Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1928, Síða 8
6
Verslunarsl<ýrslur 1925
Heildarverðupphæð inn- og útflutnings er eigi aðeins komin undir
vörumagninu, heldur einnig því, hvort vöruverðið er hátt eða lágt. Eftir-
farandi vísitölur sýna breytingar verðsins og vörumagnsins síðan fyrir
stríðið (verðið 1913 — 14 = 100 og vörumagn 1914 = 100). í Versl-
unarskýrslum 1924 bls. 7* er skýrt frá, á hverju vísitölurnar eru bygðar.
Verðvísitölur, Vörumagnsvísitölur,
nombre-indices de prix notnbre-indices de quantiíé
Innflutt, Útílutt, Innflutt, Útflutt,
import. export. import. export.
1914 100 104 100 100
1915 141 175 97 112
1916 184 201 116 100
1917 286 217 76 57
1918 373 247 61 75
1919 348 333 97 112
1920 453 258 88 116
1921 270 203 90 117
1922 226 188 126 133
1923 242 176 115 163
1924 246 249 142 172
1925 211 224 181 173
Tveir fremri dálkarnir sýna verðbreytingarnar. Bera þeir með sjer,
að 1925 hefur verðið lækkað bæði á innflutnings- og útflutningsvörunum,
en tiltölulega meir á hinum fyrnefndu og hefur ekki verið jafnhagstætt
hlutfall milli útflutningsverðs og innflutningsverðs síðan 1916.
Tveir aftari dálkarnir sýna breytingarnar á inn- og útflutnings-
magninu miðað við 1914. Samkvæmt því hefur útflutningsmagnið 1925
verið jafnmikið eins og 1924 og hefur því lækkunin á verðmagni út-
flutningsins einungis stafað af lækkuðu vöruverði. Aftur á móti hefur
vörumagn innflutningsins vaxið mikið, enda hefur verðmagnið hækkað
stórlega, þrátt fyrir mikla verðlækkun.
2. Innfluttar vörutegundir.
Importation des marchandises.
Tafla II A (bls. 2—28) sýnir, hve mikið hefur flust til Iandsins af
hverri vörutegund. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir efni og skyldleika
þeirra. En í töflu 1 (bls. 1) er yfirlit yfir verðmagn innflutningsins í
öllum vöruflokkum.
í 1. yfirliti eru vörurnar aftur á móti flokkaðar eftir notkun þeirra.