Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2013, Blaðsíða 22
R obin Lawley sat fyrir hjá Ralph Lauren og hefur setið á forsíðum ítalska Vogue en þegar mynd af henni birtist í korseletti á Facebook varð hún fyrir heiftarlegu aðkasti. Athugasemdir við myndina voru grófar: Svín, of feit og of þung. Lærin á Robin snertust og það fannst fólki óboðlegt. Robin hefur átt velgengni að fagna, hún hannar sundföt og hef- ur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir hönnun sína. Hún er með bein í nef- inu og svaraði grófum athugasemd- um fullum hálsi: „Þið sitjið bak við tölvuskjái og hlutgerið líkama minn, dæmið og gerið lítið úr honum án þess að gera ykkur grein fyrir því.“ Kúgunartæki Robin lét sér ekki nægja að svara athugasemdunum og skrifaði pistil í The Daily Beast í síðustu viku gegn þeim sem réðust að henni og sagði athugasemdirnar „kúgunartæki til þess að fá hana til þess að hætta að elska líkama sinn.“ Viðbrögð við greininni létu ekki á sér standa og Robin var boðið að tala um þráhyggjuna fyrir bili á milli læra í NBC Today-þættindum. Hún útskýrði hvað þetta ógnvænlega orð þýðir – „læragap“: „Þegar lærin snertast ekki þegar þú stendur með báða fætur saman.“ Hún segist hafa verið meðvit- uð um að slíkt gap á milli læra sé æskilegt frá 12 ára aldri og telur þrá- hyggjuna hafa undið upp á sig með tilkomu Instagram, Facebook og Twitter. Twitter-síða helguð læragapi Cöru Delevingne Á þessum samskiptamiðlum er vinsælt að taka sjálfsmyndir, og þá helst myndir sem sýna fegurð og gjörvileika. Læragapið á sér eigið „hashtag“ á Twitter og Instagram og þá er skrifað undir myndirn- ar: lærin snertast ekki. Á Twitter er meira að segja sérstök síða helguð læragapi ungu fyrirsætunnar Cöru Delevingne. Ýtt undir átröskun Önnur fyrirsæta í yfirstærð hefur rætt um þessa áherslu sem flestum konum reynist líkamlega ómögulegt að uppfylla. Naomi Shimada byrj- aði á barnsaldri í fyrirsætubransan- um og var þá tággrönn. Eftir því sem hún eltist breyttist líkami hennar og Naomi varð um tíma að hætta að sitja fyrir þar til hún ákvað að verða fyrirsæta í yfirstærð. „Þetta er ekkert nýtt, svona hefur þetta verið árum saman og kemur að hluta til frá tískuiðnaði sem vill ekki gangast við því að konur séu mis- jafnar í vexti,“ segir Naomi og bætir því við að iðnaðurinn sé í eðli sínu anorexískur og með því að nota að- eins grannar fyrirsætur ýti hann und- ir átröskun stúlkna og kvenna. Caryn Frankin, fyrrverandi tísku- þáttastjórnandi, hefur snúið ferli sín- um við og vinnur nú að því að minna á fjölbreytileika kvenna. Hún tók sterkt til orða: „Við erum nú hluti af menningu sem sannfærir konur um að það sé aðeins ytra byrðið sem skiptir máli. Ungar konur hafa ekki nægilega margar kvenfyrirmynd- ir sem sýna þeim annað, gáfur og gjörðir. Þeirra í stað eru lausklæddar stjörnur. Það er sorglegt, en ungar konur horfa til tískubransans og leita að leiðsögn um hvað það er að vera kona.“ Robin Lawley ætlar ekki að láta undan þessum þrýstingi, og segist vilja vera sterk með sterk læri. Hún vilji hlaupa hraðar og synda lengur. Þá vill hún vera sterk fyrirmynd dóttur sinnar. „Það síðasta sem ég vil er að dóttir mín svelti sig til þess að lærin snertist ekki þegar hún vex úr grasi.“ n 22 Fólk 6. nóvember 2013 Miðvikudagur Rihanna á toppnum sjö ár í röð R ihanna er þriðji tónlistar- maður sögunnar sem stát- ar af þeim árangri að hafa átt sjö lög á jafnmörgum árum á toppi vinsældalistans í Bretlandi. Nýjasta lag hennar, The Monster, hefur náð feikilegum vinsældum á skömmum tíma og situr ofarlega á vinsældalistum úti um allan heim. Rapparinn Eminem veitir henni liðsauka í laginu og má finna lagið á væntanlegri plötu kappans sem heitir The Marshall Mathers LP 2. Platan kemur út í næstu viku. Elvis Presley og hljómsveitin The Beatles hafa áður náð þess- um merkilega áfanga og telst The Beatles sem ein eining. Frá árun- um 1957–1963 náði Elvis að tróna á toppi vinsældalistans með sjö mis- munandi lög á sjö árum. Bítlarnir gerðu slíkt hið sama árin 1963–1969. Rihanna er 25 ára og hefur gefið út sjö plötur þrátt fyrir ungan ald- ur. Poppgyðjan er ein sú vinsælasta í heiminum og hefur starfað með þeim færustu í bransanum. Fræg- asta lag hennar er Umbrella sem hún söng eftirminnilega ásamt Jay -Z árið 2007 og lagði lagið grunninn að frægð hennar og frama. Það var einmitt fyrsta lag hennar sem komst á topp vinsældalistans á Bret- landseyjum. n ingosig@dv.is Fyrirsæta uppnefnd svín n Robin er sterk kona með sterk læri n Lætur ekki undan þrýstingi n Leikur eftir árangur Elvis Presley og Bítlanna Skeggjaðar stjörnur 1 Ryan Gosling Stórleikarinn og Íslandsvinurinn er einn dáðasti karlmaður heims, einkum af kvenþjóð- inni. Í gegnum tíðina hefur hann reglulega skartað föngulegu skeggi sem fer honum vel. Leikarinn er frægastur fyrir hlutverk sitt í Notebook, en í hluta myndarinnar var hann einmitt skeggjaður. 2 Johnny Depp Johnny Depp er uppátækjasamur og fer sínar leiðir þegar kemur að klæðaburði. Hann er óhræddur við að feta ótroðnar slóðir og er jafnan með smekk- legt og hógvært skegg. Johnny hefur gert karakterinn Jack Sparrow ódauðlegan með frábærum leik sínum í myndum um sjóræningja Karíbahafsins. 3 Brad Pitt Fjölskyldu- maðurinn Brad Pitt er einn sá allra svalasti í bransanum. Hann hefur gert ýmsar tilraunir með útlit sitt og ein þeirra er „kleinuhringlaga“ skegg sem hann skartaði á kvikmyndahátíð- inni í Cannes í ár. Kappinn er giftur hinni gullfallegu Angelinu Jolie. 4 Zach Galifianakis Það hafa allir hlegið með og að Zach. Leikarinn sló í gegn í Hangover sem Alan Garner og hlaut fjölmörg verðlaun fyrir leik sinn í kjölfarið. Zach er augljóslega áhugamaður um skegg, en myndarlegt alskegg hans er sjaldséð í kvikmyndaheiminum vestanhafs. 5 Dumbledore Skólastjóri Hogwarts í myndun- um um Harry Potter verður að fá að fylgja með. Dumbledore skartar síðu hvítu skeggi. Hann er helsta stoð og stytta Harrys í myndunum og býr yfir ógurlegri visku sem margir leggja traust sitt á. Óstöðvandi Vinsældir Rihönnu virðast engum tak- mörkunum háð. topp 5 Vill vera sterk Robyn segist vilja synda lengra og hlaupa hraðar og ætlar ekki að láta undan þrýstingi um að hún þurfi að vera grennri. Myndin sem birtist á Face- book Þessa mynd birti Robyn á Facebook og var fyrir vikið uppnefnd svín. „Það síðasta sem ég vil er að dóttir mín svelti sig til þess að lærin snertist ekki þegar hún vex úr grasi. Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is Vann sigur á mis- heppnaðri hátíð Rapparinn Eminem var valinn listamaður ársins á tónlistarhá- tíð Youtube sem fór fram í fyrsta skipti um helgina. Hátíðin var haldin í London. Listamaður ársins er valinn samkvæmt vinsældum á tónlistarvefsíðunni og úrslitum kosningar sem fór fram á vefsíð- unni. Hátíðin var aðeins 90 mínútur og hefur verið þónokkuð gagn- rýnd fyrir skipulagsleysi. Youtu- be var með beina útsendingu frá hátíðinni, sem 220 þúsund manns horfðu á, en fjölmargir kvörtuðu yfir því á samskiptamiðlinum Twitter að útsendingin hafi hökt. Einhverjir sögðust aldrei hafa séð jafn slæma verðlaunahátíð áður á lífsleiðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.