Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Page 2
2 Fréttir 6. nóvember 2013 Miðvikudagur
Leiðrétting
Í síðasta helgarblaði DV kom
fram að Einar Örn Ólafsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
hjá Glitni og Íslandsbanka og
núverandi forstjóri Skeljungs,
hefði hætt í bankanum árið
2009 eftir að farið hafði fram
skoðun á aðkomu hans að sölu
bankans á Skeljungi. Þetta er
ekki rétt, líkt og komið hefur
fram í DV áður, því skoðun
bankans á aðkomu Einars
Arnar fór fram eftir að hann
lét af störfum í bankanum.
Skoðunin fór því fram eftir að
Einar Örn hætti en ekki áður
en hann hætti. Þetta atriði leið-
réttist hér með.
Píratar stærstir hjá
yngstu kynslóðinni
n Breytingar á íslensku flokkakerfi n Ungir snúa baki við gömlum valdaflokkum
S
vanur Kristjánsson, prófessor
í stjórnmálafræði, segir ljóst
að grundvallarbreytingar
séu að verða á hinu íslenska
flokkakerfi. Hann vísar í ný-
lega skoðanakönnun Félagsvís-
indastofnunar Háskóla Íslands
sem framkvæmd var dagana 3.–16.
október síðastliðinn, en þar kem-
ur meðal annars fram að Píratar séu
stærsti flokkurinn á landsvísu á meðal
kjósenda undir þrítugu, með 23 pró-
senta fylgi. „Það sem við sjáum þar
er að yngra fólkið kýs allt öðruvísi en
þeir sem eldri eru.“
Svanur segir gamla flokkakerfið
í raun hrunið og að Besti flokkurinn
hafi verið ein birtingarmynd þess.
Ekki megi þó gleyma því að á Akur-
eyri hafi L-listinn, eða Listi fólksins,
sópað til sín fylgi árið 2010 og fengið
sex bæjarfulltrúa kjörna og hreinan
meirihluta. Niðurstaða síðustu sveit-
arstjórnarkosninga hafi sýnt, svo ekki
verði um villst, að yngra fólk kalli eftir
breytingum. Sú krafa sé ennþá uppi sé
miðað við niðurstöðu nýlegrar skoð-
anakönnunar Félagsvísindastofnun-
ar. Staðan sé því galopin þegar kemur
að sveitarstjórnarkosningum næsta
vor og allt geti gerst.
28 prósenta fylgi valdaflokka
Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofn-
unar Háskóla Íslands var framkvæmd
dagana 3.–16. október síðastliðinn og
var meðal annars spurt hvaða flokk
eða lista svarendur myndu kjósa,
ef gengið yrði til alþingiskosninga
„á morgun“. Sjálfstæðisflokkurinn
mældist með 23,2 prósenta fylgi,
Samfylkingin með 19,7 prósenta,
Framsóknarflokkurinn með 14,8 pró-
senta, Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð með 14,5 prósenta, Björt framtíð
með 12,4 prósenta og Píratar með 8,5
prósenta fylgi.
Þá vekur athygli að Píratar mælast
stærstir með 23 prósenta fylgi á með-
al kjósenda á aldrinum 18–29. Á hæla
þeim koma síðan Samfylking og Sjálf-
stæðisflokkur með nítján prósenta
fylgi hvort hjá yngstu kjósendunum.
Framsóknarflokkurinn mælist með
níu prósenta fylgi hjá yngstu kjós-
endunum en Svanur segir mikil tíð-
indi í þessu. „Þarna eru Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknarflokkurinn
með samanlagt 28 prósenta fylgi hjá
yngstu kjósendunum. Þetta eru flokk-
ar sem voru sögulega séð með tvo
þriðju hluta atkvæða á landsvísu, í
fleiri áratugi, og eru nú komnir niður
fyrir þrjátíu prósent.“
Flokkakerfið hrunið
Svanur segir þessar tölur skipta máli
þegar verið sé að spá fyrir um úrslit
borgarstjórnarkosninganna í Reykja-
vík. Samkvæmt nýlegri skoðana-
könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2
hefur pólitíska landslagið í borginni
lítið breyst þótt Jón Gnarr borgarstjóri
hafi tilkynnt að hann fari ekki fram að
nýju í kosningunum næsta vor, og að
Besti flokkurinn verði lagður niður. Fær
Björt framtíð samkvæmt könnuninni
svipað fylgi og Besti flokkurinn fékk í
síðustu kosningum, eða 36,1 prósent.
„Það er ljóst að við getum ekki
tekið neitt sem sjálfgefið þegar kem-
ur að kosningum í vor. Sjálfstæðis-
flokkurinn réð hér Reykjavík þangað
til 1994 en nú er staðan sú að þetta
flokksapparat Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík er hrunið. Gamla flokka-
kerfið er hrunið og ein birtingar-
myndin af því er Besti flokkurinn,“
segir Svanur í samtali við DV. Hann
bendir þó á að aðrar stórfréttir í
síðustu sveitarstjórnarkosningum
hafi fallið svolítið í skuggann af sigri
Besta flokksins. Nefnir hann meðal
annars L-listann svokallaða sem vann
stórsigur á Akureyri og fékk kjörna sex
bæjarfulltrúa á Akureyri: „Það gleym-
ist stundum að á Akureyri er flokkur
sem er með hreinan meirihluta. Þar
er Sjálfstæðisflokkurinn bara með
einn bæjarfulltrúa, og Framsóknar-
flokkurinn með einn.“
Níu prósenta fylgi Framsóknar
Miðað við niðurstöður Félagsvís-
indastofnunar hafa ríkisstjórnarflokk-
arnir samanlagt 38 prósenta fylgi og
mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 3,5
prósentum minna fylgi en í alþing-
iskosningunum í vor og Framsóknar-
flokkurinn með um 10 prósentum
minna. Samfylkingin er samkvæmt
könnuninni orðinn næststærsti flokk-
ur landsins með um tuttugu prósenta
fylgi, Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð mælist nánast jafnstór og Fram-
sóknarflokkurinn og Björt framtíð og
Píratar bæta báðir við sig um þremur
til fjórum prósentum. Minnihlutinn á
þingi mælist því með um 55 prósenta
fylgi samanlagt.
Niðurstöður könnunarinnar voru
greindar eftir ýmsum bakgrunns-
breytum og þar má sjá fylgi framboða
eftir kyni, aldri, menntun, tekjum og
fleiru. Þar kemur meðal annars fram
að karlar séu líklegri til að styðja Sjálf-
stæðisflokkinn eða Pírata en konur
Samfylkinguna eða Vinstri græn. Þá
kemur fram að Píratar séu með tíu
prósenta fylgi á höfuðborgarsvæðinu
en sex prósenta fylgi á landsbyggð-
inni. Þessu er hins vegar öfugt far-
ið með Framsóknarflokkinn, sem er
með 25 prósenta fylgi á landsbyggð-
inni en níu prósenta á höfuðborgar-
svæðinu. Þá eru háskólamenntaðir
mun líklegri til að styðja Vinstri græn
en aðrir, á meðan 44 prósent þeirra
sem eru með tekjur yfir 600 þúsund
krónum á mánuði styðja við Sjálf-
stæðisflokkinn. n
Fylgi flokkanna
Björt framtíð Framsóknarflokkur Samfylking Sjálfstæðisflokkur Píratar Vinstri græn
12
,4
%
14
,8
%
19
,7
%
23
,2
%
8
,5
%
14
,5
%
11
%
9
%
19
%
19
%
23
%
17
%
Samkvæmt niðurstöðum úr þjóðmálakönnun
Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sem fram-
kvæmd var dagana 3.–16. október síðastliðinn.
Heildin
Heildin
Heildin
Heildin
Heildin
Heildin
Undir
þrítugu
Undir
þrítugu
Undir
þrítugu
Undir
þrítugu
Undir
þrítugu
Undir
þrítugu
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Besti ein birtingarmyndin Besti flokkurinn er ein birtingarmynd þess hvernig flokkakerfið hefur hrunið, segir Svanur Kristjánsson.
Grundvallarbreytingar Svanur segir
ljóst að grundvallarbreytingar séu að verða
á hinu íslenska flokkakerfi.
Tekur upp
hanskann fyrir
forsetann
Sigrún Magnúsdóttir, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins,
telur betra að þakka forseta Ís-
lands, Ólafi Ragnari Grímssyni,
fyrir árvekni og djörfung, heldur
en úthúða honum í viðtölum og
útgáfum ævisagna. Þetta sagði Sig-
rún á Alþingi á þriðjudag við lítinn
fögnuð Össurar Skarphéðinssonar,
þingmanns Samfylkingar og fyrr-
verandi ráðherra. Sigrún segir að
einu ástæðurnar fyrir slíkum skrif-
um væru til þess að réttlæta fyrri
störf þeirra Steingríms J. Sigfússon-
ar og Össurar Skarphéðinssonar,
sérstaklega varðandi landsdóm.
Össur var þessu ekki sammála
og sagðist ekki vilja að ásakanir
hennar í hans garð yrðu prentað-
ar í Alþingistíðindum. Hann hefði
sannarlega skrifað bók, en hvergi
væri ráðist á forsetann. Össur sagð-
ist vera vinur forsetans síðastliðin
30 ár og hann hefði enn fremur
ekkert til að skammast sín fyrir í
landsdómsmálinu.
„Mér þykir miður að heyra
slíkt. Háttvirtur þingmaður Sig-
rún Magnúsdóttir er að vísu sjald-
séðari en hvítir hrafnar í þessum
þingsal og þess vegna er það miður
og sorglegt að tilefni hennar til að
heiðra okkur með tilvist sinni skuli
vera að fara í árásir af þessu tagi,“
sagði Össur.
Vikulegri
útgáfu hætt
Vikulegri útgáfu tímaritsins
Skástriks hefur verið hætt, en
tímaritið hóf útgáfu á auglýs-
ingalausu veftímariti fyrir áskri-
fendur í haust. Í bréfi frá öðrum
ritstjóra blaðsins, Atla Þór Fann-
dal, sem hann hefur sent áskrif-
endum kemur fram að hann eigi
nú meirihluta hlutafjár í blað-
inu. „Ég ítreka að staðið verður
við skuldbindingar félagsins.
Hér er um endurskoðun að
ræða, ekki gjaldþrot,“ segir Atli.
„Í framtíðinni verður áherslan
hjá Skástriki lögð á ítarlegra efni
og umfjöllun í almannaþágu.
Blaðið mun koma sjaldnar út en
gæðin verða meiri.“ Hann segir
erfitt að horfast í augu við galla
eigin áætlana. „Það er bæði
vandræðalegt og erfitt.“