Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1928, Page 24
22
Verslunarskýrslur 1925
verslunarviðskiflum landsins við útlönd hefur síðustu árin komið á Reykja-
vík, mjög nálægt helmingnum af útflutningnum, en um 3/5 af innflutn-
ingnum. A hina kaupstaðina hefur komið lk af innflutningnum og !/3 af
útflutningnum, en á verslunarstaðina um Vö bæði af innflutningi og
útflutningi.
Tafla VII (bls. 94—95) sýnir, hvernig verðmagn verslunarviðskift-
anna við útlönd skiftist á hina einstöku kaupstaði og verslunarstaði árið
1925. I eftirfarandi yfirliti eru talin upp þau kauptún, sem komið hefur
á meira en 1 °/o af verslunarupphæðinni og er sýnt hve mikill hluti
hennar fellur á hvert þeirra.
Innflutt Útflutt Samtals
Reykjauík 58.3 °/o 49.1 % 53.5 o/o
Akureyri 6.5 — 8.0 — 7.3 —
Siglufjörður 4.4 — 9.1 — 6.9 —
Vestmannaeyjar 4.4 — 7.1 — 5.8 —
Isafjörður 3.6 — 5.1 — 4.4 —
Hafnarfjörður 4.2 — 2.6 — 3.4 —
Nes í Norðfirði 1.5 — 3.5 — 2.5 —
Seyðisfjörður 1 9 — 2.2 — 2,o —
Þingeyri 0.5 — 1.4 — 1.0 —
Aðrir verslunarstaðir 14.7 — 11.9 — 13.2 —
Samtals lOO.o % lOO.o % lOO.o %
í töflu VII er tilgreint, hve mikið af innflutningi og útflutningi hvers
staðar hefur farið gegnum póst. Gætir þess mjög lítið í útflutningi, en tölu-
vert í innflutningi. Samkvæmt skýrslu þessari hefur innflutningur í pósti
árið 1925 numið 1.9 milj. kr. eða um 2.7 °/o af öllum innflutningnum.
I töflu VIII (bls. 96—100) er yfirlit um vörumagn innfluttra og
útfluttra tollvara og hvernig það skiftist á einstök tollumdæmi. Vörumagnið
kemur hjer ekki nákvæmlega heim við það, sem talið er í II. töflu (bls,
2—33), enda stafa tölurnar frá mismunandi skýrslum, í II. töflu frá versl-
unarskýrslum, en í VIII. frá tollskýrslum. En víðasthvar er samt mis-
munurinn ekki mikill.
7. Tollarnir.
Droits de douane.
Á bls. 101 —102 er yfirlit yfir tolltekjur ríkissjóðs árið 1925 og er
þar sýnt, hve mikill tollur hefur komið á hvern einstakan tolllið. 7. yfirlit
(bls. 23*) sýnir tollupphæðirnar í heild sinni og hvernig þær skiftast á
aðaltollana að meðaltali árlega á hverjum 5 árum síðan um aldamót og
á hverju ári síðustu árin. Tollupphæðirnar eru taldar hjer eins og þær
eru lagðar á vörurnar, en innheimtulaun ekki dregin frá. Heldur er ekki
tekið tillit til þess, þótt eitthvað af tollinum sje endurborgað aftur. Toll-