Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2013, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2013, Page 7
Menningarverðlaun 7Helgarblað 8.–10. mars 2013 nefndin Ragnheiður Gyða Jónsdóttir blaðamaður formaður Árni daníel Júlíusson sagnfræðingur Þórhallur eyþórsson málvísindamaður Fræði nefndin Hrafn Jökulsson rithöfundur formaður Þóra Sigríður ingólfsdóttir forstöðumaður Blindrabókasafnsins Þórarinn Baldur Þórarinsson blaðamaður Bókmenntir Gísli, Hallfreður og Olga Sögur úr Vesturheimi Veturinn 1972–1973 dvöldu Hallfreður Örn Eiríksson og Olga María Franz- dóttir á Nýja Íslandi og í byggðum Vestur-Íslendinga í Kanada og Bandaríkj- unum. Þar söfnuðu þau sögum og kvæðum sem fólk hafði sér til skemmt- unar og flutti munnlega inn á segulband þeirra hjóna. Upptökurnar eru varðveittar á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og bjó Gísli Sigurðsson þær til útgáfu. Í formála bendir hann á ógrynni heimilda sem þar er að finna um vesturfarana, aðstæður þeirra í nýju landi, tungumálið og þróun þess, siði, venjur, trú, háttu, kveðskap, sögur, sagnir, menn og málefni, svo nokkuð sé nefnt. Guðrún Sveinbjarnardóttir Reykholt Archaeological investigations at a High Status farm in Western iceland Í bókinni eru kaflar eftir 20 innlenda og erlenda sérfræðinga sem komu að rannsókninni. Fyrstu fornleifarannsóknir voru gerðar á bæjarstæðinu í Reykholti á árunum 1987–1989, og aftur 1997–2003. Rannsóknirnar benda til að búið hafi verið á bænum frá því snemma á 11. öld og fram undir miðja 20. öld. Fyrstu híbýlin voru hefðbundin langhús úr torfi, en á 12. og 13. öld eru stakar timburbyggingar á staðnum, óþekktar annars staðar á Íslandi en líkar byggingum til dæmis í Noregi en samkvæmt rituðum samtímaheimildum voru byggingar í Reykholti einstakar og ólíkar öðrum íslenskum á sama tíma. Einnig virðist korn hafa verið ræktað í Reykholti og þaðan stunduð verslun við útlönd. Glæsileg mannvirkin vitna um mikilvæga stöðu Reykholts á miðöldum. Á svæðinu fundust og skýrar vísbendingar um notkun jarðhita allt frá miðöldum og er það í fyrsta sinn að slíkar minjar finnast á Íslandi. Yfirgripsmikil, nákvæm og einkar fróðleg skýrsla um miklar, þverfaglegar rannsóknir á merkum sögustað á Íslandi. Gunnar Þór Bjarnason Upp með fánann! Baráttan um uppkastið 1908 og sjálfstæðisbarátta Íslendinga Hér er fjallað um sögulegar og örlagaríkar alþingiskosningarnar 1908. Aðalmál kosning- anna var samningur milli Dana og Íslendinga um samband landanna innan danska kon- ungsríkisins, Uppkastið. Hannes Hafstein ráðherra sat ásamt sex öðrum Íslendingum og 13 Dönum í samningsnefndinni og fór um allt land fyrir kosningar til að mæla fyrir samningnum, enda taldi hann um sanngjarna málamiðlun og framfaraspor að ræða. Margir stjórnarandstæðingar studdu Uppkastið, þar á meðal Valtýr Guðmundsson. Andstæðingar Uppkastsins, til dæmis Björn Jónsson ritstjóri og Bjarni Jónsson frá Vogi, fóru mikinn og sökuðu Hannes Haf- stein og aðra stuðningsmenn Uppkastsins um undirlægjuhátt. Varla þarf að hafa fleiri orð um mikilvægi þessa kafla í Íslandssögunni og skírskotunina til nútímans en Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur rekur hana með þeim hætti að allir, jafnt fræði- sem áhugamenn um sögu og samtíð, hafa bæði gagn og gaman af. Jón Ólafsson Appelsínur frá Abkasíu Höfundur segir söguna um Veru Hertzsch og dóttur hennar, afdrif þeirra og örlög í sovéska gúlaginu. Jón Ólafsson heimspekingur fer nákvæmar í sögu hennar en áður hefur verið gert, rekur hana eftir vandfundnum heimildum og minningum kvenna sem sátu í sömu fanga- búðum og mægðurnar en lifðu af. Jón þekkir og kynni Íslendinga af Sovétríkjum Stalíns gjörla af fyrri skrifum sínum og ekki síður uppgjörið við þau kynni en þar er meðal annars að finna ástæður þess að Vera Hertzsch varð þjóðþekkt á Íslandi löngu eftir að hún hvarf í gúlagið. Sérlega áhugaverð mannkynssaga, Sovéts- saga, Íslandssaga og einstaklingssaga í einni og sömu bókinni. Sigurður Reynir Gíslason Kolefnishringrásin Hringrás kolefnis á jörðinni er flókin, og skaðvaldurinn í hringrásinni, koltvíoxíð, er ósýnilegur og lyktarlaus. Sigurður Reynir Gíslason jarðefnafræðingur segir frá hringrás þessari, eins og hún er nú og allt aftur að árdögum. Hringrás kolefnis hér á landi gerir hann og sérstök skil. Áhrifum mannsins á kolefnishringrásina er lýst og mögulegum viðbrögðum við henni. Bókin er nauðsynlegt innlegg í umræðu manna um hnattrænar umhverfisbreytingar af völdum sömu manna. Auður Jónsdóttir Ósjálfrátt Ósjálfrátt er skáldsaga þar sem veruleiki og skáldskapur haldast í hendur. Hér er á ferðinni þroskasaga ungrar konu, Eyju, sem fer óhefðbundnar leiðir í lífinu og gerir upp við fjölskyldu sína og fortíð. Sagt er frá skáldkonu í mótun, þörfinni fyrir að skrifa og hvernig skáld verður til. Hér er á ferðinni einkar áhugaverð og óvenjuleg þroskasaga en hana skreyta og undirstrika margar litríkar persónur. Verkið er allt í senn gáskasaga og harmleikur, fjölskyldusaga og þroskasaga einstaklings. Frásagnarhátturinn er áreynslulaus og hlýr en með þungri undiröldu og endurspeglar ringulreiðina í huga aðalpersón- unnar. Vel samið verk og einkar margbrotið. Jón Gnarr Sjóræninginn Í Sjóræningjanum nýtir Jón Gnarr sér frelsi skáldskaparins til að segja okkur uppvaxtar- sögu, sem hófst með Indjánanum (2006). Hér er sögumaður kominn á unglingsár og tilveran er öll heldur hráslagaleg – í skólanum er hann fórnarlamb hrekkjusvín- anna og meðal fjölskyldunnar er hann eins og geimvera. Hann leitar athvarfs í músík og anarkisma, eignast vini meðal hinna smáðu og finnur sig í pönkinu, sem í kringum 1980 var ávísun á fruss og fyrirlitningu. Þetta eru fyrstu endurminningar alvöru íslensks pönk- ara (þeir voru aldrei margir) en jafnframt frábær lýsing á íslensku samfélagi áttunda áratugarins. Bók sem nístir, kætir, fræðir. Gyrðir Elíasson Suðurglugginn Hér segir frá rithöfundi sem leitar athvarfs á landsbyggðinni til að skrifa skáldsögu. Það reynist þrautin þyngri, enda hefur sögumaður Gyrðis óljósar hugmyndir um persónur sínar og efnivið, svo mjög reyndar að textinn loðir varla við pappírinn. Hér er að sönnu fjallað um glímu skálds við kenjótta sköpunargáfu og um „hlutskipti listamannsins“ en aðrar spurningar og ekki síður áleitnar herja á sögumann í þessari meistaralegu skáldsögu. Margrómuð stílsnilld Gyrðis hefur tæpast risið hærra, en auk þess er Suðurglugginn leiftrandi fyndin, kaldhæðin og skemmtileg skáldsaga, stútfull af visku og hárbeittum athugasemdum um veröld sem við ættum víst öll að taka til endurskoðunar. Rúnar Helgi Vignisson Ást í meinum Ást í meinum geymir fimmtán sögur eftir Rúnar Helga Vignisson, sem er einn snjallasti sagnahöfundur landsins. Mannleg samskipti (eða skortur á þeim) eru hinn rauði þráður í sögum Rúnars Helga, og hann á ótrúlega létt með að draga upp í örfáum orðum persónur sem spretta ljóslifandi upp af síðunum. Þær persónur eru iðulega staddar í einhvers konar öngstræti eða ógöngum, þurfa að takast á við ást og angist, fantasíur og fóbíur, efasemdir og eftirsjá. Rúnar Helgi skrifar einstaklega fallegan stíl, sem iðulega brestur í svellandi húmor, en stílgaldurinn liggur ekki síður í hinu ósagða – því sem lesandinn bætir við þessar eftirminnilegu sögur. Arnaldur Indriðason Reykjavíkurnætur Í Reykjavíkurnóttum hverfur Arnaldur Indriðason með lesendur 40 ár aftur í tímann, og færir okkur nöturlega lýsingu undirheimum Reykjavíkur og lífi og örlögum útigangsfólks. Arnaldur heldur áfram að bæta við púslum í myndina af Erlendi, sem fyrir löngu er orðinn heimilisvinur flestra Íslendinga. Árið 1973 er Erlendur ung umferðarlögga, sem rannsakar upp á eigin spýtur (af mikilli þrákelkni) dauða róna sem drukknaði í mógröf. Reykjavíkurnætur er án efa einhver albesta bók Arnaldar, skrifuð af miklu öryggi og þekkingu svo horfinn heimur lifnar við í höndum höfundar sem fært hefur íslensku spennusöguna upp á nýtt plan. Álfrún Gunn- laugsdóttir Siglingin um síkin Verkið fjallar um eldri konu sem er orðin hornreka í borðstofuhorninu hjá syni sínum í í lífinu sjálfu. Sjónarhornið er hjá aðalpersónunni allan tímann en hún glímir við minnisglöp af einhverju tagi. Stokkið er til og frá í tíma, til æsku hennar, hjúskaparára og fjallað um nútímann en smám saman verður þetta ruglingslegra í takt við þróun sjúkdóms hennar. Lesandinn glímir þannig við sömu tilfinningar og ringulreið og aðalpersónan. Bókin er afar vel stíluð, vel fram sett og skemmtileg. Höfundi tekst fanta vel að leiða lesandann inn í heim gömlu konunnar, skemmta honum og vekja upp óöryggi hans í takt við líf aðalpersónunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.