Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1941, Síða 19
Verslunarskýrslur 1930
lö*
árið 1939. Stafar þessi hækkun að miklu leyti af verðhækkun á vörun-
um. í 9. fl. eru taldir óvaranlegir munir til notkunar. Er það einkum
fatnaðarvörur, en ennfremur lyf, bækur og blöð, leikföng og margt fleira.
Á þessum vörum hefur yfirleitt orðið töluverð verðhækkun, en inn-
flutningsmagnið þó hækkað miklu meir. í 10. fl. eru aftur á móti taldir
varanlegir munir til notkunar, svo sem ýmisleg búsáhöld, reiðhjól og
fólkshílar og aðrir slikir hlutir, sem lengi eiga að endast. Þessar vörur
hafa líka yfirleitt hækkað allmikið í verði, en aftur á móti hefur orðið
töluverð lækkun á innflutningsmagni þeirra.
í 2. yfirliti (bls. 8*) eru vörurnar einnig flokkaðar eflir vinslu-
stigi eða í hrávörur, lítt unnar vörur og fullunnar vörur. Hrávörur telj-
ast afurðir af náttúruframleiðslu (landbúnaði, fiskveiðum, námugrefti
o. s. frv.), sem ekki hafa fengið neina verulega aðvinslu, en geta þó sumar
hverjar verið hæfar til neyslu. Sama máli er að gegna um ýmsar lítt unn-
ar vörur, sem fengið hafa nokkra aðvinslu, þó að þær, eins og hrávör-
urnar, séu einkum notaðar til framleiðslu. Samkvæmt yfirlitinu hefur
1939 meir en helmingur innfluttu varanna (að verðmæti) verið fullunnar
vörur, tæpl. Vs Iítt unnar vörur og rúml. % hrávörur. Árið 1939 hefur
innflutningur af hrávörum hækkað frá árinu á undan um O.n milj. kr., af
lítt unnum vörum um 4.n milj. kr. og' af fullunnum vörum um 8.s milj.
kr. Verðhækkun hefur verið mest á hálfunnum vörum, nokkru minni á
fullunnum vörum, en minst á hrávörum. Það er þó samt af fullunnum
vörum, sem innflutningsmagnið hefur aukist mest, af hálfunnum vör-
um hefur það aukist töluvert minna, en af hrávörunum hefur það jafnvel
minkað litið eilt.
r
3. Utfluttar vörutegundir.
Exportation des marchandises.
í töflu III B (bls. 41—47) er skýrt frá útflutningi á hverri einstakri
vörutegund frá landinu í heild sinni. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
skyldleika þeirra á saina hátt sem innfluttu vörurnar, og eru yfirlit yfir
þá flokkaskiftingu í töflu I og II (bls. 1—3).
4. yfirlit (bls. 10*) sýnir, hve mikilli verðupphæð útflutta varan
hefur numið árlega síðan um aldamót. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
því, frá hvaða atvinnuvegi þær stafa. Ennfremur er sýnt með hlutfalls-
tölum, hve mikill hluti verðmagnsins stafar árlega frá hverjum atvinnu-
vegi. Hefur hlutdeild sjávarafurða vaxið, en landbúnaðarafurða minkað
alt til 1932. 1932—1937 var hreyfing í öfug'a átt, en siðan hefur hlutdeild
landbúnaðarvara minkað aftur, en sjávarafurða aukist. Fram að 1920
námu landbúnaðarvörurnar að meðaltali rúml. % af útflutningsverð-
magninu, en 1921—30 námu þær ekki nema 12% og 1932 ekki nema 7%,