Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2013, Qupperneq 2
2 Menningarverðlaun 8.–10. mars 2013 Helgarblað
KviKmyndir
nefndin Vera Sölvadóttir formaður Rut Hermannsdóttir, kvikmyndagerðarkona
og blaðamaður Gaukur Úlfarsson kvikmyndagerðarmaður
nefndin Karen María Jónsdóttir, danslistamaður og formaður dómnefndar Ólöf ing-
ólfsdóttir danslistamaður Margrét Áskelsdóttir, listfræðingur og dansgagnrýnandi
danslist
Óskar Þór
Axelsson
Fyrir vel heppnaða fyrstu mynd leikstjóra.
Óskar sýndi afbragðs hæfileika í vinnu með
leikurum. Umgjörð myndarinnar og stíll
var unninn á fagmannlegan hátt og sagan
myndaði heilsteypt verk. Sterk persónu
sköpun myndaði rétt andrúmsloft og ýtti
undir upplifun áhorfandans á sögunni.
Heba Þórisdóttir
Íslenski förðunarmeistarinn Heba Þórisdóttir hefur búið og starfað í Los Angeles um
áraraðir. Hún er tilnefnd fyrir umsjón með förðun í Óskarsverðlaunakvikmyndinni Django
Unchained eftir Quentin Tarantino. Í gegnum árin hefur hún unnið mikið með Tarantino
og má þar nefna bæði þríleikinn Kill Bill og Inglorious Basterds. Auk þess ber að nefna The
Avengers í leikstjórn Joss Whedon þar sem hún sá um förðun Scarlett Johansson. Einnig
gamanmyndina Bridesmaids og The Curious Case of Benjamin þar sem hún hafði umsjón
með förðunardeild. Ferillinn er langur og Heba er að sögn samstarfsfólks einstakur fag
maður, jarðbundin og drífandi. Gaman er að segja frá að þegar Heba var að stíga sín fyrstu
skref í iðnaðinum í Los Angeles starfaði hún við förðun í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills
90210 og hinum ógleymanlegu Twin Peaks eftir David Lynch.
Hið íslenska „crew“
Tiltekur alla þá sem vinna við kvikmyndagerð á Íslandi. Fólkið á gólfinu alveg til þeirra sem
búa til aðstæður til að kvikmyndaverkefni skapist. Glöggt hefur komið í ljós hvort sem um
ræðir auglýsingagerð, kvikmyndir eða þar sem tökulið kemur saman að þar hefur myndast
gríðarlega sterkur grunnur. Þessi hópur vinnur oftar en ekki við erfiðar aðstæður og hefur
fengið lof frá stærstu framleiðslufyrirtækjum heims sem hér hafa komið og notið liðsinnis
íslensks tökuliðs. Hver hlekkur skiptir máli til að vélin geti virkað.
Heimilda-
myndin
Amma Lo-fi
Orri Jónsson, Kristín Björk
Kristjánsdóttir, ingibjörg Birgisdóttir
Amma Lofi er portrett af Sigríði Níelsdóttur
sem fór að taka upp og gefa út sína eigin
tónlist á áttræðisaldri. Hún fer óhefðbundn
ar leiðir í tónsmíðum sínum og notar sem
dæmi Casiohljómborð í bland við ýmis
eldhúsáhöld, leikföng og hljóð gæludýra.
Myndin var að mestu skotin á súper 8 og
16 mm filmu og nær yfir sjö ára tímabil í
lífi Sigríðar. Einstök heimildamynd þriggja
tónlistarmanna um einstaka konu og lista
mann. Amma Lofi hefur verið sýnd víða um
heim og hlotið frábærar móttökur.
Framestore
Framestore hefur byggt upp sérfræðiþekkingu í tölvubrellum, tölvukvikun og öðrum
framkvæmdum sem tengjast vinnslu kvikmynda. Fyrirtækið hefur byggt upp sérfræði
grunn hér á landi og víðar, hlúð að hugviti, ráðist í nýja tækni, skapað tækifæri til frekari
kvikmyndaframleiðslu og vakið á henni athygli á Íslandi sem og utan landsteinanna.
Lunch Beat Reykjavík
Lunch Beat er tilnefnt fyrir að skapa vettvang fyrir stefnumót almennings við dansinn á
forsendum gleði og skemmtilegrar samveru. Lunch Beat er hádegisdiskó sem Choreography
Reykjavík skipuleggur á mismunandi stöðum einu sinni til tvisvar í mánuði. Þar er boðið upp
á dúndrandi tónlist, ódýran hádegismat og trylltan dans. Lunch Beat tekur dansinn af sínum
háa stalli og gerir hann að aðgengilegu félagslegu afli í hversdags lífinu. Boðskapurinn er
allir geta dansað hvar sem er, hvenær sem er, með hverjum sem er, í hvaða tilgangi sem er.
Litlar og nettar
Berglind Pétursdóttir og Ásrún Magnúsdóttir skipa tvíeykið Litlar og nettar sem tilnefnt
er fyrir dansverkið Dúnn. Tilvist mannsins og sólarinnar er umfjöllunarefni verksins sem er
einstaklega skemmtilegt og hnyttið stefnumót dans, myndlistar og tónlistar. Litlar og nett
ar eru nú í upphafi feril síns sem danshöfundar og dansarar en Dúnn er þeirra fyrsta verk eftir
útskrift úr Listaháskóla Íslands. Höfundarnir eru einstaklega hugmyndaríkir og óhræddir við
að nýta sér hvers konar miðla við útfærslu hugmynda og framsetningu. Þeir skapa furðu
legan heim þar sem óútskýranlegar athafnir virðast hafa fullkominn tilgang. Í verkinu stíga
Litlar og nettar á svið án allra málamiðlana og áhorfandinn hrífst með.
Lovísa Ósk
Gunnarsdóttir
Lovísa er tilnefnd fyrir dans sinn í verkinu Já elsk
an eftir Steinunni Ketilsdóttur. Verkið fjallar um
fjölskyldur og ólíkar leiðir fjölskyldumeðlima til
að takast á við lífið með öllu því sem að höndum
ber. Lovísa er sterkur og fjölhæfur danslista
maður með mikla tæknilega færni og breitt
túlkunarsvið. Í verkinu kemur hún fram sem
þroskaður listamaður sem hefur miklu að miðla.
Meðal minnistæðra atvika í verkinu er atriðið þar
sem hún gengur upp og niður sviðið og til skiptist
setur upp og tekur niður hina félagslegu grímu.
Í öðru atriði keppast aðrir flytjendur verksins
við að halda uppi höfði Lovísu og þar með reisn
fjölskyldunnar. Atriðið er átakamikið og sýnir
Lovísa samdönsurum sínum í verkinu einstakt
traust. Sama traust einkennir einlæga sviðstil
veru Lovísu sem í opnu samtali við áhorfandann
kemst inn fyrir skelina og snertir hjarta hans.
Skýjaborg
Dansverkið Skýjaborg er tilnefnt fyrir að
bjóða ungum börnum upp á hágæða list og
vera þannig mikilvægt innlegg til barnamenn
ingar. Verkið er dansverk fyrir aldurshópinn 6
mánaða til 3 ára og fjallar um tvær sérstakar
veðraverur sem vakna upp á ókunnum stað.
Að verkinu stendur einvala lið listamanna
með danshöfundinn Tinnu Grétars
dóttur fremsta í flokki. Mikill metnaður og
fagmennska einkennir alla þætti verksins
í hvívetna hvort sem um ræðir dansinn,
tónsköpunina eða sjónræna umgjörð. Allar
listgreinarnar unnu gríðarlega vel saman og
náðu að skapa forvitnilegan heim sem heill
aði börn og foreldra frá upphafi til enda.
Já elskan
Tilnefnt er dansverkið Já elskan eftir
Steinunni Ketilsdóttur. Verkið fjallar um
fjölskyldur og ólíkar leiðir fjölskyldumeð
lima til að takast á við lífið með öllu því sem
að höndum ber. Já elskan er samtímadans
verk sem er aðgengilegt án þess að vera
einfalt. Í verkinu er ýmislegt gefið í skyn en
ekkert er sagt berum orðum eða gert of
áberandi. Mikil breidd var í sýningarhópnum
bæði í aldri og bakgrunni, lífleg samvinna
þeirra á milli skein í gegn og var styrkur í
verkinu. Í þessu verki fetar Steinunn nýjar
slóðir sem danshöfundur bæði í efnisvali
og allri útfærslu og kemur fram með sterka
höfundarrödd.