Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1928, Side 11
Vérslunarskýrslur 1925 9*
1921 1922 1923 1924 1 925
Smjörlíki 250 234 116 47 41
Niðursoðin mjólk .. 446 361 288 313 302
Ostur 92 93 79 84 123
Egg 16 28 38 23 42
Skipsbrauð 88 85 141 160 225
Kringlur og tvíbökur 11 27 20 16 21
Kex og kökur 101 169 79 46 120
Kartöflur 1 627 2 332 1 872 2014 2 329
Epli ný 69 108 109 117 150
Appelsínur 40 134 99 18 168
Rúsínur 63 77 75 73 108
Sveskjur 75 84 88 115 137
Kartöflumjöl 51 75 56 92 98
Ávextir niðursoðnir 18 27 17 2 42
Sýltaðir ávextir og ávaxtamauk 37 42 45 28 52
Sagógrjón og sagómjöl 70 55 58 73 84
Munaðarvörur hafa verið kallaðar þær neysluvörur, sem ekki hafa
verið taldar nauðsynjavörur, svo sem kaffi, te, súkkulað, sykur, tóbak,
áfengir drykkir, gosdrykkir o. fl. Þetta eru þær vörur, sem tollarnir hafa
aðallega verið lagðir á, enda þótt sumar þeirra megi nú orðið telja til
nauðsynjavara, svo sem sykur. Af þessum svokölluðu munaðarvörum
nam innflutningurinn árið 1925 tæpum 6 milj. kr. eða um 8V2°/o af öllum
innflutningnum. Er það töluvert lægra hlutfall heldur en undanfarin ár.
2. yfirlit (bls. 10*) sýnir, hve mikið hefir flust til landsins af helstu
munaðarvörunum á hverju 5 ára skeiði síðan um 1880 og á hverju
ári síðustu 5 árin, bæði í heild sinni og samanborið við mannfjölda.
Brennivín er talið með vínanda, þannig að lítratala brennivínsins er
helminguð, þar eð það hefur hjerumbil hálfan styrkleika á við hreinan
vínanda, svo að tveir lítrar af brennivíni samsvara einum lítra af vinanda.
A yfirlitinu sjest, að árið 1925 hefur aukist innflutningur á öli,
vínum og tóbaki, en minkað á sykri. En innflutningur á vínanda og kaffi
hefur verið svipaður eins og næsta ár á undan.
Innflutningur á sykri hefur vaxið afarmikið á síðustu 40 árum.
Neyslan á mann hefur meir en ferfaldast og er nú orðin yfir 30 kg á
mann (35 kg 1925). Er það mikið samanborið við önnur lönd. Um sama
leyti var hún 35 kg á Bretlandi, 33 kg í Svíþjóð og 25 kg í Noregi,
og þaðan af minni í flestum löndum Norðurálfunnar, nema í Danmörku.
Þar var hún 50 kg. í Bandaríkjum Norður-Ameríku og Nýja Sjálandi
var hún líka meiri (51 og 46 kg).
Innflutningur á kaffi og kaffibæti hefur aukist töluvert síðan um
1890. 1886—90 komu ekki nema 4 kg. á mann að meðaltali, en 1916—20
meir en 7 kg. Síðustu árin hefur innflutningurinn þó verið heldur lægri.