Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Blaðsíða 10
N okkrir möguleikar eru til myndunar nýrrar ríkis­ stjórnar þó að ríkisstjórnar­ samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sé líklegasta stjórnarmynstrið. Óvissa ríkir enn um hver fær stjórnar­ myndunarumboðið en Sjálfstæðis­ menn eru stærstir á þingi á meðan Framsóknarmenn unnu stórsigur í kosningunum. Báðir flokkarnir hafa sama þingstyrk. Ljóst er hinsvegar að erfitt verður að ná málefnasam­ leið á milli þessara tveggja flokka. Sigmundur Davíð Gunnlaugs­ son, formaður Framsóknarflokks­ ins, hefur stór loforð að standa við á meðan pólitískt líf Bjarna Bene­ diktssonar, formanns Sjálfstæðis­ flokksins, veltur á því að hann fái for­ sætisráðherrastólinn. Kapphlaup ið um forsætisráðherrastólinn gæti því líka orðið til þess að óvænt stjórnar­ mynstur myndist. Kunnuglegt stjórnarmynstur Sjálfstæðisflokkurinn og Fram­ sóknarflokkurinn hafa í gegnum tíðina nær alltaf unnið saman og frá 1963 til 2009 var það aðeins í 116 daga sem annar hvor flokkurinn var ekki með verkstjórnarvald í ríkis­ stjórn. Það var Starfsstjórn Alþýðu­ flokks. Sjálfstæðismenn og Fram­ sóknarmenn hafa fjórum sinnum á sama tímabili endað með undir fimmtíu prósenta fylgi í kosningum þó aðeins tvisvar áður hafi þeir ekki haft þingmannameirihluta. Flokk­ arnir unnu síðast saman í ríkisstjórn eftir kosningarnar 2003 fram til 2007 en í þeim kosningum ákváðu flokk­ arnir að vinna ekki saman þrátt fyr­ ir að hafa meirihluta þingmanna á bak við sig. Þá höfðu flokkarnir setið saman í ríkisstjórn samfleytt frá árinu 1995 þegar Davíð Odds­ son, þáverandi formaður Sjálfstæð­ isflokksins, og Halldór Ásgrímsson, þáverandi formaður Framsóknar, mynduðu ríkisstjórn. Tveir þriggja flokka möguleikar Allir formenn þeirra stjórnmála­ flokka sem náðu inn á þing hafa verið gagnrýnir á hugmyndir Framsóknarflokksins um skulda­ niðurfellingu og jafnvel afnám verðtryggingarinnar. Flokkurinn hefur ekki lagt fram útfærðar leið­ ir að þeim markmiðum að fella niður stóran hluta verðtryggðra skulda heimilanna. Erlendir fjöl­ miðlar hafa gert þetta að umtals­ efni og talaði blaðamaður breska blaðsins The Independent meðal annars um að vandinn lægi í smá­ atriðunum, eða „The devil is in the detail“ eins og hann orðaði það. Þá er enginn flokkur á þingi jafn af­ gerandi og Framsóknarflokkurinn þegar kemur að loforðum um afnám verðtryggingarinnar. Bæði Bjarni og Sigmundur Davíð hafa talað um að þriggja flokka stjórnir séu vel starf­ hæfar þrátt fyrir að tveggja flokka stjórn með jafn tryggan meirihluta og þeirra flokkar eru með eftir kosn­ ingarnar séu fýsilegri kostur. Þeir eru þó báðir greinilega ekki bún­ ir að loka á þriggja flokka stjórn en báðir flokkarnir gætu myndað slík­ ar stjórnir. Bjarni er einnig undir þeirri pressu að verða hugsanlega eini for­ maður Sjálfstæðisflokksins sem ekki nær forsætisráðuneytisstólnum. Hanna Birna Kristjánsdóttir, vara­ formaður flokksins, býður á hliðar­ línunni sem næsti leiðtogi flokks­ ins en hún mældist í aðdraganda kosninganna með umtalsvert meiri stuðning en formaðurinn. Staða Bjarna var veik fyrir kosningar, þrátt fyrir að hafa náð endurkjöri á síðasta landsfundi flokksins, og hefur fylgi flokksins í kosningunum núna ekki hjálpað til. „Bjarni þarf forsætis­ ráðuneytið,“ segir heimildarmaður DV innan úr Sjálfstæðisflokknum um stöðu Bjarna. Gæti það því orðið pólitískur bani Bjarna að ná ekki lyklavöldum í forsætisráðuneytinu. Samkvæmt heimildum DV innan úr Framsóknarflokknum kemur það hinsvegar ekki til greina að eftirláta Bjarna embættið og einfaldlega spurt af hverju sigurvegari kosning­ anna ætti að gera það. Vinstri græn líklega í stjórnarandstöðu Ef þriggja flokka stjórn yrði mynd­ uð verður að teljast líklegt að Sam­ fylkingin og Björt framtíð myndu þá koma inn í ríkisstjórn. Vinstri græn­ ir, sem unnu varnarsigur í kosn­ ingunum og eru komnir niður í um það bil sitt kjörfylgi eins og það var fyrir hrun, munu líklega eftir að eiga erfiðast að ná samstöðu með Sjálfstæðisflokki eða Framsókn um stjórnarþátttöku. Samfylkingarmenn eru hins­ vegar margir farnir að horfa til möguleika á samstarfi við Fram­ sókn og sagði Össur Skarphéðins­ son utanríkisráðherra í samtali við DV á kosninganótt að hann myndi vilja vinna með Sigmundi sem væri skýr sigurvegari kosninganna. „Það er náttúrulega algjörlega ljóst að ég get hugsað mér, eftir þessi úr­ slit, að starfa undir Sigmundi Davíð, vegna þess að hann er sigurvegari kosninganna. Það er hin lýðræðis­ lega niðurstaða,“ sagði hann. Birta myndi yfir pólitísku lífi Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylk­ ingarinnar, ef hann kæmi flokknum í ríkisstjórn og gæti tryggt áfram­ haldandi viðræður við Evrópusam­ bandið. Það yrði þó skrýtin staða ef Samfylkingin færi í ríkisstjórn með Framsókn til að lækka skuldir heim­ ilanna enn frekar þegar afhroð ríkis­ stjórnarinnar má að stórum hluta rekja til þess að fólk hefur kallað eft­ ir aðgerðum sem ríkisstjórn Sam­ fylkingar og Vinstri grænna var ekki tilbúin að ráðast í. Björt framtíð hefur ekki lofað neinu öðru en að reyna að vinna með andstæðingum sínum á þingi til að skapa betra stjórnmálaumhverfi og verður að teljast mjög líklegt að hægt væri að semja við flokkinn um stjórnarþátttöku. Það gæti þó reynst erfiðara í tilfelli Framsóknarflokks­ ins en Guðmundur Steingrímsson, annar formanna Bjartrar framtíðar, og Sigmundur Davíð, hafa ekki náð saman frá því að Guðmundur sagði sig úr Framsóknarflokknum á miðju kjörtímabilinu. Lítill möguleiki á minnihlutastjórn Þriðji möguleikinn sem er uppi er að láta Framsóknarmenn reyna til­ lögur sínar um stórfelldar niðurfell­ ingar skulda, afnám verðtryggingar og samninga við erlenda kröfuhafa um uppgjör bankanna vegna lausn­ ar á snjóhengjunni eina og sér. Þetta verður að teljast ólíklegasti kostur­ inn í stöðunni og er mjög líklegt að Sigmundur Davíð myndi reyna að gera sem flest til að koma í veg fyrir að þessi staða komi upp. Eina leiðin fyrir Sigmund er að slá af loforðum Framsóknarmanna, sem hann hefur þó alls ekki gefið til kynna að verði gert, og gera það í samningaviðræð­ um við annan stjórnmálaflokk. Ef þessi ólíklega staða kæmi upp myndi það gera þingið óvenju­ lega sterkt. Ekki væri hægt að koma málum í gegnum þingið nema með samningaviðræðum við stjórnar­ andstöðuflokkana. Þannig væri líka lítið mál að fella stjórnina með van­ trausti af hvaða tilefni sem væri. n 10 Fréttir 29. apríl 2013 Mánudagur Ekki bara Ein stjórn í boði n Bjarni verður að ná forsætisráðuneytinu n Sigmundur með stór kosningaloforð á bakinu Þetta er fyrirséð – miðað við loforðin Verði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að veruleika má bú- ast við ýmsum breytingum, verði staðið við öll kosningaloforðin. Loforðin eru jafn mismunandi og þau eru mörg og virðast flokkarnir ná ágætlega saman um mörg mál. Hér má sjá stutt yfirlit yfir þær breytingar sem gætu orðið á næsta kjörtímabili. Það sem á að gera: n Lækkun tekjuskatts, tryggingagjalds, virðisaukaskatts, auðlindagjalds, tolla og vörugjalda, eldsneytisgjalda, erfða- fjárskatts og áfengisgjalds (D) n Afnám eignarskatta (auðlegðar- skatt), stimpilgjöld, gistináttagjald, kolefnisgjald á eldsneyti, raforkuskatt og bifreiðagjöld (D) n Hækkun persónuafsláttar (D) n Afnám verðtryggingar (B) n Þak sett á verðtrygginguna fram að afnámi (B) n Snjóhengjan leyst og afnám gjald- eyrishafta (D og B) n Skuldavandi heimila leystur (D og B) n Lyklalög sem gerir fólki kleift að afsala eign sinni til lánveitanda án þess að það leiði til gjaldþrots (D og B) n Innlend matvælaframleiðsla verður aukin (B) n Styttri námstími til stúdentsprófs (D) Aðgerðum sem snúið verður við: n Aðildarviðræður við Evrópusambandið verða dregnar til baka (D og B) n Tillögur stjórnlagaráðs um heildarend- urskoðun á stjórnarskránni stungið ofan í skúffu (D og B) n Þrepaskipting tekjuskatts afnumin (D) n Breytingar á kvótakerfinu endurskoð- aðar (D) n Endurskoða rammaáætlun með það í huga að færa fleiri svæði í nýtingarflokk (D og B) Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Stefna á samstarf Bjarni Benediktsson og Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson hafa báðir lýst því yfir að þeir telji tveggja flokka stjórn eðli- legasta. Flokkar þeirra eru einu flokkarnir sem geta myndað slíka ríkisstjórn. Mynd SigTryggur Ari Átta ráðherrastólar eru í boði eins og staðan er í dag. Hægt er að fjölga þeim ef vilji er fyrir hendi og hefur Bjarni Benediktsson þegar lýst því yfir að hann telji eðlilegt að velferðarráðu- neytinu verði skipt upp. Verði líklegasta stjórnarmynstrið að veruleika, samstarf Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, eru þetta þau nöfn sem líklegust eru til að vera í nýrri ríkisstjórn. Spilin í ráðherrakaplinum Bjarni Benedikts- son (d) Hanna Birna Krist- jánsdóttir (d) Illugi Gunnars- son (d) Kristján Þór Júlíusson (d) Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F) Sigurður Ingi Jóhannsson (F) Eygló Harðar- dóttir (F) Frosti Sigurjóns- son (F)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.