Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Blaðsíða 19
Verzlunarskýrslur 1950
17*
greina er um að ræða samdrátt, en talsvert mismunandi mikinn. En þó
að hin hlutfallslega lækkun sé allmikil í sumum flokkum, gætir lang-
mest samdráttarins á 7. lið, þ. e. á innflutningi tækja og þess háttar til
atvinnuveganna. Af 56,5 milj. kr. lækkun þess flokks voru 24,7 milj.
kr. hjá skipum 100 lestir og þar yfir. Við samanburð við fyrri ár verður
hér að gæta þess, að verðmæti skipa og ýmiss annars innflutnings er
nú í fyrsta sinn, við útreikning á verðvísitölunni, látið breytast um sama
liundraðshluta og verðmæti alls annars innflutnings liefur breylzt (þ. e.
lækkað um 39,8%, svarandi til 66% hækkunar innflutningsverðsins frá
1949 til 1950), en fram að þessu hefur verið reiknað með raunverulegu
verði viðkomandi árs óbreyttu. Hér er, auk skipa og flugvéla, um að
ræða ýmsar vörur, sem hafa ekki komið fyrir í innflutningi undan-
gengins árs. Enn fremur vörur, sem svo lítið hefur verið flutt inn af
1949, að ekki er byggjandi á meðalverðinu, og loks er farið svona að
þegar fyrir liggur, að mikil gæðabreyting liafi átt sér stað, þó að um
vöru í sama tollskrárnúmeri sé að ræða. Af heildartölunni i næstsíðasta
dálki yfirlitsins, 317 milj. ltr., eru samtals 32,8 niðurfært verð ýmiss
innflutnings, sem ekki er tiltækilegt að reikna á 1949-verði. — Þessi
breyting hefur að sjálfsögðu áhrif til hækkunar á verðvísitölu innflutn-
ings 1950 frá því, sem verið hefði, ef fylgt hefði verið eldri aðferðinni.
Innflutningur á skipum 100 smálestir og þar yfir (hag-
skýrslunúmer 401) nam 26 722 þús. kr. árið 1950, og er það verðið eins
og það er tilfært í verzlunarskýrslunum. Miðað við nýja gengið var verð-
mæti skipainnflutningsins 1950 36 321 þús. kr. Eftirtalin skip stærri en
100 rúmlestir voru flutt til landsins, allt vélskip:
Vcrð i Verð skv.
verzl.- gengi 20.
Rúmlestir skýrslum marz 1950
brúttó þús. kr. Jdús. kr.
María Júlía, frá Danmörku, björgunarskip 138 1 722 2 996
Gullfoss, frá Danmörku, farþegaskip .... 3 858 16 500 24 825
Harðbakur, frá Bretlandi, togari 700 8 500 8 500
Innflutningsverð alls 26 722 36 321
Hér skal eigi farið frekar inn á liina einstöku flokka í 2. yfirliti, að
öðru leyti en því, að gerð skal grein fyrir neyzlu þjóðarinnar á
nokkrum vörutegundum 1 950, á sama liátt og hingað til hefur
verið gert í verzlunarskýrslunum. í 3. yfirliti er sýnd árleg neyzla af kaffi,
sykri og fleiri vörum á hverju 5 ára skeiði síðan um 1880 og á hverju
ári síðustu 5 árin, bæði i heild og á hvern einstakling. Kaffibætir, sem
mörg undanfarin ár hefur verið framleiddur í landinu sjálfu, er i yfir-
litinu talinn með kaffi. Auk þess er ölið, sem neytt er í landinu, fram-
leitt í landinu sjálfu, en hinar vörurnar, sem hér um ræðir, eru að-
keyptar. Innflutningur ársins og ársframleiðslan af viðkomandi heima-
framleiddum vörum er látin jafngilda neyzlunni. Brennivín og aðrir
c