smiðja landsins til að gylla staflann, fékk hún þau svör að þekkingin væri ekki lengur til staðar. Hún þyrfti að leita alla leið til Kína til að fá stafl- ann gylltan. Ingibjörg gafst ekki upp og fann á endanum bókbindara sem rifjaði upp handbragðið og hann var enn að verki daginn fyrir opnun. „Hann Sigurþór bókbindari er að setja gyllingu utan á alla súluna. Þetta er úr alvöru gulli og allt hand- gert. Þetta er handbragð sem er að deyja út. Hann hafði ekki gert þetta áratugum saman. Verk sem þessu eru alltaf send til Kína. Þeir í Odda, sögðu mér í gamni að ég gæti drif- ið mig til Kína. Allar prentsmiðjur sem ég hafði samband við sögðu mér að þetta væri ómögulegt en ég hafði upp á Sigurþóri og hann er nú að rifja upp gamla takta. Situr hér með þessar örþunnu viðkvæmu himnur og festir þær á staflann. Þetta er viðkvæm vinna og verður algjör andstæða við grófleika stafl- ans. Maður fær til finningu fyrir þessu mekaníska ferli, prentstaflinn er prentaður á tveimur og hálfum tíma en svo kemur þetta fínlega og handgerða ferli sem stefnir í að vera margra daga ferli.“ Reisulegur gullklumpur og tilfinningablámi Hefur nafnið Blue Censor ein- hverja persónulega þýðingu? „Já, þetta er persónuleg vís- un. Ég var búin að eiga mjög lengi pakka af nemum sem not- aðir eru til að taka hjartalínurit. Þessa nema þurfti ég að nota á tímabili, sem er pínlegt að segja frá, því maður má ekki að nærast á dramatíkinni,“ segir hún og hlær. „Þessir nemar sem eru notaðir til að nema hjartsláttinn og gall- ana í honum voru í poka og ég hélt upp á hann. Pakkaði honum þó alltaf neðst í vinnustofunni af því mér fannst vandræðalegt að vera enn að velta mér upp úr þessu. En svo fattaði ég í síðustu tiltekt að ég var ekkert að geyma nemana held- ur pokann, því á hann var stimpl- að heiti þeirra, Blue Censor. Ég sá fegurðina í heitinu, fannst það geta átt við eitthvað sem nemur tilfinn- ingablámann. Á sama tíma var ég búin að vera að geyma þenn- an bút úr bláa gjafapappírnum. Þá fattaði ég að það var hann sem var Blue Censor, þá hendir maður milliliðnum og dramasögunni og stendur eftir með þetta og já, býr til reisulegan gullklump úr þessu öllu saman,“ segir hún og hlær. n kristjana@dv.is Gullhúðaður tilfinninga- blámi og lífrænt síróp n Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Daníel Björnsson opnuðu Endurskin frá garði Dramasögunni hent „Þá hendir maður milli- liðnum og dramasögunni og stendur eftir með þetta og já, býr til reisu- legan gullklump úr þessu öllu saman,“ segir Ingi- björg og hlær en gamlir hjartsláttarnemar og lítill bútur af gjafapappír eru innblásturinn að verki hennar. MynDIR sIgTRygguR ARI Epli verða að sírópi Daníel setur sykruð epli í trekt og úr verður síróp. Unnsteinn stökk hæð sína Mikið stuð var á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík sem fram fór í Hörpu um helgina. Tónleikar voru haldnir í tveim- ur sölum Hörpu og hluta bíla- kjallarans var breytt í næturklúbb þar sem íslenskir og erlendir plötusnúðar þeyttu skífum. Meðal þeirra sem komu fram voru James Blake, Squarepusher, Alva Noto & Ryuichi Sakamoto, Modeselektor, GusGus, Retro Stef- son, Ólafur Arnalds og Gluteus Maximus. Sónar er alþjóðleg tónlistar- hátíð tileinkuð þróaðri tónlist og nýmiðlun. Unnsteinn Manúel í Retro Stefson vakti athygli með sviðs- framkomu sinni eins og sjá má í þessari myndasyrpu þar sem hann stökk hæð sína meðan hann söng. MynDIR svEInbI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.