Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Page 14
12* Verzlunarskýrslur 1950
vera, vegna þess að nærri þx-já niánuði framan af árinu voru innflutnings-
og útflutningsverðmætin tekin á skýrslu á eldra gengi. Ýmislegs er að
gæta í sambandi við þessar tölur, og þá fyrst og frexnst þess, að þær
upplýsa ekkert um verðbreytingar erlendis á þeim vörum, sem
íslendingar kaupa frá litlöndum og selja úr landi. Mismunurinn á verð-
liækkunun innflutningsvara og litflulningsvai’a, G6% á móti 48%, þarf
ekki lieldur að stafa af öðru en því, að hlutfallsleg skipting þeiri’a á
tírnann fyrir og eftir gengisbreytinguna hafi ekki verið sú sama. Af
þessurn ástæðum hefur verið reiknað út, hve mikið af fyrr nefndri
liækkun innflutningsverðs og útflulningsverðs stafar af gengisbreytingu
og hve mikið af verðbi’eytingum erlendis. Samkvæmt þeirri athugun
skiptist nefnd hundraðshlutahækkun þannig á þá þætti, sem hér um
ræðir:
Innflutn- Útflutn-
ingur ingur
Hækkun vegna gengisbreytingar í sept. 1949 .. 6 % 3 %
Hækkun vegna gengisbreylingar í marz 1950 .. 59 % 54 %
Hækkun fob-verðs, erlends og innlends ........ 1 % — 9 %
Alls: bundraðshlutaliækkun frá 1949 til 1950 G6 % 48 %
Af þessu sést, að svo að segja öll verðhækkun innflutningsvaranna
frá 1949 til 1950 stafar af gengisbreytingu. Fyrir innflutninginn í heild
sinni hefur ekki verið um að ræða teljandi hreylingar á verðmætinu
l’ob, þó að mismunandi miklar verðlagsbreytingar kunni að liafa orðið
á einstökum vörum. Það skal tekið fram, að flutningsgjöld með íslenzk-
um millilandaskipum voru samtímis gengisbreytingunni hækkuð um
45%, reiknað í íslenzkri rnynt. Eru flutningsgjöldin verðskráð í erlendri
mynt og var þar af leiðandi um að ræða lækkun á þeirn, reiknað í er-
lendri mynt. — Hvað snertir útflutningsvörurnar hefur orðið verðlækkun,
sem nemur 9% frá 1949 til 1950.
Séu verðvísitölurnar, í samræmi við ofangreint, umreikn-
aðar svo, að áhrif gengisbreytinganna í september 1949 og marz 1950
hverfi, verða vísitölur ársins 1950 sem hér segir (1935 — 100):
Verðvísitala innflutnings: 348.
Verðvísitala útflulnings: 315.
Samkvæmt þessu hefur verðhlutfallið milli innfluttrar
og útfluttrar vöru 1950 rýrnað um ca. 10%, rniðað við árið áður.
I kaflanum hér næst á undan er að öðru leyti gerð grein fyrir
gengisbreytingunni í marz 1950 og áhrifum hennar á tölur verzlunar-
skýrslnanna.
Síðan 1935 hefur þyngd alls innflutnings og útflutnings
verið talin sarnan. Er þyngdin, eins og fyrr getur, nettóþyngd. En þar
eð ýmsar vörur hafa ekki verið gefnar upp í þyngd, heldur stykkjatölu,
rúmmetrum eða öðrunx einingum, hefur þessunx einingum verið breytt
i þyngd eftir áætluðunx hlutföllum. Auk þess hefur þyngdin á ýmsuxn