Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Qupperneq 7
Inngangur.
Introdudion.
1. Greinargerð um tilhögun verzlunarskýrslnanna.
General Statement.
Innflutningurinn er í verzlunarskýrslunuin talinn á cif-verði,
þ. e. á verði vöru í útflutningslandinu (fob-verð), að viðbættum
kostnaði, sem á fellur (aðallega flutningsgjöld og trygging), þar til hún
er affermd á ákvörðunarstað. Fær Hagstofan samrit af skýrslu þeirri,
sem innflytjandinn gefur tollyfirvöldunum. Fyrir kemur, að tollyfirvöldin
áætli cif-verðið, vegna þess að sölureikningur er ekki fyrir hendi, en
fjárhæðirnar, sem þar er um að ræða, skipta mjög litlu máli.
Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar eru til landsins, er
þó öðruvisi háttað. Skýrslu um slíkan innflutning fær Hagstofan yfir-
leitt ekki frá tollyfirvöldunum, heldur heint frá lilutaðeigandi innflytj-
endum. Upplýsa þeir, hver sé byggingarkostnaður eða kaupverð hvers
skips eða flugvélar. Þar við leggst áætlaður heimflutningskostnaður og
l-.emur þá fram verðmætið, sem reiknað er með í verzlunarskýrslunum.
Skipainnflutningurinn hefur frá og með árinu 1949 verið tekinn á skýrslu
hálfsárslega, þ. e. a. s. með innflutningi júnimánaðar og desembermán-
aðar, og sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainnflutninginn. — í
kaflanum um innfluttar vörur siðar í innganginuna er gerð nánari grein
fyrir skipainnflutningnum á árinu 1950. Útflutt skip hafa að jafnaði
verið tekin á skýrslu hálfsárslega. Árið 1949 voru engin skip talin flutt
úr landi, en árið 1950 voru þau allmörg, eins og nánar er skýrt frá i
kaflanum um útfluttar vörur síðar í innganginum.
Útflutningurinn er í verzlunarskýrslum talinn á söluverði af-
urða með umbúðum, fluttra um horð í skip (f o b) á þeirri höfn, er þær
fyrst fara frá. Er hér yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureikningi
útflytjanda, og útflutningsgjöld eru ekki meðtalin í fob-verðinu. Sé um
að ræða umboðslaun til erlendra aðila, er upphæð þeirra dregin frá, til
þess að lireint fob-verð komi fram, þ. e. a. s. ef greiðsla umboðslauna
er heimiluð í útflutningsleyfinu. — Fob-verð vöru, sem seld er úr landi
ineð cif-skilmálum, er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu flutn-
ingskostnað og tryggingu, ásamt umboðslaunum ef nokkur eru. — Nettó-
verðið til útflytjandans er fob-verðið samkvæmt verzlunarskýrslum að