Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Side 16
16 Lífsstíll 6. nóvember 2013 Miðvikudagur
Vinabönd á Fiðrildafögnuði
n Aðgöngumiðinn er táknrænn í ár
F
iðrildafögnuður UN Women
verður haldinn þann 14. nóvem-
ber og verður kvöldið í ár tileink-
að þolendum sýruárása. Allur
ágóði af kvöldinu rennur til Styrktar-
sjóðs Sameinuðu þjóðanna til afnáms
ofbeldis gegn konum. UN Women
vinnur að því að uppræta sýruárásir á
margvíslegan hátt. Auglýsingaherferð
samtakanna hefur vakið athygli en þar
sitja fyrir þekktar konur og hefur helm-
ingur andlits þeirra verið afmyndaður
með aðstoð myndvinnsluforrits. Frið-
rika Hjördís Geirsdóttir og Unnur Stef-
ánsdóttir leikkona eru meðal þeirra
sem birtast í herferðinni.
Fiðrildafögnuður UN Women er
mikill viðburður. Helsta listafólk Ís-
lands leggur samtökunum lið, þess á
meðal, dansarar Íslenska dansflokksins
sem sýna verk, landsþekktar leikkonur
verða með gjörning, Sigríður Thorlaci-
us og Högni Egilsson skemmta svo fátt
eitt sé nefnt. Þeir sem kaupa sér miða
á kvöldið fá sérstakt vinaarmband sem
gildir sem aðgöngumiði.
Vinaarmböndum fylgir aldagömul
hefð á Indlandi. Þegar boðið er til
veislu deilir gestgjafi ávallt vinaarm-
böndum til gesta sinna sem mæta síð-
an í veisluna með
armbandið.
Elínrós Lín-
dal var meðal
þeirra fyrstu sem
fékk sér arm-
band en vina-
armböndin eru
afhent í verslun
hennar ELLU á
Ingólfsstræti. n
kristjana@dv.is
Eldaði ofan
í tívolígesti
n Jóhannes Tryggvi ætlar í langþráð frí með nýbakaðri eiginkonu sinni
F
jölskyldufaðirinn Jóhann-
es Tryggvi Sveinbjörnsson
starfar sem stoðkerfismeð-
höndlari á virkum dögum. Á
kvöldin og um helgar fer hins
vegar allur hans metnaður í að elda
góðan mat og vonast hann nú til að
sigra í keppni um besta matarboð-
ið í sjónvarpsþættinum Borð fyrir
fimm.
„Ég tek þátt ásamt konunni
minni, Guðnýju Ósk,“ segir Jóhann-
es en þau Guðný gengu í hjónaband
1. júní síðastliðinn og vonast til að
geta nýtt sigurlaunin í brúðkaups-
ferð. „Það er ein milljón í verðlaun
og ef við vinnum, sem við gerum
auðvitað, þá skellum við okkur í
langþráð frí til Kaliforníu.“
Þeytt skyr eins og bragðarefur
Jóhannes og Guðný fengu dómar-
ana Svavar Örn, Ölbu og Sigga Hall
í heimsókn og hafði Jóhannes lagt
á sig mikla rannsóknarvinnu til
að maturinn felli þeim í geð. „Það
versta sem getur gerst er þegar mað-
ur hefur til dæmis eldað dýrind-
is lambalæri en matargesturinn af-
þakkar því hann borðar ekki lamb.
Ég reyndi því að sérsníða forréttinn
að Sigga Hall og hugsaði til Svav-
ars og Ölbu við gerð aðalréttarins.
Ég vissi að þau væru öll mikið eft-
irréttafólk og gerði því grimman
desert, súkkulaðiköku og þeytt skyr
með frosnum bláberjum, sem er
svakalega gott og verður alveg eins
og bragðarefur eftir góðan snúning
í blandaranum,“ segir Jóhannes sem
gefur lesendum DV.is uppskrift að
skyrísnum.
Starfaði sem tívolíkokkur
Jóhannes starfaði í mörg ár sem
kokkur, bæði hérlendis og erlend-
is. „Ég vann til dæmis á veitingastað
í Bláa lóninu og á skipinu (Freigát-
unni) í Tívolí í Kaupmannahöfn. Þá
var ég við nám í stoðkerfisfræðum og
vann samhliða náminu við að elda
ofan í tívolígesti. Þar var oft mik-
ill hasar, enda mættu í mat 250–300
manns á dag. Mér finnst hins vegar
mun skemmtilegra að nostra við
eldamennskuna og fylgja disknum
alla leið, svo nú nýt ég þess að elda
bara fyrir vini og vandamenn.“ Jó-
hannes sneri sér því frá kokkastörf-
um enda er nóg að gera í dagvinnu
Jóhannesar sem stoðkerfismeð-
höndlari. „Það er fullbókað alla daga
hjá okkur á Postura. Ég hjálpa fólki
með stoðkerfið og leiðrétti skekkjur
í líkamanum.“ Jóhannes segist hafa
skráð þau í þessa keppni til þess að
vinna og hefur góða tilfinningu mið-
að við hversu vel matarboðið gekk.
„Ég veit ekki hvernig það verður að
sjá þetta í sjónvarpinu, ég fæ eflaust
svakalegan kjánahroll, en ég er alla-
vega byrjaður að skoða flugmiðann
til Kaliforníu,“ segir Jóhannes hlæj-
andi að lokum. n
Vilja til Kaliforníu
„Það er ein milljón
í verðlaun og ef við
vinnum, sem við gerum
auðvitað, þá skellum
við okkur í langþráð frí
til Kaliforníu.“
Aðstandendur Fiðrildaviku
Aðstandendur Fiðrildaviku eru komnir
með fallegu vinaböndin. Til siðs er að
láta góða vinkonu binda það á sig.
Ella Ella var
með þeim fyrstu
til að setja upp
vinaband og fékk
góða vinkonu
sína til að binda
það á sig.
Einfaldar
hárgreiðslur
Flesta langar til þess að breyta
stöku sinnum til án mikillar fyrir-
hafnar. Þessar hugmyndir að ein-
földum hárgreiðslum tók vefsíðan
Sheknows.com saman.
Einfaldur hnútur Hér er hárinu safnað
saman uppi á hvirflinum og hárinu snúið í
hnút, listin er að nota hárpinna til að fela
lausa enda og festa hnútinn. Hafið hann
lausan í sér fremur en fastan.
Hárband Setjið á ykkur hárband og haf-
ið hárið lauslega greitt. Festið svo hárið
upp með hárspennum yfir hárbandið.
Flétta og hnútur Hér er hárið fléttað á
hvolfi upp á hvirfilinn og hárinu svo snúið í
hnút. Skemmtileg greiðsla.
Falskur bob Konur með sítt hár dreymir
gjarnan um að fara í klippingu. Hér er sítt
hár fest svo það virðist vera stutt.
Þunglyndi í
kjölfar kreppu
Almenn ánægja fólks, í þeim lönd-
um sem urðu verst út úr efna-
hagsþrengingunum sem hófust á
haustmánuðum 2008, minnkaði
talsvert í kjölfar niðursveiflunn-
ar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
OECD, efnahags- og framfarastofn-
unarinnar. Ef borin eru saman
árin 2007 og 2012 sést að ánægja
fólks minnkaði mest á Grikklandi,
Spáni og Ítalíu – í þessari röð. Þess-
ar þjóðir fóru allar illa út úr efna-
hagsniðursveiflunni. Ánægja fólks í
Ástralíu, Kanada, Danmörku, Nor-
egi, Svíþjóð, Sviss og Nýja-Sjálandi
jókst hins vegar umtalsvert á þess-
um tíma. „Skýrslan ætti að vera
okkur öllum vakning,“ sagði Angel
Gurria, framkvæmdastjóri OECD,
um niðurstöðurnar og bætti við að
markmið allra þjóða hlyti að vera
að bæta líf þegna sinna.
Skyrís
n 250 gr frosin bláber
n 250 gr hrært skyr
n 1 msk. hunang
n Nokkur lauf af myntu
n Sykur
Setjið allt í blandara og
maukið saman. Það þarf
að hafa snarar hendur við þennan eftirrétt.
Eftirrétturinn er settur í smáskálar og inn
í frost í nokkrar mínútur. Borið fram með
jarðarberjum og bláberjum. Jarðarberin
skorin í 4 hluta, smá sykri og myntu bætt
við og blandað saman. Látið standa í 2 tíma
í kæli (reglulega velt með skeið).