Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1938, Blaðsíða 13
Verslunarskýrslur 1936
9*
framleiðsluvaranna. V. flokkurinn er þó blandaður. Kol og steinolía, sem
þar eru talin, ganga að nokkru levti lil heimilisnotkunar og falla að því
leyti undir neysluvörur. En vörur þessar eru að meira ieyti notaðar ti!
framleiðslu og gætir þess æ meir eftir því sein stundir líða. Hlutfallið milli
neysluvara og framleiðsluvara verður þannig, ef þessi skifting er látin
nægja:
Neyslu- Framleiöslu- Neyslu- Framleiðslu
vörur vörur vörur vörur
1916- 20 . . . , . 46.8 °/o 53.8 °/o 1933 . . . . 39.4 °/o 60.o °/o
1921 25 . . , , . 47.8 - 52.i — 1934 . . . . 36,o 64.o —
1926 30 . . , . . 42.8 - 57.2 — 1935 , . . . 34.8 65.2 —
1931- 35 . . , , . 38.0 - 61.8 - 1936 , ... 31.i 68.9 —
Síðuslu árin hefur hlutdeild framleiðsluvaranna aukist, en neyslu-
varanna lækkað, svo að neysluvörurnar nema nú siðast aðeins tæpl. V?,
af innflutningnum, en framleiðsluvörurnar rúml. %.
Flokkun eftir notkun varanna er töluverðum erfiðleikum bundin, því
að oft er sama varan notuð margvíslega og þá álitamál, í hvaða flokk skuli
skipa henni, enda er líka slík flokkaskipun töluvert mismunandi í versl-
unarskýrslum ýmsra landa. Er það bagalegt, ef gera á samanburð Ianda
á milli, og því hefur Þjóðabandalágið í sambandi við hina alþjóðlegu vöru-
skrá sína gert fyrirmynd að töflu, þar sem vörurnar eru flokkaðar eftir
notkun og vinslustigi. Flokkun eftir þessari fyrirmynd fyrir árið 1936 er
í 3. yfirliti og em aðaltölurnar fyrir árið á undan teknar lil samanburðar.
Vörunum er þar skift eigi aðeins eftir notkun, heldur einnig eftir vinslu-
stigi, i hrávörur, lítt unnar vörur og allunnar vörur. Hrávörurnar teljast
afurðir af náttiíruframleiðslu (landbúnaði, skógrækt, fiskveiðum, dýra-
veiðum og námugrefti), sem ekki hafa fengið neina verulega aðvinslu,
en geta þó sumar hverjar verið hæfar lil neyslu. Sama máli er að gegna
um ýmsar lílt unnar vörur, sem fengið hafa nokkra aðvinslu, þó að þær
eins og hrávörurnar séu einkum notaðar lil framleiðslu. Samkvæmt yfir-
litinu hefur rúml. helmingur innfluttu varanna (að verðmæti) verið
fullunnar vörur, rúinl. % lítt unnar vörur og tæpl. 1 f. lirávörur.
Eftir notkun er vörunum skift i 3. vfirliti i framleiðsluvörur, 7 flokka,
og heysluvörur, 3 flokka. 6 fýrstu flokkarnir eru hreyfifé, sem hverf-
ur alveg i hinar framleiddu vörur, en liinn 7. er fastafé eða allskonar
tæki atvinnuveganna svo sem vélar, verkfæri og annar útbúnaður. 5. og 6.
flokkinn má að nokkru leyti telja lil neysíuvara og eru þeir þess vegna
aðgreindir frá þeim undanfarandi. Við samanburð á 2. og 3. yfirliti kemur
að sumii levti í ljós töluvert ósamræmi. Þannig eru neysluvörurnar árið
1936 í 3. yfirliti taldar aðeins 9 inilj. kr„ en í 2. vfirliti 13% milj. Þetta
stafar af því, að fylgt er mismuiiandi reglum við skiftinguna. í eldra vfir-
litinu eru kornvörur (aðrar en fóðurkorn) taldar með matvælum, en í
yfirliti Þjóðabandalagsins eru þær taldar með efnivörum til framleiðslu.
Svo er og um alls konar álnavöru, sem í eldra yfirlitinu er talin með
neysluvörum (vefnaður og falnaður).