Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2013, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2013, Blaðsíða 8
8 Menningarverðlaun 8.–10. mars 2013 Helgarblað nefndin Tinni Sveinsson blaðamaður og vefstjóri Vísis, formaður Hörður Kristbjörnsson stofnandi og grafískur hönnuður hjá Döðlum Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir stofnandi og hönnuður hjá Vík Prjónsdóttur Hönnun Reykjavík Letterpress Hildur Sigurðardóttir og Ólöf Birna Garðarsdóttir stofnuðu hönnunarstofuna Reykjavík Letterpress árið 2010. Sérstaða stofunnar er svokölluð letterpress­ prentun sem byggir á aldargamalli aðferð. Hildur og Ólöf stunda prentun af mikilli ástríðu og nota allt frá handknúinni þrykkvél frá árinu 1893 til Heidel­ berg­prentvélar af gamla skólanum. Þær vinna með gamalt handverk sem var á undanhaldi og upphefja það á nútímalegan og skemmtilegan hátt. Þessi prentaðferð krefst natni og alúðar sem skilar sér á fallegan hátt í verkum þeirra. Þessi litla stofa er fersk viðbót í prentiðnaðinn á Íslandi og hafa þær á þessum fáu árum byggt upp dyggan kúnnahóp sem nýtir sér þjónustu þeirra. HönnunarMars Hönnunarmiðstöð hefur staðið fyrir HönnunarMars síðan árið 2009 og fer hátíðin því nú fram í fimmta skipti. HönnunarMars er bæði hátíð almennings og allra þeirra fagaðila sem heyra undir Hönnunarmiðstöð. Hún hefur eflst ár frá ári og svo sannarlega aukið skilning Íslendinga á því hvað hönnun er og hlutverki hennar í samfélaginu. Enda spannar hátíðin vítt svið, allt frá helstu hönnuðum þjóðarinnar til nýútskrifaðra hönnuða sem eru stíga sín fyrstu skref. Fjöldi fólks sækir viðburði hátíðarinnar sem er orðin mikilvægur þáttur í menningarlífi Reykjavíkurborgar. HönnunarMars hefur lagt áherslu á að efla tengsl sín við alþjóðlegt sam­ hengi og má þá helst nefna fyrirlestradaginn DesignTalk og kaupstefnuna DesignMatch sem hafa eflt hátíðina enn frekar og þá sérstaklega fyrir fagfólk. Aðstandendur HönnunarMars hafa unnið af mikilli hugsjón og seiglu og hefur þeim tekist að skapa hátíð sem hefur reynst lyftistöng fyrir íslenska hönnun. ð ævisaga Grafísku hönnuðirnir Anton Kaldal Ágústsson, Gunnar Vilhjálmsson og Steinar Ingi Farestveit rannsökuðu um árabil hver um sig ákveðin tímabil í þróunarsögu bókstafsins ð með tilliti til nútíma leturhönnunar. Þessar rannsóknir liggja til grundvallar einni óvæntustu bók síðasta árs, ævisögunnar um ð, sem sagnfræðingurinn Stefán Pálsson ritaði og tókst að gera að áhuga­ verðri og spennandi lesningu og Crymogea gaf út. Öll umgjörð og framsetning bókarinnar er til fyrirmyndar, þar sem vönduð vinnubrögð og næmni hönnuðanna skilar sér. Bókin er sett fram á aðgengilegan og áhugaverðan hátt og höfðar þannig bæði til almennings og fagfólks og mun eflaust verða notuð sem námsgagn í framtíðinni. Ævisaga ð­sins komst öllum að óvörum á metsölulista fyrir jólin, opnaði umræðu og jók skilning almennings á leturgerð. Andrea Maack Ilmur Andreu Maack er þróaður í samvinnu við franskt ilmvatns­ gerðarfólk út frá myndlistarverkum hennar. Á örfáum árum hefur Andreu og samstarfsfólki hennar tekist að byggja upp sannfærandi vörumerki þar sem hugað er að heildarumgjörð og framsetn­ ingu. Allir þættir framleiðslunnar eru afar vandaðir og unnið með hágæða hráefni. Vörumerkið er nú komið í alþjóðlega dreifingu og hefur tekist að komast inn í virtustu ilmvatnsverslanir Evrópu og víðar. Andreu Maack hefur tekist á áhugaverðan hátt nýta myndlist­ arbakgrunn sinn til að skapa vöru sem nýtur bæði virðingar og vekur áhuga í hinu alþjóðlega samhengi. Ostwald Helgason Hönnunartvíeykið Ostwald Helgason er nú tilnefnt annað árið í röð. Enda hefur árið einkennst af ævintýralegum uppgangi hjá þeim Ingvari Helgasyni og Susanne Ostwald frá því að þau frumsýndu fatalínu sína á tískuvikunni í New York í byrjun árs 2012. Þau leita innblásturs víða og meðal þess sem hafði áhrif á nýjustu línu þeirra eru söngleikurinn Litla hryllingsbúðin og náttúruunnandinn og hönnuðurinn William Morris. Þeim tekst að flétta saman húmor og fágun á skapandi hátt í hönnun sinni og umfram allt að skapa klæðilegan fatnað fyrir alþjóðlegan markað. Ingvar og Susanne hafa ýmist verið kölluð óvæntar stjörnur eða nýliðar ársins af öllum virtustu tískumiðlunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.