Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Page 11
Umræða 11Miðvikudagur 6. nóvember 2013
U
m daginn kviknaði ljós. Ég
var að horfa á fréttirnar af
útgáfu nýja milljónkallsins
(milljónkallinn sem tvö núll
voru tekin aftan af árið 1981
og heitir nú tíuþúsundkall) en ljósið
kviknaði ekki samstundis, því eins og
við vitum ekki þá eru sendar út bylgj-
ur samtímis íslenskum sjónvarps-
útsendingum sem deyfa í manni heil-
ann. En ég var svo heppinn að kveikja
ekki á sjónvarpinu tvö kvöld í röð og
því voru áhrif bylgjanna eitthvað að
dofna þegar ég var að bursta í mér
tennurnar í gærkvöldi, úr speglinum
horfði tómum augum á mig þessi fá-
viti. Það kviknaði ljós, bara smá tíra.
Við erum svo rík
Okkur er sagt á tyllidögum að við
séum svo rík, við eigum svo mikið af
auðlindum. Það er alveg rétt, auðlind-
irnar sem við eigum ættu að geta gefið
af sér meira á hvern íbúa hér en auð-
lindir Noregs gefa af sér á hvern íbúa
þar. Samt kjósum við yfir okkur stjórn-
völd sem segja okkur að jú við séum
svo rík, en best sé að innheimta ekki
sanngjarnan hluta umframarðsins
til þjóðarinnar og ekki nóg með það,
heldur svo lítinn hluta að hann dugar
vart fyrir rekstri Hafrannsóknastofn-
unar, Landhelgisgæslu, Fiskistofu og
apparatsins í heild. Svo við tökum
smá líkingu á þetta, þá er þetta eins og
að vera svo heppinn og ríkur að eiga
fjögurra herbergja íbúð aukalega en
leigja hana svo ódýrt að leigan dugar
vart fyrir rekstrarkostnaði, eigum við
afgang af leigu íbúðarinnar eða ekki?
Ástæðan fyrir því að ekki má leggja
meira á útgerðina, er að sum, já sum
útgerðarfyrirtæki myndu ekki þola
það. Eru það ekki þau fyrirtæki svo
eru svo illa rekin og eru svo skuldsett
að þau mega bara fara á hausinn eins
og önnur illa rekin fyrirtæki? Nei, að
vera sægreifi er lénstitill og slíku léni
fylgir að viðkomandi er á sérkjörum
og má ekki fara á hausinn eins og
önnur fyrirtæki sem eru illa rekin.
Fiskurinn yrði að vísu veiddur áfram,
en sægreifinn skal vera friðaður.
Híbýli fávitanna
Eins og við séum ekki nógu miklir fá-
vitar vegna framansagðs, þá tek ég
undir með stjórnvöldum og jarma
með kórnum; „Já, við erum svo
rííííík –meeeee“. Í svartnætti hug-
ans þá rifja ég upp fréttina af því
þegar ný ríkisstjórn var kynnt á slóð-
um Hriflu-Jónasar á Laugavatni, þar
sem rætt var um þjóðmenninguna,
hagsmuni Íslendinga af því að ganga
ekki í Evrópusambandið (sem getur
svo sem vel verið rétt). En almáttug-
ur forði okkur frá því að fá samning
sem við getum svo tekið afstöðu til,
því undir liggur að við gætum valið
rangt, fávitarnir. Svo hefur verið rætt
um blessuðu íslensku krónuna sem
kom okkur í gegnum hrunið, þessa
sömu krónu og ekki er hægt að selja
á neinum stað utan híbýla fávitanna
sem eru skýrt afmörkuð af eylandi,
með miklu hafi um kring. En það
sem okkur fávitunum er ekki sagt
er að það kostar u.þ.b. 100 milljarða
mælt í þeirri sömu krónu að halda í
þessi menningarverðmæti. Á hag-
fræðimállýsku væri þetta kallaður
fórnarkostnaður, en köllum það her-
kostnað fávitanna. Hvert fara þessir
100 milljarðar sem fórnað er? Jú, þeir
eru notaðir til að gjaldfella laun fá-
vitanna og renna því óbeint til þeirra
sem greiða þeim laun, annar hluti
kemur fram í mun hærri vöxtum sem
við greiðum illa reknum fjármála-
fyrirtækjum, sem geta verið illa rek-
in áfram því engin erlend fjármála-
fyrirtæki hafa áhuga á þessum litla
örmarkaði í íslenskri krónu. Þeir sem
græða mest eru útflutningsatvinnu-
vegirnir, t.d. hinir friðuðu sægreifar
sem greiða sinn kostnað í krónum en
fá tekjurnar í forboðnum evrum. Af
einhverri undarlegri tilviljun eru sæ-
greifarnir alveg samstíga stjórnvöld-
um í þeirri ákvörðun að slíta viðræð-
um við Evrópusambandið.
FF samtökin
Við látum 100 milljarða sigla fram-
hjá okkur í kostnaði við gjaldmiðil-
inn og svo nokkra tugi milljarða í arð
af sjávar auðlindinni og orkan er not-
uð sem skiptimynt og seld á útsölu til
að fjármagna atkvæðakaup. Meðan á
þessu stendur, þá er heilbrigðiskerfið
okkar að molna í sundur og allur
rekstrarkostnaður Landspítalans á
seinasta ári var 39,8 milljarðar, svona
til að tölur séu settar í samhengi. Ég
segi við jafnaldra mína, eins gott að
þið verðið ekki veik, það tekur 10–15
ár að byggja kerfið upp aftur ef það
stendur yfirhöfuð til, foreldrar okkar
eru því í heldur vonlausari stöðu.
Hvað er til ráða? Ég ætla að stofna
samtök, FF samtökin. FF samtök-
in verða fyrir okkur fokking fávitana
og eiga að hjálpa okkur við að sætta
okkur við stöðu okkar og lifa einn
dag í einu sem fáviti. Við fáum okkur
fundarstaði og skipuleggjum net
funda, þar sem við getum komið
saman og stutt hvert annað áfram í
fávitaganginum, því ekki viljum við
fórna þjóðmenningunni og skerða
kjör sægreifanna, frekar viljum við
drepast. Jón heiti ég og er fokking
fáviti. n
Jón heiti ég og er fokking fáviti
Kjallari
Jón Einarsson
Viðskiptafræðingur
„Hvert fara
þessir 100
milljarðar sem
fórnað er?
ANTIKÚTSALA
AFSLÁTTUR
20-50%
30-50%
af húsgögnum
50%
af bókum
20%
af smáhlutum
HAFNARFIRÐI
552 8222 - 867 5117
antikbud@gmail.com