Hagskýrslur um utanríkisverslun


Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Page 7

Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Page 7
Inngangur. Introdudion. 1. Greinargerð um tilhögun verzlunarskýrslnanna. General Statement. Innflutningurinn er í verzlunarskýrslunuin talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru í útflutningslandinu (fob-verð), að viðbættum kostnaði, sem á fellur (aðallega flutningsgjöld og trygging), þar til hún er affermd á ákvörðunarstað. Fær Hagstofan samrit af skýrslu þeirri, sem innflytjandinn gefur tollyfirvöldunum. Fyrir kemur, að tollyfirvöldin áætli cif-verðið, vegna þess að sölureikningur er ekki fyrir hendi, en fjárhæðirnar, sem þar er um að ræða, skipta mjög litlu máli. Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar eru til landsins, er þó öðruvisi háttað. Skýrslu um slíkan innflutning fær Hagstofan yfir- leitt ekki frá tollyfirvöldunum, heldur heint frá lilutaðeigandi innflytj- endum. Upplýsa þeir, hver sé byggingarkostnaður eða kaupverð hvers skips eða flugvélar. Þar við leggst áætlaður heimflutningskostnaður og l-.emur þá fram verðmætið, sem reiknað er með í verzlunarskýrslunum. Skipainnflutningurinn hefur frá og með árinu 1949 verið tekinn á skýrslu hálfsárslega, þ. e. a. s. með innflutningi júnimánaðar og desembermán- aðar, og sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainnflutninginn. — í kaflanum um innfluttar vörur siðar í innganginuna er gerð nánari grein fyrir skipainnflutningnum á árinu 1950. Útflutt skip hafa að jafnaði verið tekin á skýrslu hálfsárslega. Árið 1949 voru engin skip talin flutt úr landi, en árið 1950 voru þau allmörg, eins og nánar er skýrt frá i kaflanum um útfluttar vörur síðar í innganginum. Útflutningurinn er í verzlunarskýrslum talinn á söluverði af- urða með umbúðum, fluttra um horð í skip (f o b) á þeirri höfn, er þær fyrst fara frá. Er hér yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureikningi útflytjanda, og útflutningsgjöld eru ekki meðtalin í fob-verðinu. Sé um að ræða umboðslaun til erlendra aðila, er upphæð þeirra dregin frá, til þess að lireint fob-verð komi fram, þ. e. a. s. ef greiðsla umboðslauna er heimiluð í útflutningsleyfinu. — Fob-verð vöru, sem seld er úr landi ineð cif-skilmálum, er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu flutn- ingskostnað og tryggingu, ásamt umboðslaunum ef nokkur eru. — Nettó- verðið til útflytjandans er fob-verðið samkvæmt verzlunarskýrslum að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Hagskýrslur um utanríkisverslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um utanríkisverslun
https://timarit.is/publication/1123

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.