Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Page 15
Sport 15Miðvikudagur 6. nóvember 2013
Bestu framherjapör
ensku deildarinnar
n Eiður Smári og Jimmy Floyd Hasselbaink í hópi þeirra bestu
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
F
ramganga þeirra Luis
Suarez og Daniel Sturridge
með Liverpool á yfirstand-
andi tímabili hefur ver-
ið tilefni vangaveltna um
bestu framherjapör í sögu ensku
úrvalsdeildarinnar. Saman hafa
þeir skorað 14 mörk í deildinni í
14 leikjum á þessu tímabili sem
er eins gott og það gerist. Vefmið-
illinn FTBpro tók fyrir skemmstu
saman lista yfir bestu framherj-
apör í sögu ensku úrvalsdeildar-
innar. Þarna er að finna kunnug-
leg nöfn og komast til dæmis Eiður
Smári Guðjohnsen og Jimmy Floyd
Hassebaink, sem gerðu garðinn
frægan með Chelsea, á listann.
Aðrir í þessum hópi eru minna
þekktir, að minnsta kosti fyrir
yngri kynslóðina, og má þar nefna
leikmenn eins og Niall Quinn og
Chris Sutton sem báðir voru frá-
bærir leikmenn. Á toppnum tróna
þó Andy Cole og Dwight Yorke en
þeir leiddu framlínu Manchester
United meðal annars þegar liðið
vann þrennuna árið 1999; ensku
úrvalsdeildina, Meistara deild
Evrópu og ensku bikarkeppnina. Ef
Suarez og Sturridge halda upptekn-
um hætti er aldrei að vita nema þeir
komi sér á þennan lista áður en
langt um líður. Þá er aldrei að vita
nema Robin van Persie og Wayne
Rooney geri tilkall til þess ef United
hrekkur í gang af fullum krafti. n
1 Dwight Yorke og Andy Cole
Manchester United
Það er í raun aldrei spurning
hvaða framherjapar er það besta
frá stofnun úrvalsdeildarinnar.
Yorke var keyptur frá Aston Villa
sumarið 1998 og small eins
og flís við rass í United-liðið
við hlið Andy Cole sem hafði
komið þremur árum áður. Þeir
skildu hvorn annan fullkomlega
þótt þeir væru vissulega ólíkir
leikmenn. Þeir skoruðu samtals
53 mörk tímabilið 1998/99 og
voru lykilmenn þegar liðið vann
þrennuna árið 1999. Þeir spiluðu
saman tvö tímabil til viðbótar en
yfirgáfu báðir United árið 2002.
2 Alan Shearer og Chris Sutton
Blackburn Rovers
Englendingarnir Alan Shearer og
Chris Sutton skoruðu samtals 49
mörk tímabilið 1994/95 og var það
frábær samvinna þeirra sem skilaði
Blackburn, flestum að óvörum,
úrvalsdeildartitlinum það árið.
Sutton hafði komið frá Norwich
árið 1994 þar sem hann vakti verð-
skuldaða athygli. Tímabilið á und-
an hafði hann skorað 25 mörk í 41
leik í úrvalsdeildinni. Þetta tímabil,
94/95, skoraði Shearer samtals 37
mörk en Sutton fylgdi á eftir með
21. Shearer hélt uppteknum hætti
næstu ár á meðan gengi Sutton
dalaði hratt.
3 Thierry Henry og Dennis Bergkamp
Arsenal
Frakkinn Thierry Henry og
Hollendingurinn Dennis Berg-
kamp eru líklega hæfileikaríkustu
leikmennirnir í þessari upptaln-
ingu. Þeir léku saman hjá Arsenal
í sex ár og unnu fjölda titla saman
undir stjórn Arsene Wenger:
úrvalsdeildartitla og bikartitla svo
dæmi séu nefnd. Bergkamp var
oftar en ekki sá sem skapaði færin
á meðan Henry sá um að klára
þau. Báðir áttu frábæran feril í
úrvalsdeildinni og verður þeirra
beggja minnst sem tveggja af
bestu leikmönnum í sögu úrvals-
deildarinnar.
4 Alan Shearer og Les Ferdinand
Newcastle
Alan Shearer gekk í raðir
Newcastle frá Blackburn árið 1996
þar sem hann hitti fyrir marka-
hrókinn Les Ferdinand. Því miður
spiluðu þeir aðeins eitt tímabil
saman, 1996/97, en það tímabil
voru þeir óstöðvandi. Saman skor-
uðu þeir 49 mörk og var Newcastle
býsna nálægt því að vinna ensku
úrvalsdeildina. Liðið endaði í 2.
sæti, sjö stigum á eftir Manchester
United sem varð Englandsmeist-
ari. Ferdinand skoraði 16 mörk í
deildinni en Shearer varð marka-
kóngur, einu sinni sem oftar, með
25 mörk.
5 Robbie Fowler og Stan Collymore
Liverpool
Luis Suarez og Daniel Sturridge
mynda líklega besta framherjapar
Liverpool frá því að Fowler og
Collymore voru upp á sitt besta.
Collymore samdi við Liverpool
árið 1995 og hitti fyrir hinn magn-
aða Robbie Fowler sem virtist geta
skorað að vild. Tímabilið 1995/96
skoruðu þeir saman 42 mörk í
deildinni og var það oftar en ekki
Collymore sem sá um að mata
Fowler ef hann skoraði ekki sjálf-
ur. Endir var bundinn á samstarf
þeirra árið 1997 þegar Collymore
var seldur til Aston Villa.
6 Niall Quinn og Kevin Phillips
Sunderland
Forráðamenn Sunderland væru
eflaust til í að hafa jafn góða fram-
herja í liðinu í dag og það var með
tímabilið 1999/2000. Þá voru Niall
Quinn og Kevin Phillips upp á sitt
besta en Sunderland-liðið hafði
komið upp í úrvalsdeildina vorið
1999. Þeir sáu til þess að Sunderland
náði 7. sætinu vorið 2000 og skoruðu
þeir félagar saman 44 mörk. Phillips
varð markakóngur deildarinnar og
raunar markakóngur Evrópu þetta
tímabil og er enn þann dag í dag
eini Englendingurinn til að ná þeim
árangri.
7 Eiður Smári og Jimmy Floyd Hasselbaink
Chelsea
Þeir voru gjarnan kallaðir eldur og
ís vegna þess hversu ólíkir leikmenn
þeir voru. Staðreyndin er þó sú að
Eiður Smári Guðjohnsen og Jimmy
Floyd Hasselbaink voru hin fullkomna
blanda; Jimmy kom frá Atletico
Madrid árið 2000 á 15 milljónir punda
en Eiður kom frá Bolton fjórum
dögum síðar á fjórar milljónir punda.
Tímabilið 2001/02 skoruðu þeir saman
52 mörk í öllum keppnum og endaði
Chelsea í 6. sæti það tímabilið. Tveim-
ur árum síðar, vorið 2004, endaði
Chelsea í 2. sæti deildarinnar þökk sé
framlagi þeirra félaga.
8 Andy Cole og Peter Beardsley
Newcastle
Andy Cole og Peter Beardsley
mynduðu ógnarsterkt sóknarpar á
fyrstu árum ensku úrvalsdeildar-
innar. Beardsley gekk í raðir
Newcastle frá Everton árið 1993
og sama ár kom Andy Cole, sem
þá var ungur að árum, til félagsins.
Saman skoruðu þeir 55 deildar-
mörk og varð Andy Cole marka-
hæstur með 34 mörk. Newcastle
endaði það tímabil í 3. sæti
ensku úrvalsdeildarinnar. Sam-
starf þeirra varði ekki lengi enda
keypti Manchester United Cole af
Newcastle árið 1995.
Magnaðir Cole
og Yorke mynduðu
hættulegasta fram-
herjapar í sögu ensku
úrvalsdeildarinnar.
Liverpool vill
ungstirni Barca
Liverpool og Tottenham eru sögð
vera meðal þeirra liða sem berj-
ast um hinn 21 árs gamla Sergi
Roberto, leikmann Barcelona.
Þessi ungi en mjög svo efnilegi
miðjumaður hefur fengið fá tæki-
færi hjá Spánarmeisturunum
enda hefur liðið á sínum snærum
marga af bestu miðjumönnum
heims. Spænska blaðið El Mundo
Deportivo greinir frá því að í
samningi Roberto sé klásúla um
að hann megi yfirgefa Barcelona
komi tilboð upp á 20 milljónir
evra, 3,3 milljarða króna. Spurn-
ingin er því hvort ensku liðin séu
reiðubúin að rífa upp veskið í
janúar.
Hópurinn
kynntur á
morgun
Á morgun ræðst hvaða leikmenn
verða þátttakendur í leikjum Ís-
lands og Króatíu sem fram fara
15. og 19. nóvember. Sú þjóð sem
hefur betur í viðureignunum
tveimur kemst á HM í Brasilíu á
næsta ári. Boðað hefur verið til
blaðamannafundar í höfuðstöðv-
um KSÍ þar sem Lars Lagerbäck
og Heimir Hallgrímsson tilkynna
val sitt. Um er að ræða mikilvæg-
ustu leiki landsliðsins frá upp-
hafi auk þess sem sjaldan hefur
verið meiri samkeppni um stöður
í liðinu. Forvitnilegt verður því að
sjá hverjir verða með og hverjir
bíta í það súra epli að þurfa að
sitja heima.
22 leikir í röð
án taps
Barcelona tekur á móti AC Milan í
kvöld í einum af stórleikjum fjórðu
umferðar í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar. Leikurinn fer fram á
Nou Camp, heimavelli Barcelona.
Fyrri leikur þessara liða í septem-
ber endaði með 1–1 jafntefli í
Mílanó. Barcelona hefur verið í
fínu formi að undanförnu og ekki
tapað í síðustu 22 leikjum sínum í
öllum keppnum. Síðasti tapleikur
liðsins var gegn FC Bayern í und-
anúrslitum Meistaradeildarinnar í
vor. Barcelona er á toppi spænsku
deildarinnar en AC Milan er í basli
í þeirri ítölsku þar sem liðið situr í
ellefta sæti.