Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Qupperneq 4
4 Fréttir 6. nóvember 2013 Miðvikudagur n Dagbókarfærslur Össurar frá 2012 í nýrri bók J óhanna Sigurðardóttir bað Össur Skarphéðinsson að reyna að lægja öldurnar innan þingflokks Samfylkingarinnar í aðdraganda flokksráðsfundar þar sem nokkrir þungavigtarmenn í flokknum lýstu óánægju sinni með breytingar á ríkisstjórninni. Fyrir lá að Árna Páli Árnasyni yrði skipt út úr ríkisstjórninni en ekki voru allir á eitt sáttir við það. Össur lýs­ ir þessu í bók sinni Ári drekans sem kemur út í dag, miðvikudag, en þar fer hann yfir líf ríkisstjórn­ arinnar árið 2012 eins og það birt­ ist í dagbókum sínum. Í kafla sem hægt er að lesa á DV.is í dag segir hann frá samtali sem hann átti við Ólaf Ragnar Grímsson forseta á nýársmorgun árið 2012. Í samtalinu við Ólaf ræddu þeir meðal annars ummæli sem Össur lét falla í viðtali við Viðskipta­ blaðið þar sem hann sagði að Samfylkingin ætti að fara í kosn­ ingar með nýja forystu úr yngri kynslóðum flokksins. „ Forsetinn spurði út í viðbrögð forsætis­ ráðherra við ummælum mín­ um. Þögn, sagði ég, þangað til nokkrum klukkustundum fyrir fund í þingflokknum sem haldinn var í aðdraganda stóra fundar­ ins,“ segir Össur og heldur áfram: „Þá hefði forsætisráðherra hringt, sagst ætla að ræða síðar við mig um viðtalið en lýst óvæntri ókyrrð meðal þingmanna. Hún hefði, eins og oft áður, beðið mig að fara í bátana og stilla öldur fyrir fund­ inn.“ Þetta segist Össur hafa gert og fundurinn með þingmönnum farið vel. n Guðríður kveður Guðríður Arnardóttir og Haf­ steinn Karlsson ætla ekki í fram­ boð til bæjarstjórnar í Kópavogi í vor. Þau greindu frá ákvörðun sinni á félagsfundi Samfylk­ ingarinnar í Kópavogi í fyrra­ kvöld, en greint er frá málinu á vef Kópavogsfrétta. Sem kunn­ ugt er hefur Guðríður verið í forsvari fyrir lista Samfylkingar­ innar frá árinu 2006 og Haf­ steinn Karlsson hefur starfað í bæjarstjórn frá árinu 2002. Sam­ kvæmt heimildum DV ljúka þau þó bæði kjörtímabilinu. Ögmundur sá strax eftir að hafa hætt Ö gmundur Jónasson, þing­ maður Vinstri grænna og fyrrverandi ráðherra, sá strax eftir því að hafa geng­ ið úr ríkisstjórn Samfylk­ ingar og Vinstri grænna árið 2010. Fljótlega eftir að hann sagði af sér ráðherraembætti sótti hann hart að komast inn í stjórnina aftur. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, fyrr­ verandi formaður Vinstri grænna, í nýrri bók, Frá hruni og heim, sem kom út í gær. Í bókinni ræðir Stein­ grímur meðal annars um erfiðleika innan Vinstri grænna í tíð síðustu ríkisstjórnar en flokkurinn tap­ aði mörgum þingmönnum á kjör­ tímabilinu. Átökin innan flokksins urðu vandamál í ríkisstjórnarsam­ starfinu og eru orð Jóhönnu Sig­ urðardóttur, forsætisráðherra í ríkis stjórn flokkanna, um að smala köttum löngu orðin fræg. Óttaðist að Ögmundur færi Steingrímur segir að um tíma eftir úrsögn Ögmundar úr ríkisstjórninni hafi hann óttast að sá síðarnefndi væri að undirbúa brotthvarf úr flokknum ásamt hópi stuðnings­ manna sinna. Nefnir hann sérstak­ lega til sögunnar þau Ásmund Ein­ ar Daðason, sem nú er þingmaður Framsóknarflokksins, og Lilju Móses dóttur, sem stofnaði eigið framboð eftir að hafa sagt sig úr VG. Þau tvö ásamt Jóni Bjarnasyni og Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, þing­ mönnum, segir Steingrímur hafi barist grimmt fyrir endurkomu Ög­ mundar í ríkisstjórnina. „Svo merkilegt sem það nú var þá fékk Ögmundur strax bakþanka yfir að hafa gengið úr stjórninni og vildi inn aftur. Hann safnaði liði innan þingflokksins og um tíma snerist allt um það hjá Ásmundi Einari Daða­ syni, Lilju Mósesdóttur, Jóni Bjarna­ syni og Guðfríði Lilju Grétarsdóttur að Ögmundur þyrfti að komast í stjórnina á ný,“ segir Steingrímur í bókinni. Jón var líka til vandræða Ögmundur var þó ekki eini ráðherr­ ann sem var til vandræða í vinstrist­ jórninni. Steingrímur segir frá því að Jón Bjarnason, sem var í stöðu sjávar útvegs­ og landbúnaðarráð­ herra, hafi verið erfiður. Steingrímur segir að Jóni hafi litist mjög illa á hugmyndir um sameiningu ráðu­ neyta og hafi óttast um eigið sæti. Jón gerði Evrópusambandsum­ sókn Íslands ítrekað að umræðu­ efni þegar rætt var um ríkisstjórnina og sagði að sameining ráðuneyta væri liður í aðlögunarferli að sam­ bandinu. Þetta segir Steingrímur vera „helbert rugl“. „Honum var kærara en allt kært að sitja í ráðherrastólnum þótt hann væri á köflum ekki ákafur stuðn­ ingsmaður ríkisstjórnarinnar, jafn­ vel ekki þegar á þurfti að halda. Það er undarlegt að menn vilji sitja í ríkis stjórn sem þeir ekki styðja,“ segir Steingrímur um Jón. Hann segir Jón ekki hafa mátt heyra á það minnst að hverfa úr ríkisstjórninni. Það gerðist þó á endanum við litla ánægju Jóns. Eftir að Jón þurfti að yfirgefa ríkisstjórnina um áramótin 2011/2012 sat hann í heilt ár sem þingmaður flokksins. Átök frá upphafi Steingrímur segir að átök innan flokksins hafi í raun byrjað strax eftir stjórnarmyndun að loknum kosn­ ingum 2009. Hann segir í bókinni að strax hafi órólegu þingmennirn­ ir sett sig upp á móti aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Stjórnar­ sáttmálinn sem flokkarnir tveir gerðu með sér kvað hins vegar mjög skýrt á um að sótt yrði um aðild að sambandinu. Þegar líða tók á kjörtímabilið fóru brestirnir að koma sífellt betur í ljós en það endaði á því að flokk­ urinn missti fimm þingmenn á kjör­ tímabilinu, ýmist af þingi eða til annarra flokka. Varamaður kom inn í stað eins þingmannsins og liðu aðeins nokkrir mánuðir frá úrsögn Jóns úr flokknum og fram að kosn­ ingum. Staðan var þó ekki góð og segir Steingrímur að honum þyki dapurlegt að þingmennirnir hafi farið. „Þau buðu sig fram og voru kjörin á þing fyrir þennan vinstris­ innaða flokk sem fékk yfirgnæfandi stuðning almennra flokksmanna til að fara í ríkisstjórn og eftir það sama yfirgnæfandi stuðninginn til að halda verkum sínum áfram,“ segir Steingrímur um brotthvarfið. n 3 bækur um 3 ráðherra Bók Steingríms, Frá hruni og heim, kom út á þriðjudag. Bókin er ein af þremur bókum fyrrver- andi ráðherra úr ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sem koma út fyrir þessi jól. Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, sendir frá sér bókina Ár drekans og eiginkona Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, Jónína Leósdóttir, sendi nýverið frá sér bók um líf þeirra hjóna síðustu ár. Uppgjör Steingrímur gerir upp hrunið, aðdraganda og eftirmála, í nýrri bók sem kom út á þriðjudag. Eftirsjá Steingrímur segir að Ögmundur hafi strax séð eftir því að hætta í ríkisstjórn. Ögmundur sagði ráðherrastól sínum lausum vegna átaka um Icesave-málið. n Steingrímur segir VG-liða hafa viljað Ögmund aftur í ríkisstjórn Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Treysti á að Össur lægði öldurnar Ræddi við Ólaf Össur sagði Ólafi Ragnari forseta frá fyrstu viðbrögðum Jóhönnu við viðtali við sig þar sem hann kallaði eftir nýjum formanni. Fleiri net í Grenlæk Áður en haustveiði á sjóbirting lauk í Grenlæk, vestan Kirkju­ bæjar klausturs, fannst net í ánni sem í voru um 20 úldnir silungar. Netaveiði er með öllu bönnuð í ánni en DV greindi frá því í lok september að landeigandi hefði þar gómað mann við netaveiðar. Samkvæmt lögreglunni á svæðinu gekkst maðurinn við broti sínu og var sektaður. Lögreglan á Kirkju­ bæjarklaustri segir að ekkert bendi sérstaklega til þess að um net frá sama manni hafi verið að ræða. Lögreglan hefur ekki komist til botns í málinu en ljóst sé að netið, sem fannst í efri skurði svoköll­ uðum, hafi legið í ánni í einhverja daga áður en þess varð vart.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.