Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Síða 19
Menning 19Miðvikudagur 6. nóvember 2013 Gömul sannindi og ný S kiptir máli eftir hvern lista­ verk er, svo framarlega sem það er gott? Og hver á að dæma um það hvað telst gott listaverk? Hver er munurinn á list Jackson Pollocks og nafnlausa málarans sem gerir vinsæl portrett af grátandi dreng eða suðrænni konu og hægt er að kaupa á þúsundkall í Góða hirðinum? Og hvenær vit­ um við hvort málverk eftir meistar­ ana eru fölsuð? Eru sérfræðingarnir í listum ekki bara til þess að fjárfest­ arnir getir verið öruggir um að listin sem þeir hafa safnað haldi örugglega verðgildi sínu? Leikritið um Pollock eftir Steph­ en Sachs sem nú er sýnt í Kassa Þjóðleikhússins snýst nokkurn veg­ inn um þessar spurningar. Kringum­ stæður leiksins eru ósköp einfaldar; hámenntaði listfræðingurinn Lionel heimsækir fyrrverandi barþjóninn Maud sem býr í hjólhýsi, til að ganga úr skugga um hvort málverk sem hún á í fórum sínum sé eftir einn þekktasta málara Bandaríkjanna á síðustu öld, Jackson Pollock. Ekki aðeins varð Pollock þekktur fyrir sér­ stakar aðferðir sínar við listsköpun­ ina, heldur hafa málverk hans selst fyrir hæstu upphæðir sem um getur í heimi listanna. Að búa með málverki Maude, hvít lágstéttakona með vondan listrænan smekk, býr í hjól­ hýsi og er ekki öll þar sem hún er séð. Bak við kitsið og skranið sem hún hefur sankað að sér og ein­ falt er að dæma hana af, er mann­ eskja sem veit lengra en nef hennar nær. Snobbaði listfræðingurinn sem kemur á einkaþotu listastofnun­ ar til að gera úttekt á málverki sem Pollock hefur hugsanlega málað, er líka mannlegur inn við beinið, þótt hann sé óttalega rúðustrikaður í upphafi leiks. Hér takast lærð þekk­ ing og tilfinningar hressilega á um smekk og viðhorf í listum og menn­ ingu. Þannig gæti leikritið um Poll­ ock alveg eins verið um akademíska leiklistargagnrýnandann og Gunnu kennara, konuna hans Jóns renni­ smiðs í Sandgerði, sem þrátt fyr­ ir allt lætur ekki misvísandi gagn­ rýni segja sér hvað hún á að sjá í leikhúsinu. Hún lærir smám saman sjálf hvað henni finnst gott og vont í þeim efnum, rétt eins og Maude sem hefur lært að meta list Poll­ ocks með því að búa með málverki sem hún er sannfærð um að er eft­ ir hann, hvað sem listfræðingurinn segir. Maude hefur gengið sinn eig­ in menntaveg og þarf ekki að láta einhvern afdankaðan menntamann segja sér fyrir verkum þegar kem­ ur að því að meta raunverulegt gildi listarinnar sem felst í öðru en verð­ gildi hennar. Það eru gömul sann­ indi og ný. Fátt sem kemur á óvart Auðvitað varð Þjóðleikhúsið að setja upp leikrit um einn frægasta list­ málara Bandaríkjanna á síðustu öld, fyrst Borgó var búið að setja upp leikrit um annan jafn frægan. Að vísu er Pollock ekki á sviðinu eins og Rothko, en verkið er engu að síður um hann og málverkin hans. Bæði þessi verk sverja sig í sömu ættina, þau eru það sem kallað hef­ ur verið „the well made play“ – þau eru vel skrifuð samkvæmt formúl­ unni. Höfundurinn heldur vel utan um persónusköpun, það er þægi­ leg framvinda í verkinu og sagan er skemmtileg en ekki síst hlý og mannleg. Verkin sýna okkur óvænt­ ar hliðar á persónum sem í upphafi eru á öndverðum meiði, virðast ein­ faldar og lítilsigldar og/eða þröng­ sýnar og hrokafullar en mætast svo á miðri leið þegar þær fella grímurnar og leyfa okkur að skyggnast inn í for­ tíð sína og einkalíf. Um leið afhjúpa þær gagnkvæma fordóma hvor um aðra og andúð áhorfenda breytist í samúð eða öfugt. En allt er þetta einhvern veginn svo fyrirsjáanlegt, það er fátt sem kemur á óvart en þetta eru einmitt leikritin sem enn halda leikhúsunum gangandi. Á þekktum nótum Eins og í leikritinu sjálfu, kemur fátt á óvart í sviðsetningunni. Hér eru engin sérstök tíðindi á ferð, það geta allir farið að sjá þessa sýningu án þess að lesa það sem um hana er skrifað, hún gerir engar sérstakar kröfur til áhorfenda. Hún er fyrst og fremst ætluð til að skemmta þeim og hún gerði það á frumsýningu, vegna þess að leikararnir tveir, þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Pálmi Gestsson, eru fyrir löngu orðnir landsþekkt­ ir fyrir gamanleik sinn og hreint dá­ samlega leikhæfileika. Það hefði þó verið gaman að sjá þau bregða að­ eins út af sporinu, sýna á sér nýjar hliðar en kannski gaf verkið ekki til­ efni til þess. Þau sigldu bara áfram á sínum þekktu nótum, hreyfingar, látbragð og tímasetningar Ólafar Hrannar alveg pottþéttar, nokkuð sem hún er löngu orðin meistari í. Pálmi virtist í upphafi ætla að fara nýja leið, skapa alveg nýjan karakt­ er í safnið, en þegar kom að átökun­ um milli Lionels og Maude, var eins og allt færi í sama gamla farið, góð­ kunningi steig á svið með gamla vel þekkta takta, nema að leikstjórinn, Hilmir Snær Guðnason, hafi gef­ ið honum of lausan tauminn. Sér­ kennilegt annars hvað íslenskum leikurum tekst oft að breyta dramatík í bægslagang, nema bægslin séu bara innifalin í úrelt­ um en síendurteknum natúralisma dramatíska leikhússins? Snotur sýning Þýðing Mikaels Torfasonar var nú­ tímaleg og skemmtilega kjaftfor og leikararnir nýttu sér hnyttnina í texta hans í mörgum sprenghlægi­ legum tilsvörum. Sviðsmyndin, hjólhýsið þar sem leikurinn fer fram, er verk Helgu I. Stefánsdóttur, nokkuð nákvæm eftirlíking af inn­ volsi slíkrar vistarveru, en kannski óþarflega fyrirferðarmikið í þessu litla verki. Áhorfendur fá á tilfinn­ inguna að þeir liggi á hleri þar sem fjórði veggurinn hefur verið sagaður út úr framhlið hjólhýsisins. Helga er einnig búningameistari verksins og eltir viðteknar klisjur um fatasmekk persónanna, Maude í ódýrum gervi­ efnum á gullskóm, dálítið hall­ ærisleg, Lionel í dýrari fatnaði með þverslaufu og í leðurskóm, dæmig­ erður klæðaburður menntamanns­ ins. Málverkið eftir Pollock sem allt snýst um er verk Victor Cilia og eitt fallegasta atriði sýningarinnar er undir lokin þegar Maude er aft­ ur orðin ein með Pollock sínum og málverkið lifnar við með viðeig­ andi leikhúsbrellum svo sérkenni­ legir undraheimar Pollocks koma í ljós. Þetta er svona eins og sagt er í fasteignaauglýsingunum, snotur og snyrtileg sýning, sem þýðir að það er allt í lagi að kíkja á hana. Síðan er spurning hvort maður endilega kaupir hana. n Lærð þekking og tilfinningar takast á Kringumstæður leiksins eru ósköp einfaldar; hámennt- aði listfræðingurinn Lionel heimsækir fyrrverandi barþjóninn Maud sem býr í hjólhýsi, til að ganga úr skugga um hvort málverk sem hún á í fórum sínum sé eftir einn þekktasta málara Bandaríkjanna á síðustu öld, Jackson Pollock. Mynd eddi@internet.iS Leiklist Hlín Agnarsdóttir Pollock Leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason Leikmynd og búningar: Helga I. Stefánsdóttir Lýsing: Halldór Örn Óskarsson, Magnús Arnar Sigurðarson Þýðing: Mikael Torfason Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson Myndbandshönnun: Arnar Steinn Friðbjarnarson, Helena Stefánsdóttir Sýnt í Kassanum „Eins og í leikritinu sjálfu, kemur fátt á óvart í sviðsetningunni Sýning fyrir náttúru- unnendur Magnús Hannibal Traustason og Dagbjört Matthíasdóttir opnuðu sína sjöttu myndlistarsýningu á Kaffi Loka síðastliðinn sunnudag. Maggi og Dagga hafa áður haldið sýningar í Gerðubergi í Reykja­ vík og Norðurporti á Akureyri, svo eitthvað sé nefnt. Hjónin vissu að eigin sögn ekki alveg hvað þau voru að fara út í þegar þau skráðu sig á helgarnámskeið í olíumál­ un fyrir sex árum, en síðan þá hefur listin skipað æ ríkari sess í lífi þeirra. Náttúruunnendur ættu að geta notið sýningarinnar en myndlist hjónanna byggir á fyrir­ myndum úr íslenskri náttúru. Sýningin mun standa yfir þangað til í lok nóvember. Hausttónleikar Skólahljóm­ sveitar Kópavogs Skólahljómsveit Kópavogs mun í dag miðvikudag, 6. nóvember, halda sína árlegu hausttónleika í Háskólabíói og hefjast þeir kl. 19.30. Á tónleikunum á miðvikudaginn koma fram þær þrjár lúðrasveit­ ir sem starfræktar eru undir nafni Skólahljómsveitarinnar og flytja fjölbreytta og skemmtilega tónlist. Þema tónleikanna er Bland í poka, þar sem tónlistin kemur úr öllum áttum og er af öllum stíltegundum. Meðal þess sem er á efnis­ skránni er óperutónlist eftir Verdi, í tilefni þess að í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu hans, popptónlist Michaels Jackson, frumsamin lúðrasveitatón­ list, djasstónlist Duke Ellington og klassík eftir Ravel. Mikil aðsókn er að jafnaði í Skólahljómsveit Kópavogs og við síðustu innritun voru fimm um­ sóknir um hvert laust pláss. Í helg­ arviðtali nýverið greindi Sóley Tóm­ asdóttir frá því hversu góð áhrif þátttaka hennar í sveitinni hafði á líf hennar. Ekki verður hægt að fjölga mik­ ið í sveitinni á næstunni þar sem æfingahúsnæði hljómsveitarinnar er nú þegar of lítið og rúmar varla þann fjölda sem þegar er viðloðandi starf hennar, en um 170 börn sækja æfingar hjá SK í viku hverri. Fyrirlestur um ísmanninn Norðmaðurinn dr. Torstein Sjövold mun á fimmtudag halda fyrirlestur um ísmanninn Ötzi sem fannst í ítölsku Ölpunum árið 1991. Fyrirlesturinn fer fram í Bókasal Þjóðmenningarhússins og hefst klukkan 16 og er að­ gangur ókeypis. Athygli er vak­ in á að fyrirlesturinn fer fram á ensku. Sjövold hefur verið virkur þátttakandi í rannsóknum á Ötzi og auk þess stundað rannsókn­ ir á manna­ og dýrabeinum úr fornleifarannsóknum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.