Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Qupperneq 3
Fréttir 3Miðvikudagur 6. nóvember 2013
Á
mánudag hófst umfangsmikil
aðalmeðferð í Al-Thani mál-
inu svokallaða þar sem fyrr-
verandi æðstu stjórnendur
Kaupþings, þeirra á meðal Ólafur
Ólafsson, eru ákærðir fyrir markaðs-
misnotkun, markaðssvik, umboðs-
svik og hlutdeild í þeim brotum.
Ólafur gaf skýrslu fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur á þriðjudag og
svaraði spurningum saksóknara
oft á þann veg að svarið hefði
þegar komið fram. Björn Þorvalds-
son saksóknari gagnrýndi þennan
trega til þess að svara spurning-
um og sagði sakborningana ítrekað
komast upp með að sýna skæting
og svara ekki spurningum. Dómari
tók undir þessa gagnrýni og benti
Ólafi á að saksóknari gæti þurft að
ítreka spurningar sínar til þess að
fá skýrari svör.
Saksóknari spurði Ólaf mikið út
í tæplega 12,9 milljarða króna lán
til félagsins Gerland á Bresku Jóm-
frúaeyjum, sem var í eigu Ólafs. Féð
rann samkvæmt ákæru áfram til
fjárfestingarfélags Al-Thanis. Ólafur
sagðist ekki hafa óskað eftir láninu
og að aldrei hafi komið til tals að
hann nyti hagnaðar af viðskiptum
Al-Thanis. Þá sagðist hann ekki hafa
lagt fram neinar tryggingar fyrir lán-
inu. Segja má að skýrslutakan hafi
verið lífleg í meira lagi en DV birtir
hér á eftir brot af samskiptum sak-
sóknara og Ólafs við réttarhöldin.
Í ljósi þess sem Ólafur sagði um
að hann hefði aldrei átt að hagnast
neitt á láninu, spurði saksóknari
hann að því hvort hann hefði ætl-
að að reiða fram tryggingar fyrir
láni sem hann myndi ekki bera
neinn hagnað af. Ólafur svaraði:
„Mér þykir alveg með ólíkindum,
fyrirgefðu ég ætla að halda mín-
um stutta tíma og skapinu í lagi,
en mér þykir með ólíkindum að
þú skiljir þetta ekki. Lestu skjalið.
Viltu vera svo vænn …“ Saksóknari
bað Ólaf vinsamlegast um að svara
spurningunni. Í seinna svari Ólafs
kom fram að lánið hefði verið
ótryggt og þar með hefði hann ekki
lagt fram neinar tryggingar.
Saksóknari spurði meðal annars
hver hefði tekið fjárhagslega áhættu
í lánaviðskiptunum. Ólafur svaraði
á þá leið að það hefði verið Sheikh
Mohammed Al-Thani.
Saksóknari: „Vegna lánsins til Gerlands?“
Ólafur: „Já, viðskiptunum, ekki í þessari
einstöku lánveitingu eins og þú kýst að
brjóta það.“
Saksóknari: „Já, en áhættan vegna
lánsins til Gerlands? Hvar liggur sú
áhætta?“
Ólafur: „Áhættan við lánið til Gerlands
er fyrst og fremst í verðmæti bréfanna
sem var verið að framreiða.“
Saksóknari: „Skýrðu það út fyrir mér …“
Ólafur: „Nei, þú veist það alveg jafn vel
og ég hver áhættan er.“
Saksóknari: „Þú ert vitni í þessu máli.“
Ólafur: „Já, og hverju viltu að ég svari?
Hverju á ég að svara?“
Saksóknari: „Þú svarar eftir bestu
samvisku.“
Ólafur: „Já, já, ókei, spurningin takk!“
Saksóknari: „Spurningin var sú, hver
tekur fjárhagslegu áhættuna af þessum
lánaviðskiptum?“
Ólafur: „Já af láninu. Ehh … Gerland tekur
áhættuna af því að lána það áfram og
bankinn tekur áhættuna af því að lána
Gerlandi fjármunina.“ Þegar saksóknari
benti á það sem Ólafur hefði verið að
segja stuttu áður um að engar tryggingar
hefðu verið fyrir láninu til Gerlands, og
þar með engin áhætta, svaraði Ólafur:
„Ég, veistu það, þú getur reynt að þvæla
þessu, ef þú skilur ekki þessa mynd þá
get ég ekki hjálpað þér með það.“
jonbjarki@dv.is
Tók sér 747
milljóna arð
n Ólafur Ólafsson á grænni grein n Samskip greiðir út
arð eftir dramatíska baráttu um framtíðareignarhald
Ó
lafur Ólafsson, fjárfestir og
eigandi Samskipa, tók sér
arð út úr skipafélaginu í
fyrra sem nam 4,4 milljón-
um evra, eða rúmlega 747
milljónum króna. Þetta kemur fram
í ársreikningi Samskipa sem skil-
að var til embættis ríkisskattstjóra
þann 31. október síðastliðinn. Sam-
skip skilaði hagnaði upp á tæplega
2,5 milljónir evra í fyrra, eða 424,5
milljónir íslenskra króna.
Eigandi Samskipa er hollenska
eignarhaldsfélagið Samskip
Holding BV en Ólafur hefur í gegn-
um tíðina notast talsvert við hol-
lensk eignarhaldsfélög í viðskiptum
sínum. Til að mynda hélt hollenskt
eignarhaldsfélag, Egla BV, utan um
hlutabréfaeign hans í Kaupþingi.
Arðurinn út úr Samskipum rann
því frá Íslandi og til Hollands. Arð-
urinn sem greiddur var út í fyrra er
jafnhár og hagnaður félagsins árið
2011. Það ár var enginn arður tek-
inn út úr Samskipum.
Hótaði að kyrrsetja skipin
Líkt og DV greindi frá í ágúst á
þessu ári, upp úr bókinni Ísland
ehf., þá hótaði belgíski bankinn
Fortis að kyrrsetja skip Samskipa ef
Ólafur Ólafsson fengi ekki að eiga
fyrirtækið áfram árið 2009. Fortis
vildi að Ólafur ætti Samskip áfram
á meðan Arion banki var á móti því.
Ef Fortis hefði kyrrsett skipin hefði
slíkt getað haft mikil áhrif á hags-
muni Arion banka inni í fyrirtæk-
inu.
Finnur Sveinbjörnsson var
bankastjóri Arion banka á þessum
tíma og sagði hann í samtali við DV
að hann kannaðist við þessa frá-
sögn. „Ég talaði alfarið fyrir bank-
ann á þessum tíma og greindi
frá því að Arion banki hefði ver-
ið í þessari stöðu: Að Fortis hefði
stutt Ólaf og viljað vinna með hon-
um áfram. Ég sagði að Arion banki
hefði verið kominn í mjög erfiða
stöðu og að bankinn hefði fórnað
meiri hagsmunum fyrir minni ef
ákveðið hefði verið að láta sverfa til
stáls; það er að segja ef Arion banki
hefði ákveðið að vinna ekki með
Fortis-bankanum með þeim hætti
sem bankinn vildi.“
Því er það svo að það er alls ekk-
ert sjálfsagður hlutur að Ólafur
Ólafsson hafi haldið Samskipum
eftir hrunið 2008. Ef Arion banki
hefði fengið að ráða hefði hann ekki
haldið fyrirtækinu. Nú fær Ólaf-
ur tæplega 750 milljóna króna arð
inn á reikning félags síns í Hollandi
vegna rekstrarhagnaðar Samskipa í
hitteðfyrra.
Ennþá eignamikill
Ólafur Ólafsson er ennþá eigna-
mikill þrátt fyrir íslenska banka-
hrunið þar sem hann tapaði eign-
um eins og 10 prósenta hlut í
Kaupþingi og þriðjungshlut í út-
gerðarfélaginu HB Granda. Hans
stærsta eign á Íslandi er Samskip en
eignir skipafélagsins nema tæplega
52 milljónum evra, um 8,8 milljörð-
um króna en á móti eru skuldir upp
á 41 milljón evra, tæplega 6,8 millj-
arða króna. Eiginfjárstaða félags-
ins er því jákvæð upp á um 2 millj-
arða króna. Þar að auki á Ólafur
verðmætar fasteignir í Reykjavík og
annars staðar, meðal annars höfuð-
stöðvar Bifreiðaumboðsins Öskju
og stóra fasteign á Suðurlands-
brautinni.
Ólafur kemur því ágætlega und-
an íslenska efnahagshruninu og
hefur nú greitt sér arð í fyrsta sinn
eftir hrun út úr Samskipum. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Að Fortis
hefði
stutt Ólaf og
viljað vinna með
honum áfram
„Þú ert vitni í
þessu máli“
n Ólafur þráaðist við í skýrslutöku
Réttarhöldin Þettskipað
var í Héraðsdómi Reykjavíkur
að morgni þriðjudags á meðan
Ólafur Ólafsson gaf skýrslu
fyrir dóminum. Mynd SigtRygguR ARi