Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Síða 10
É g myndi taka því þegjandi og hljóðalaust ef ég yrði dæmdur í lífstíðarfangelsi, líka ef ég fengi dauðarefsingu. Ef ég gæti hlaupist undan réttvísinni myndi ég ekki gera það.“ Þetta segir Líberíumaðurinn Joshua Milton Blahyi, betur þekktur sem Allsnakti hershöfðinginn (e. General Butt Naked). Blahyi er einn alræmdasti uppreisnarforingi sögunnar en hann og fylgismenn hans fóru mikinn í borgarastyrjöldinni sem geisaði í Líberíu á árunum 1989 til 2003. Talið er að um 250 þúsund manns hafi beðið bana í styrjöldinni. Frjáls maður Stríðsherrar hafa gjarnan það orð á sér að vera vægðarlausir og siðblind- ir. En Blahyi sló öll met hvað það varð- ar enda myrti hann þúsundir einstak- linga á tímum styrjaldarinnar. Nú, rúmum tuttugu árum síðar, er Blahyi frjáls maður og starfar sem prestur í heimalandi sínu. Á undanförnum árum hefur hann leitað – með mis- jöfnum árangri – fyrirgefningar hjá ættingjum þeirra sem hann myrti í borgarastyrjöldinni. Þýska blaðið Spiegel heimsótti Blahyi á dögunum. Tuttugu þúsund mannslíf Sex ár eru liðin síðan tilraun var gerð til að meta voðaverk Blahyi og fylgis- manna hans í borgarastyrjöldinni. Þáverandi forseti Líberíu setti saman níu manna nefnd sem meðal annars samanstóð af blaðamönnum, mann- réttindafrömuðum, lögfræðingum og presti. Blahyi kom fyrir þessa nefnd og var óvenju hreinskilinn. „Ég veit ekki hver nákvæm tala er, en ef ég ætti að giska á það eru það ekki færri en tutt- ugu þúsund,“ sagði hann þegar hann var spurður hversu marga hann hefði drepið í borgarastyrjöldinni. Mannát og mannfórnir Blahyi er fæddur 30. september 1971 og er því rétt rúmlega fertugur. Hann tilheyrir Sarpo-ættbálknum í austur- hluta Líberíu og þegar hann var ellefu ára tók hann þátt í fyrstu mannfórn- inni. Sjálfur segist Blahyi í kjölfarið hafa fengið hugboð frá sjálfum djöfl- inum sem hefði sagt honum að hann yrði stórkostlegur stríðsmaður og ætti að halda áfram mannfórnum og mannáti til að auka mátt sinn. Þetta gerði Blahyi í borgarastyrjöldinni og eru sögurnar af gjörðum Blahyi og fylgismanna hans vægast sagt skelfi- legar. Viðurnefnið Allsnakti hershöfð- inginn fékk Blahyi vegna þess að hann tók þátt í bardögum kviknakinn – að- eins klæddur í skó og vopnaður sveðju eða skotvopni. Hann taldi að þannig myndi hann ekki verða fyrir byssukúl- um óvina og öðlast meiri styrk en ella. Hann stundaði mannát og mannfórn- ir, einkum og sér í lagi á börnum, og taldi að það myndi gera hann allt að því ódauðlegan. Kenndi börnum að drepa Fáir stríðsherrar hafa verið sakaðir um jafn mörg ódæðisverk og Blahyi og gengist við ábyrgð. Kaing Guek Eav, yfirmaður fangabúða Rauðu khmer- anna í Kambódíu, þar sem 15 þús- und manns voru pyntaðir og myrtir, sagði að hann hefði verið venjulegur yfirmaður sem hefði hlýtt skipunum hátt settari manna. Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi í her Bosn- íu-Serba, neitaði sök þegar hann var sakaður um að bera ábyrgð á átta þús- und mannslífum í Srebrenica og ellefu þúsund mannslífum í Sarajevo. Fyr- ir nefndinni kom Blahyi hreint fram og játaði að hafa fengið börn í lið með sér í stríðinu og kennt þeim að drepa. Hann játaði að hafa skorið fórnarlömb sín upp og borðað úr þeim hjartað. Var aldrei refsað Þrátt fyrir að hafa játað öll þessi voða- verk var Blahyi aldrei refsað fyrir glæpi sína. Hlutverk nefndarinnar sem vís- að var til í upphafi greinarinnar var að- eins að rannsaka glæpina í borgara- styrjöldinni. Í umfjöllun Spiegel kemur fram að stöðugleiki í landinu hafi ver- ið tekinn fram yfir réttlætið. Lögsaga Stríðsglæpadómstólsins í Haag nær aðeins til stríðsglæpa sem framdir hafa verið eftir stofnun hans árið 2002. Á því eru þó undantekningar og má nefna þjóðarmorðin í Rúanda, Kam- bódíu og fyrrverandi Júgóslavíu. Enn sem komið er hefur Stríðsglæpadóm- stóllinn ekki lögsögu yfir atvikunum í Líberíu en það gæti breyst og er alfarið í höndum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. „Algjör fyrirgefning“ Sem fyrr segir starfar Blahyi sem prestur í höfuðborg Líberíu, Mon- róvíu. Hann snerist til kristinnar trú- ar fyrir nokkrum árum og segist vera annar maður en hann var. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að hann er réttilega hataður af þúsundum samlanda sinna. Blahyi reynir að bæta fyrir syndir sínar með því að heimsækja ættingja fórnarlamba sinna – enda er engin önnur leið fær en að fá fyrirgefningu. „Ég heimsæki þá sem ég hef sært og reyni að hjálpa þeim,“ segir hann. Hann segist ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana og það dugar honum ekki að fá „venjulega fyrirgefningu“ eins og hann orðar það. Hann vill „algjöra fyrirgefningu,“ segir hann og vitnar í biblíuna máli sínu til stuðn- ings. Drápu mömmu hennar og systur Hann hefur heimsótt 76 fórnarlömb eða ættingja fórnarlamba sinna. Enn sem komið er hafa einungis nítján fyrir gefið honum. Blaðamaður Spiegel fylgdist með þegar Blahyi heimsótti fórnarlamb númer 77, konu að nafni Faith Gwae. Blahyi komst í kynni við hana í gegnum prestinn í kirkjunni sem hún sækir í Monróvíu. Faith féllst á að hitta Blahyi vegna þess að henni var lofað að hún þyrfti ekki að segja neitt eða gera neitt. Í samtali við Spiegel rifj- ar hún upp kynni sín af Blahyi. Þetta gerðist í júlí 1991 og á þeim tíma var Faith 16 ára en Blahyi 19 ára. Hún bjó ásamt fjölskyldu sinni í út- hverfi Zwedru í austurhluta Líberíu. Þau höfðu fengið veður af borgara- styrjöldinni í gegnum útvarp og velti fjölskyldan fyrir sér hvort hún ætti að yfirgefa svæðið eða vera um kyrrt. Rigningartímabilið var í hámarki og það gerði fjölskyldunni erfitt um vik að yfirgefa svæðið. „Stríðið mun ekki standa yfir lengi,“ sagði móðir Faith og varð úr að þau ákváðu að vera um kyrrt. Skyndilega heyrði Faith öskur fyrir utan heimilið og þegar henni var litið út um gluggann sá hún nakinn mann vopnaðan sveðju. Augnabliki síðar sá hún fleiri menn koma aðvífandi sem allir héldu á byssum. Á heimili Faith var barnfóstra sem tilheyrði öðrum ætt- bálki. Blahyi og fylgismenn hans fengu veður af því og ruddust inn á heimil- ið. Faith rifjar upp að bróðir hennar hafi reynt að hlífa barnfóstrunni „Hún er manneskja, eins og ég og þú,“ sagði bróðirinn. Blahyi brást ókvæða við og skipaði undirmanni sínum að ganga frá bróður hennar. Hann beið ekki boðanna heldur réðst á hann með sveðju. Í kjölfarið var móður hennar og systur nauðgað áður en þær voru myrtar. Faith var sú eina sem komst lífs af og segist hún þakka fyrir það. Hún vill ekki tala um það sem Blahyi og fylgismenn hans gerðu henni áður en þeir héldu á brott. Í umfjöllun Spiegel kemur fram að Faith hafi ekki tekið beiðni Blahyi um fyrirgefningu, ekki að sinni að minnsta kosti. „Ég vil ekki heyra neitt. Ég vil ekki segja neitt. Farðu,“ voru hennar fyrstu viðbrögð. Blahyi gafst þó ekki upp og hélt áfram að telja henni trú um að fyrir gefning væri rétta leiðin. „Þetta er ekki eitthvað sem gerist á einni nóttu. Þetta er ferli,“ sagði hún og bætti við að hún ætlaði að íhuga beiðni hans. Blahyi á langan veg fyrir höndum til að öðlast fyrirgefningu hjá ættingj- um fórnarlamba sinna sem hlaupa á þúsundum. Hann segist ekki ætla að gefast upp og halda leið sinni áfram þar til yfir lýkur. n 10 Fréttir 6. nóvember 2013 Miðvikudagur Nakti hershöfðinginn vill fá fyrirgefningu n Joshua Milton Blahyi er einn alræmdasti stríðsherra 20. aldar Allsnakinn Viðurnefnið Allsnakti hers- höfðinginn fékk Blahyi því hann tók þátt í bardögum kviknakinn. Hann taldi að þannig yrði hann allt að því ódrepandi. Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is „Ég heimsæki þá sem ég hef sært og reyni að hjálpa þeim Stríðsglæpamaður Blahyi, betur þekktur sem Allsnakti hershöfð- inginn, hefur þúsundir mannslífa á samviskunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.