Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Page 12
Sandkorn M ikil taugaveiklun hefur gripið um sig vegna um­ mæla Vigdísar Hauks­ dóttur, formanns fjár­ laganefndar, um niðurskurð í opinbera geiranum. Vigdís lét að því liggja að opinberir starfsmenn gætu átt von á uppsögn­ um. Þingmaðurinn gagnrýndi jafn­ framt að í tíð síðustu ríkisstjórnar hefði verið ákveðið að starfsmenn ríkisins héldu störfum sínum, þrátt fyrir sameiningu stofnana og hag­ ræðingu. Ekki skal lagður dómur á það hvort ummæli þingmanns­ ins hafi verið of harkalega sett fram. Hins vegar er veruleikinn sá að opin beri geirinn á að lúta sömu lög­ málum og einkafyrirtæki í landinu. Kjarni málsins er sá að rekstur ríkisins þarfnast endurskoðunar. Starfsmenn ríkisins eru of margir í mörgum tilvikum og óráðsía ein­ kennir rekstur of margra fyrirtækja og stofnana. Þetta má sjá af öllum þeim fjölda ríkisfyrirtækja sem ekki halda sig innan ramma fjárlaga. Fjölmargir forstjórar eru uppvísir að því að eyða um efni fram. Þetta hafa þeir, sumir hverjir, komist upp með árum saman án þess að þurfa að sæta ábyrgð. Það er hlutverk Vigdísar og annarra þingmanna að leggja þær línur sem duga til þess að koma ríkis fjármálunum í lag. Þar ber hæst að setja forstjórum ríkisfyrir­ tækja þær skorður að þeir fari ekki fram úr fjárveitingum. Í þeim efnum dugir ekki annað en að reka skuss­ ana. Taka verður á eftirlitsiðnaðin­ um og fækka þeim sem þar eru á spena. Bændasamtökin taka til sín milljarða á hverju ári. Þar þarf að endurskoða. Ganga verður fram af þeirri festu sem nauðsynleg er til að árangur náist. Hvert einasta óþarft stöðugildi þarf að hverfa. Meðal þess sem má hagræða í rekstri ríkisins er ferðakostnað­ ur opinberra starfsmanna. Sjálf­ sagt ætti að vera að ríkið óskaði eftir tilboðum í flugmiða og minnkaði þannig ferðakostnað. Þá er alþekkt bruðl með dagpeninga. Gæðingar hins opinbera ferðast á himinhá­ um dagpeningum og fá í mörgum tilfellum fría gistingu. Stundum eru dagpeningar uppistaðan í laun­ um manna. Þarna þarf að rýna vel í málin. Einstaklingar og einkafyrirtæki í landinu hafa gengið í gegnum hrikalega tíma allt frá hruninu. Þús­ undir hafa misst vinnuna og fjöl­ mörg fyrirtæki hafa orðið gjaldþrota eða gengið í gegnum þrengingar. Það er öllum nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hver undirstaða samfélagsins er. Það eru í megin­ atriðum fólk og fyrirtæki á frjálsum markaði sem standa undir ríkisfyrir­ tækjunum. Það verður að skapa fólki og einkafyrirtækjum þau lífs­ skilyrði sem duga til að halda uppi ríkisrekstrinum. Það gerist með því að draga úr álögum og kostn­ aði en ýta undir framleiðslu og fjár­ festingar. Vigdís og félagar hennar í hag­ ræðingarhópi ríkisstjórnarinnar hljóta að hafa það að leiðarljósi að ríkið megi ekki sliga atvinnulíf­ ið og einstaklinga. Niðurskurður­ inn verður að koma þeim til góða. Góður hagur ríkisins verður að eiga sér uppruna í heilbrigðum fjárhag einstaklinga og fyrirtækja. Í dag er slagsíða. Ríkið er á hliðinni í rekstri sem oft og tíðum er ábyrgðarlaus. Þar þarf að taka til hendinni með hagræðingu og fækkun opinberra starfsmanna. En það þarf að ganga fram í niðurskurðinum gagnvart einstaklingum af nærfærni. Það mun reyna á ríkisstjórn og Alþingi í þessum málum á næstunni. Þar þarf að koma til staðfesta til þess að lækna ríkið af óráðsíunni og rugl­ inu. n Bálreiður poppari n Popparinn Bubbi Morthens er á stundum óborganlegur í málflutningi sínum. Skoð­ anir hans og framsaga ná gjarnan öfganna í milli. Bubbi var eins og þrumu­ ský í þætti Gísla Marteins Baldurssonar, Sunnudags­ morgni, þar sem hann ræddi um ólöglegt niðurhal við pírataþingmanninn Helga Hrafn Gunnarsson. Bubbi líkti þingmanninum við 15 ára ungling. Þegar Helga varð á að kalla Bubba „háttvirt­ an“ brást hann reiður við og sagðist kunna því illa að talað væri niður til sín. 365 í bobba n Fjölmiðlaveldið 365 er í miklum rekstrar­ og efnahags­ vanda. Netflix­væðing þjóðar­ innar hefur kostað fyrir tækið mikið. Þá eru áhyggjur innan Landsbankans vegna lán­ veitinga sem farið hafa fram í tíð Steinþórs Pálssonar og eiga sér loft­ kennd veð. Ari Edwald forstjóri hef­ ur barist eins og ljón gegn niður­ halinu og gekk svo langt að skrifa grein í Morgunblaðið þar sem óvinur númer 1, Davíð Oddsson, er við völd. Það lýsir þeirri tauga­ veiklun sem sprottin er af vantrú bankans á fyrirtækið. Blóðugur vetur n Hagræðingarhópur ríkis­ stjórnarinnar undir forystu Vigdísar Hauksdóttur er nú að leggja lokahönd á tillögur sín­ ar varðandi niðurskurð í ríkiskerf­ inu. Víst er að gripið verður til uppsagna. Í því samhengi er talað um blóðugt haust. Á meðal þeirra stofnana sem þurfa að herða sultarólina er Ríkisútvarpið sem þarf að hagræða grimmt. Páll Magn- ússon útvarpsstjóri er í vanda vegna þess að hann hefur ekki bakland í stjórn. Hugs­ anlegt er því að hann sé á förum. Jóhanna þversum n Össur Skarphéðinsson, fyrr­ verandi utanríkisráðherra, staðfestir í nýrri bók það sem fram hafði komið í DV um að hópur áhrifafólks innan Samfylkingar hafi viljað slíta ríkisstjórnarsamstarfinu árið 2012. Þetta fór mjög fyr­ ir brjóstið á Jóhönnu Sig- urðardóttur forsætisráð­ herra sem harðneitaði að verða við því. Stjórnin sat því áfram og var kolfelld í kosningum. Þeir gangast ekki við ábyrgðinni Ég er ekki fangi þarna, ég var bara gestur Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, um forvarsmenn KSÍ. –DV Ungri konu í heimsókn á Litla-Hrauni ofbauð er fangavörður ruddist inn á heimsóknarherbergi. – DV Gæðingar og skussar„Hvert einasta óþarft stöðugildi þarf að hverfa M inn herra á engan vin.“ Svo mælti Jón Grunnvíkingur þegar öll sund virtust hafa lokast fyrir húsbónda hans – Árna Magnússyni – handritin, ást­ konan og mannorðið í uppnámi. Eins virðist útvarp allra lands­ manna eiga sér formælendur fáa – þótt yfir 70% þjóðarinnar segist bera til þess traust. Við sjáum talsmenn og starfsfólk Landspítala stíga fram og sýna fram á skaðann sem niður­ skurðurinn hefur í för með sér fyrir heilsufar landans. Rektor, kennarar og nemendur HÍ draga upp mynd­ ir af afleiðingum fjársveltis þar á bæ fyrir menntunarstig þjóðarinn­ ar. En þegar RÚV er skorið niður um milljarð eru fáir sem taka til varna. Og nú hefur menntamálaráðherra boðað að enn skuli gengið í skrokk á stofnuninni svo nemur 200 millj­ ónum. En bætir því við að henni sé frjálst að bæta sér það upp með því að harka á auglýsingamarkaði. Af­ leit hugmynd! Ég lít svo á að sjón­ varpsauglýsingar séu ekki miðlinum til framdráttar, þvert á móti standi þær honum fyrir þrifum. Fyrir nú utan hve auglýsingar eru leiðinlegt sjónvarpsefni þá sækir ósjálfrátt í það far að þær stýri sjálfu efnis­ valinu. Sjónvarp sem á líf sitt undir auglýsingum fer óhjákvæmilega að miða dagskrá við efni sem hugn­ ast auglýsendum. Er til að mynda sennilegt að auglýsendur myndu þyrpast að þáttaflokki um kvótann og afleiðingar hans hringinn í kring­ um landið? Alla vega ekki LÍÚ. Eða segjum þáttasyrpu um afleiðingar hrunsins fyrir heilbrigði, menntun og afkomu landans. Alla vega ekki bankarnir. Sjónvarp drifið áfram af auglýs­ ingum verður eðli málsins sam­ kvæmt afþreyingarmiðað. „Af­ þreying“ er ekki gamalt orð í íslensku, samkvæmt Orðabók HÍ kemur það fyrst fyrir á 19. öld hjá Konráði Gíslasyni: „En það er mér nú helst huggun eða afþreying, að vitja grafarinnar“. Já, gott ef það gef­ ur ekki tóninn fyrir inntak orðsins, það er eitthvað feigt við afþreyingu, samanber frægt verk Neil Postman: Að skemmta sér til bana eða (Amus­ ing ourselves to death). Nei, þjóð sem telur 330 þúsund sálir og situr ein að gjöfulustu fiski­ miðum veraldar með sjálfbæra orku í vatnsafli og varma og mestu aukn­ ingu í ferðamennsku á heimsvísu – henni ætti að vera í lófa lagið að halda hér úti útvarps­ og sjónvarps­ miðli sem með orðum listaskálds­ ins „orkuna styrki, viljann hvessi, vonina glæði og hugann hressi“ – án auglýsinga. n Engan vin? Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjónarmaður helgarblaðs og innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 12 6. nóvember 2013 Miðvikudagur Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is „En þegar RÚV er skorið niður um milljarð eru fáir sem taka til varna Kjallari Pétur Gunnarsson rithöfundur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.