Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Blaðsíða 13
Hljómar eins og fimmtán ára krakki Ég er boltastrákur hjá landsliðinu Ég mótmæli þessu harðlega Bubbi Morthens um Helga Hrafn Gunnarsson þegar þeir tókust á um höfundarrétt. – SunnudagsmorgunnÞorgrímur Þráinsson situr í landsliðsnefnd KSÍ. – DVÖgmundur Jónasson alþingismaður um markaðssetningu fjárhættuspila í fjölskylduþætti RÚV. – DV Orðum fylgir ábyrgð Spurningin „Mér fannst hann fínn þegar hann var í fjölmiðlum áður. Það er gott að fá hann aftur.“ Þórdís Pétursdóttir 21 árs upplýsingafulltrúi „Ég sé ekki að það skipti neinu máli að hann sé þar eða einhvers staðar annars staðar.“ Hjörtur Þorleifsson 43 ára rekstrarstjóri „Ég veit því miður rosalega lítið um málið, hef ekki verið að fylgjast með.“ Hafsteinn H. Sverrisson 27 ára kaffibarþjónn „Mér finnst örla fyrir því að hún sé pínulítið vafasöm.“ Ingvi Þór Kormáksson 61 árs bókasafnsfræðingur „Ég er ekki búinn að kynna mér þetta mál nægilega vel.“ Gunnar Sveinbjörnsson 36 ára starfsmaður slökkvi- tækjaþjónustunnar Hvað finnst þér um ráðningu Gísla Marteins á RÚV? 1 „Þær vita hvernig við erum og þær vita hverju þær eiga von á“ Drengir frá Nýja-Sjálandi hafa mark- visst dregið ungar stúlkur á tálar og haft við þær holdlegt samræði. 2 Bundin með rafmagnssnúru og hengd upp á vegg Fórnarlamb Ariel Castro, Michelle Knight, segir frá samskiptum sínum við níðinginn. 3 Ólafur hundskammar saksóknara Ólafur Ólafsson gagnrýndi saksóknara fyrir dómi á þriðjudag og vændi hann um vanþekkingu. 4 Hannes Smárason ákærður Hannes er í bobba vegna viðskipta í tengslum við Sterling og FL Group. 5 Braut ekki siðareglur með því að birta viðtal við Guðnýju Rós Ritstjóri Nýs Lífs er ánægður með meginniðurstöðu siðanefndar Blaða- mannafélags Íslands. Mest lesið á DV.is Á vegum ríkisstjórnarflokkanna hefur frá því í vor starfað sér­ stakur hagræðingarhópur þingmanna. Þessum hópi er ætlað það hlutverk að gera tillögur um margvíslegar aðgerðir í ríkisfjár­ málum til hagræðingar eins og það er jafnað kallað. Á mannamáli snýst þetta um niðurskurð. Ríkisstarfsmenn of vinstrisinnaðir! Í lýðræðisþjóðfélagi er tjáningar­ frelsið einn af hornsteinum sem er mikilvægt að standa vörð um. Ekki einungis að stjórnmálamenn njóti málfrelsis, eins og formaður fjár­ laganefndar Alþingis, sem á sæti í hagræðingarhópnum, notar sér óspart, heldur er ekki síður þýðingar­ mikið að fólk sé ekki látið sæta t.d. atvinnumissi vegna skoðana sinna. Slíkt fyrirkomulag þekkist að vísu í sögunni, en er ekki eftirbreytnivert. Það er þess vegna áhyggjuefni þegar því er beinlínis haldið fram, af for­ ystumanni á Alþingi, að opinber­ ir starfsmenn (væntanlega allir eða flestir) séu vinstrimenn og því hafi þeir notið velvildar fyrri ríkisstjórnar og þeim ekki sagt upp störfum í hag­ ræðingarskyni á síðasta kjörtímabili. Þannig er öllum þeim fjölda starfs­ manna sem halda uppi opinberri þjónustu, ætlaðar ákveðnar póli­ tískar skoðanir. Í dagblaði nokkru er haft eftir formanni fjárlaganefndar: „Það voru enda ákvæði í nær öllum laga­ breytingum um sameiningar stofn­ ana í þá veru að starfsmenn héldu störfum. Ég hafði aldrei séð þennan lagaáskilnað fyrr en vinstri stjórn­ in komst til valda. Hún sækir enda fylgi sitt til þessara hópa. Það eru all­ ir sammála um að þegar stofnanir eru sameinaðar hefur það þessar af­ leiðingar.“ Í fyrsta lagi er það alls ekki óvanalegt að staðið sé við réttindi starfsmanna þegar breytingar verða í stofnunum, en það er ekki aðalat­ riðið hér, heldur hitt, að það glyttir í grímulausar hótanir í garð starfs­ manna. Ekki verður annað lesið út úr þessum orðum en það að starfs­ menn ríkisins séu of vinstrisinnað­ ir, þess vegna sé óhætt að segja þeim upp störfum. Ríkisútvarpið finnur til tevatnsins Nú gæti verið að þessi orð hafi hrot­ ið af vörum þingmannsins í ógætni og þá hljóta þau að verða leiðrétt. En þess er þó skemmst að minnast að sami þingmaður hafði nú síðsumars nokkuð kostuleg ummæli uppi sem sverja sig í þessa veru. Þá hafði við­ komandi lýst óánægju með frétta­ flutning Ríkisútvarpsins og aðspurð­ ur hvort þingmaðurinn hygðist taka hin meintu óvönduðu vinnubrögð fréttastofunnar lengra, gall við: „Ég er náttúrulega í þessum hagræðing­ arhópi.“ Sem sagt, ef Ríkisútvarpið hagar sér ekki í samræmi við það sem hentar stjórnvöldum, verður bara skorið niður, það skal þá finna til tevatnsins. Aftur hljóta menn að velta fyrir sér hvers konar lýðræðisandi það er sem svífur yfir vötnum. Mega fjölmiðlar spyrja stjórnmálamenn gagnrýninna spurninga? Mega þeir jafnvel hafa aðra sýn en stjórnmálamennirnir sem þeir ræða við? Eða felst lýðræðið í því að allir lúti vilja stjórnvalda? Brottrekstur boðaður Vissulega verður að tryggja stjórn­ málamönnum frelsi til að tjá skoð­ anir sínar, það er líka hluti lýðræð­ isins. En orðum fylgir ábyrgð, og ábyrgðin vex í samræmi við þau áhrif og völd sem menn hafa. Þess vegna leggja menn við hlustir þegar for­ maður fjárlaganefndar Alþingis tjá­ ir sig, hvort sem það er um væntan­ legan niðurskurð fjárveitinga til Ríkisútvarpsins vegna óánægju með fréttaflutning, uppsagnir opinberra starfsmanna vegna niðurskurðar op­ inberrar þjónustu eða ríkisábyrgð á skuldbindingum Íbúðalánasjóðs – eða skort á slíkri ábyrgð. Þeim orðum fylgir ábyrgð sem þingmaðurinn fær vonandi risið undir, og það sem meira er, vonandi einnig þeir þingmenn og stjórnmála­ flokkar, í umboði hverra formaður fjárlaganefndar starfar.n Gáð til veðurs Það getur verið frískandi að standa við sjávarkambinn og fá rokið beint í andlitið, eins og þessi manneskja virðist vera að gera vestur á Granda. Mynd SiGtRyGGuR ARiMyndin Umræða 13Miðvikudagur 6. nóvember 2013 „Ekki verður ann- að lesið út úr þessum orðum en það að starfsmenn ríkisins séu of vinstrisinnaðir Kjallari Árni Þór Sigurðsson þingmaður skrifar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.