Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1930, Qupperneq 13
Verzlunarskýrzlur 1928
11
loka, var innlenda framleiðslan af kaffibæti 22 376 kg, en 39 319 kg
árið 1928.
Innflutningur á tóbaki hefur lítið vaxið á undanförnum árum og
samánborið við mannfjölda hefur tóbaksneyzla hérumbil staðið í stað.
Arið 1926 var þó óvenjulega mikill innflutningur af tóbaki, enda var
það fyrsta árið eftir að tóbakseinkasalan var afnumin.
Innflutningur á áfengu öli (með yfir 2]/4°/o af vínanda að rúmmáli)
hefur verið bannaður síðan 1912, en framan af stríðsárunum gerðist
innflutningur á óáfengu öli allmikill og eins fyrstu árin eftir stríðslokin,
en síðustu árin hefir hann farið minnkandi, enda er nú líka komin á
innlend framleiðsla í þessari grein. I töflunni er innlenda framleiðslan
tekin með síðan 1919. Árið 1928 var hún 452 600 lítrar. Það ár var
neyzlan af öli meiri heldur en að meðaltali árin 1906—10.
Vínandi og vínföng eru einungis flutt inn af Áfengisverzlun ríkisins.
Var þessi innflutningur mjög lítill fyrst eftir að aðflutningsbannið komst
á, en síðan hefur hann aukist töluvert. Hækkunin á vínfangainnflutningn-
um 1922 og árin þar á eftir stafar af undanþágunni, sem veitt var frá
bannlögunum fyrir létt vín (Spánarvín). Mengaður vínandi er ekki talinn
hér, heldur í V. flokki.
Vefnaður og fatnaður. Af þeim vörum, sem hér eru taldar, var
flutt inn árið 1928 fyrir rúml. 10 milj. kr. og er það nál. 16 °/o af öllum
innflutningi það ár. Er það með meira móti í samanburði við næstu
undanfarin ár. Helztu vörur, sem falla hér undir, eru taldar hér á eftir,
og sýnt, hve mikið hefur fluzt inn af þeim nokkur síðustu árin (í þús. kg).
1924 1925 1926 „ 1927 1928
Ullargarn 13 18 12 n 10
Baðmullargarn og tvinni . 13 14 10 9 12
Ullarvefnaður 51 83 63 48 57
Baðmullarvefnaður 109 163 114 96 124
Léreft 71 68 49 41 53
Prjónavörur 30 61 54 58 73
Línfatnaður 6 18 18 19 18
Karlmannsfatnaður úr ull. 11 31 30 26 26
Karlmannsslitfafnaður . .. . 10 23 28 25 53
Kvenfatnaður 2 4 4 8 13
Sjóklæði og olíufatnaður . 56 51 42 34 41
Regnkápur 5 16 12 9 9
Skófatnaður úr skinni .. . 51 85 86 82 106
— — gúmi 70 132 100 70 114
— — öðru efni. 11 20 17 8 16
Heimilismunir og munir til persónulegrar notkunar. Innflutningur
vörum þeim, sem þar til teljast, nam 4'/4 milj. kr. árið 1928 eða