Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Qupperneq 8
Þ rír milljarðar króna runnu sannarlega frá almenningshlutafélaginu FL Group og til eignarhalds- félagsins Fons í apríl 2005. Fons, fjárfestingarfélag Pálma Har- aldssonar, notaði peningana svo til að kaupa danska flugfélagið Sterl- ing. Þetta herma heimildir DV en Hannes Smárason, þáverandi stjórn- arformaður FL Group, hefur ver- ið ákærður fyrir peningamillifærsl- una af embætti sérstaks saksóknara. Með ákærunni er rúmlega átta gam- alt leyndarmál loksins upplýst. „Pen- ingarnir fóru í að kaupa Sterling,“ seg- ir heimildarmaður DV en Fons keypti danska flugfélagið á fjóra milljarða króna í mars þetta ár. Ákæran gegn Hannesi verður þingfest um miðjan nóvember. Millifærslan til Lúxemborgar hef- ur verið til rannsóknar hjá efnahags- brotadeild ríkislögreglustjóra og síð- ar embætti sérstaks saksóknara frá 2009. Talið er að millifærslan geti flokkast sem fjárdráttur og þar með brot á auðgunarbrotakafla hegn- ingarlaga en FL Group var almenn- ingshlutafélag á þeim tíma sem hún átti sér stað. Neita báðir Hannes hefur alltaf neitað því að peningarnir hafi runnið frá FL Group til Fons og þaðan í kaupin á Sterling. Þetta var hins vegar raunin. Í frétt í Morgunblaðinu síðla árs 2008 svaraði Hannes fréttaflutningi um málið með þeim hætti að ekkert væri hæft í því að peningarnir hefðu runnið til Fons og þaðan í Sterling- kaupin. Orð- rétt sagði Hannes: „Í tilefni af skrif- um blaðamanns Morgunblaðsins í sunnudagsblaðinu í dag og þeim að- dróttunum sem þar eru þá er þeim alfarið hafnað. Engin lög voru brotin eins og gefið er í skyn og er allur mál- flutningur í fréttinni afar ósmekkleg- ur. FL group lét gera óháða úttekt á þessu máli í aðdraganda aðalfundar félagsins 2006 og hefur ítrekað svarað þessum fullyrðingum.“ Pálmi Haraldsson hefur sömuleið- is alltaf neitað að hafa tekið við pen- ingunum frá FL Group „Þessir pen- ingar hafa aldrei komið inn á minn reikning eða reikning neinna félaga sem tengjast mér,“ sagði hann í við- tali við DV í febrúar 2011. Gögnin sem sérstakur saksóknari hefur und- ir höndum stangast því á við yfirlýs- ingar þeirra Pálma og Hannesar. Þeir Hannes og Pálmi hafa sjálfsagt bundið vonir við að aldrei fyndust sönnunargögn sem sýndu fram á það svart á hvítu hvert peningarnir fóru. Gögnin frá Lúx Rannsóknin á millifærslunni var á borði efnahagsbrotadeildar ríkis- lögreglustjóra frá 2009 áður en deildin rann inn inn í embætti sér- staks saksóknara árið 2011. Vanda- mál ákæruvaldsins snerist um að það gat ekki komist að raun um hvað gerðist í raun nema með gögnum um millifærsluna frá FL Group sem fór í gegnum Lúxemborg. Rannsóknin gekk því ekki vel af þessari ástæðu, týnda hlekkinn vantaði. DV hefur heimildir fyrir því að þessi gögn hafi borist embætti sér- staks saksóknara frá Lúxemborg síð- astliðið sumar. Í gögnunum kemur fram að Fons hafi fengið peningana frá FL Group og þaðan hafi fjármagn- ið runnið til að fjármagna kaup- in á Sterling. Þrátt fyrir þetta þá hefur Hannes alltaf neitað því að pen- ingarnir hafi runnið til Fons, líkt og áður segir. Ákæran í málinu, sem ekki hefur verið gerð opinber, mun taka af allan vafa um þetta atriði en þar er vísað í umrædd gögn frá Lúxem- borg. Lykillinn að því að leysa málið, og gefa út ákæru í því, lá því í gögnun- um í Lúxembog. Málið gegn Hannesi var því teiknað upp með þeim gögn- um sem yfirvöld í öðru landi þurftu að veita ákæruvaldinu aðgang að. Ákæran í málinu er enn ekki op- inber þar sem ekki hefur tekist að birta hana fyrir Hannesi en þrír dagar þurfa að líða frá því sakborningi er birt ákæra þar til hún er gerð opinber. Einar stofnaði reikninginn Líkt og DV greindi frá árið 2011 var aðdragandi millifærslunnar sá að Hannes bað undirmann sinn hjá FL Group, Einar Sigurðsson, núver- andi forstjóra Mjólkursamsölunn- ar, að stofna reikning hjá Kaupþingi í Lúxemborg þremur dögum áður en þrír milljarðar króna voru millifærð- ir af reikningi FL Group í Landsbank- anum til Lúxemborgar í apríl 2005. Millifærslan átti sér stað án vitneskju þáverandi forstjóra FL Group, Sigurð- ar Helgasonar, verðandi forstjóra fé- lagsins, Ragnhildar Geirsdóttur, sem og stjórnar félagsins. Hannes var hins vegar ekki með prókúruumboð hjá félaginu og lét hann framkvæma millifærsluna án leyfis frá prókúru- hafa félagsins. Einar, sem var framkvæmdastjóri rekstrarstýringar og viðskipta þróunar hjá FL Group, varð við beiðni Hann- esar enda var hann starfandi stjórn- arformaður, stærsti hluthafi fé- lagsins. Þremur dögum síðar fóru milljarðarnir þrír út af reikningi FL Group í Landsbankanum án vit- neskju annarra stjórnenda eða stjórnar FL Group. Upphæðin nam á að giska um helmingi þeirrar inni- stæðu sem var inni á reikningi FL Group í Landsbankanum á þessum tíma. Reikningur FL Group í Lúxem- borg virðist því hafa verið stofnaður í þeim eina tilgangi að taka við um- ræddum fjármunum og bar stofnun hans afar brátt að. Einar Sigurðsson kom hins vegar ekki að því að milli- færa peningana; hann stofnaði bara reikninginn. Alltaf sagt hafa verið Fons Þrátt fyrir að gögn sérstaks sak- sóknara taki af allan vafa um afdrif peninganna þá hefur því verið haldið fram í mörg ár að Fons hafi fengið fjármunina. Ragnhildur Geirsdótt- ir bar því til dæmis við í yfir lýsingu árið 2010 að hún hefði séð Excel-skjal frá Kaupþingi í Lúxemborg á þessum tíma sem skilja hefði mátt sem svo að peningarnir hefðu verið millifærð- ir til Fons. Ragnhildur sagði í yfirlýs- ingunni: „Hvar voru svo peningarn- ir niður komnir? Stjórnarformaður FL Group [Hannes Smárason, innsk. blm.] gaf aldrei viðunandi skýringu á því, að mínu mati. Hins vegar barst á þessum tíma útprentun úr Excel- skjali frá Kaupþingi í Lúxemborg þar sem fram komu upplýsingar sem mátti skilja sem svo að að peningarn- ir hefðu á einhverjum tímapunkti, í einhverjum tilgangi, verið millifærðir á Fons. Staðfestingu á því hef ég hins vegar aldrei fengið, hvorki hjá stjórn- arformanninum, bankanum né öðr- um aðilum.“ átta ára leyndarmál upplýst n Ákærður fyrir þriggja milljarða króna millifærslu til Fons n Týndi hlekkurinn í málinu voru bankagögn í Lúx sem sérstakur saksóknari fékk í sumar Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is 8 Fréttir 6. nóvember 2013 Miðvikudagur Neitaði Pálmi Haraldsson neitaði því í viðtali við DV árið 2011 að hafa tekið við milljörðun- um þremur sem FL Group millifærði á Fons. MyNd KArL PEtErssoN „Peningarnir fóru í að kaupa Sterling Mars 2005 Fons kaupir danska flugfélagið Sterling fyrir fjóra milljarða króna Apríl 2005 FL Group millifærir þrjá milljarða til Fons sem notaðir eru til að fjármagna kaupin á Sterling Júní 2005 Milljarðarnir þrír skila sér til baka til FL Group með vöxtum eftir gagnrýni frá stjórn og tilvonandi forstjóra Júní 2005 Þrír stjórnarmenn hætta í FL Group og stórir hluthafar selja hlutabréf sín Október 2005 Ragnhildur Geirsdóttir hættir sem forstjóri FL Group eftir einungis nokkra mánuði í starfi Október 2005 FL Group kaupir Sterling og Maersk Air fyrir 15 milljarða króna Desember 2006 FL Group selur Sterling til Northern Travel Holding, sem er í meirihlutaeigu Fons, fyrir 20 milljarða Ágúst 2008 Fons eignast 35 prósenta hlut FL Group í Northern Travel Holding

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.