Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Page 18
S
nyrtimeðferðir geta sligað
pyngjuna. Sér í lagi meðferð-
ir sem ganga út að hreinsa
og styrkja húðina. Fáir vita
að í eldhúsinu leynast ódýr-
ar og afskaplega góðar snyrtivörur
sem duga vel til þess að losa húð við
dauðar húðflögur og gera hana um
leið áferðarfallegri. Hér eru fjórar
þeirra allra bestu.
1 1. Sykur Fíngerður hvítur sykur er
algengt innihald í skrúbbum
sem seldir eru til fegrunar. Stærð
sykurkornanna er tilvalin til þess að
skrúbba burtu dauðar húðflögur án
þess að særa húðina. Sykur er einnig
góður í skrúbba vegna þess að hon-
um er auðvelt að blanda saman við
önnur innihaldsefni.
n Fyrir bólgur í húð: Sykur, hunang,
sítrónusafi og tetrjáolía.
n Fyrir þroskaða húð: Sykur, dökkt
kakóduft, kókosolía og möndluolía.
n Til að jafna húðlit: Sykur, papaja,
hunang og tómatar.
n Klassískur sykur-skrúbbur:
Sykur og kókosolía.
2 Salt Ef þú glímir við bólur eða feita
húð ættir þú að prófa salt. Salt virkar
gegn bakteríum og þurrkar húðina
lítið eitt og þess vegna er það mátt-
ugt í baráttunni við bólur og bólgur.
Prófaðu að bæta þessum innihalds-
efnum við saltið til þess að búa til
skrúbb sem vinnur á bólum.
n Aloe Vera-gel
n Eplaedik
n Grænt te
n Maukaður papaja-ávöxtur
n Sítrónusafi (bættu við smá
kókosolíu)
n Hunang
n Grísk jógúrt
Ef þú vilt búa til maska sem er jafn-
vel enn kraftmeiri skaltu leysa upp
salt í heitu vatni, bæta síðan öðrum
innihaldsefnum við og að síðustu
nokkrum saltkornum.
3 Kaffi Kaffi-skrúbbur ilmar vel
og örvar húðina. Það stuðlar að
endurnýjun húðarinnar, fjarlægir
dauðar húðfrumur og virkar vel á
bauga undir augum. Gott er að nota
kaffi-skrúbb á andlit einu sinni til
tvisvar í viku. Ekki skemmir fyrir
að skrúbburinn er hressandi og
vekur þreytta rækilega til lífsins í
morgunsturtunni.
Hér eru nokkrar hugmyndir.
n Til mýkingar: Kaffikorgur, ólífu-
olía og hunang.
n Fyrir þroskaða húð: Kaffikorgur,
bláber (maukuð) og jojoba-olía.
4 Haframjöl Þeir sem þjást af kláða eða
exemi ættu að prófa haframjöl. Það
er ekki eingöngu gott til að hreinsa í
burtu dauðar húðflögur heldur róar
það órólega húð.
Haframjöl er mildasta snyrtivaran
af þeim sem hafa verið taldar upp
hér og hefur líka þann eiginleika að
hreinsa húðina vel. Það er mjög gott
og slakandi að nota heitt vatn til þess
að bleyta í höfrunum áður en þeir
eru notaðir.
n Klassískur hafra-skrúbbur:
Haframjöl og heitt vatn.
n Róandi skrúbbur: Haframjöl,
rósavatn og gúrka (maukuð).
n Slakandi skrúbbur: Haframjöl,
kamillute og jojoba-olía.
n Rakagefandi skrúbbur: Hafra-
mjöl, kókosmjólk og hunang.
n Nærandi og styrkjandi skrúbb-
ur: Haframjöl, bláber (maukuð),
ólífuolía og hunang.
18 Lífsstíll 6. nóvember 2013 Miðvikudagur
Góðar snyrtivörur
beint úr eldhúsinu
n Ódýrir, hollir og góðir líkamsskrúbbar n Hressandi og mýkjandi
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Hollar snyrtivörur Þær
snyrtivörur sem finna má í
eldhúsinu heima eru hollar og án
aukaefna og hafa góða virkni.
Avókadóolía
í hárið
Nú eru hárolíur í tísku, en besta
leiðin til að næra hárið er með
náttúrulegum hárolíum. Ein
allra besta olían til að næra hár-
ið er avókadóolía. Sú olía nærir
hárið að innan sem utan og gef-
ur glansandi áferð. Ekki skemm-
ir fyrir að olían er afskaplega
næringarrík og góð á salöt.
Er hægt að sofa
of mikið?
Flestir vita að of lítill svefn getur
valdið alvarlegum heilsufars-
vandamálum, en er hægt að sofa
of mikið?
Ný rannsókn gefur til kynna
að of mikill svefn valdi jafn alvar-
legum vandamálum og of lítill
svefn.
Rannsóknin var framkvæmd
á Centers for Disease Control í
Bandaríkjunum og þar kom í ljós
að of mikill svefn leiddi til hjarta-
vandamála og sykursýki, hærri
blóðþrýstings og aukinnar hættu
á heilablóðfalli. Jafnvel meiri en
hjá þeim sem sofa of lítið.
Rannsóknin tók til 54,269
karla og kvenna, 45 ára og eldri.
Of lítill svefn var skilgreind-
ur sem sex tímar og minni og
of mikill 10 klukkustundir eða
meira. Í rannsókninni kom fram
að æskilegastur svefntími er á
milli sjö og níu tímar á nóttu.
Rannsakendur taka fram að
enn sé margt á huldu hvað varð-
ar áhrif svefntíma á heilsu en
segja vísbendingarnar gefa fullt
tilefni til að varast of langan
svefn.