Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2013, Side 4
4 Menningarverðlaun 8.–10. mars 2013 Helgarblað
V
erkefnin sem tilnefnd eru
í ár í flokki arkitektúrs eru
þrjú talsins. Þau eiga það
sameiginlegt að vera öll
unnin af litlum og tiltölu-
lega ungum arkitektastofum en það
er algjör tilviljun. Það er einnig til-
viljun að í tilnefndum byggingum er
efnisnotkun um margt svipuð. Ein-
kennandi notkun náttúrulegra efna
s.s. sjónsteypu og viðarklæðninga,
jafnvel úr íslenskum við, sem gefur
þeim einhvern veginn tímalausan,
hlýjan og varanlegan blæ.
Þrátt fyrir efnahagsþrengingar
finnast ennþá dæmi um nýjan,
framúrskarandi arkitektúr á Íslandi,
sem flytur landamæri, skapar sam-
tal, en umfram allt auðmjúkan arki-
tektúr. Hér erum við ekki að tala
um stór hús eða hallir, þvert á móti
því tilnefningarnar í ár eru bensín-
stöð við þjóðveginn, leikskóli í þétt-
byggðu íbúðahverfi og kaffihús í
lystigarði. Fjöldi verkefna sem tekin
voru til greina var þónokkur en það
er synd að meðal þeirra voru nokk-
ur hús þar sem eigendur höfnuðu
umfjöllun. Því miður fer samfélagið
þarna á mis við góð dæmi um vel-
heppnaðan arkitektúr en við von-
um að breyting verði á til framtíðar,
þannig að vönduð hús fái að verða
fyrirmyndir og geti veitt öðrum inn-
blástur.
Með þessum tilnefningum er það
von nefndarmanna að upplifun og
umfjöllun um manngert umhverfi
og arkitektúr færist á sem flest svið
samfélagsins og ekki síst hjá ríki og
sveitarfélögum þar sem arkitektúr
og gæði hans verða í forgrunni.
Dómnefndin telur sig hafa val-
ið af kostgæfni verðuga fulltrúa til
Menningarverðlauna DV í flokki
arkitektúrs.
Arkitektúr
nefndin Helgi Steinar Helgason arkitekt FAÍ formaður Borghildur Sölvey
Sturludóttir arkitekt FAÍ Baldur Ólafur Svavarsson arkitekt FAÍ
Kaffihús í
Lystigarði
Akureyrar
Kaffihúsið er í Lystigarði Akureyrar og hefur
verið á skipulagi garðsins um árabil eða allt
frá stofnun hans fyrir 80 árum. Húsið er reist
á vegum Akureyrarbæjar og er gjöf hans í
tilefni þessa afmælis. Það er vandasamt
verk að koma fyrir nýbyggingu í þessu gróna
umhverfi. Það hefur höfundum verksins þó
tekist vel. Húsið stendur áreynslulaust upp
við aðalstíginn sem liggur í gegnum garðinn,
umkringt gömlum og nýjum gróðri, grasflötum
og útilistaverkum. Byggingin nær góðu samtali
við umhverfi sitt en galdurinn er m.a. fólginn
í þeim góðu hlutföllum sem hún er byggð á,
efnisnotkuninni og gegnsæinu. Sóttur er inn-
blástur úr gömlu timburhúsunum sem standa
fyrir í garðinum með sínum litlu bíslögum.
Byggingarefni eru rammíslensk, sjónsteypa,
báruál og lerkiviður. Það sem vekur óneitan-
lega mesta athygli eru opnir, glerjaðir gaflar
sem brotnir eru upp með gluggapóstum sem
minna á trjástofna. Þeir skapa heild og samspil
milli þess manngerða og þess náttúrulega.
Arkitektar: Kollgáta
Verkkaupi: Akureyrabær