Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Blaðsíða 29
Verzlunarskýrslur 1950
27*
Togararnir tveir, fyrst nefndir, voru afhentir kaupendum á fyrri
liluta árs 1950, en öll hin skipin voru flutt úr landi á árinu 1949, þó að
útflutningsleyfi fyrir sumum þeirra væru ekki gefin út fyrr en 1950.
Ekkert þessara skipa hefur verið tekið á skýrslu áður.
6. Viðskipti við einstök lönd.
External Trade by Countries.
8. yfirlit (bls. 28* og 29*) sýnir, hvernig verðmæti innfluttra
og útfluttra vara hefur skipzt 3 síðustu árin eftir innflutnings-
og útflutningslöndum. Síðari hluti töflunnar sýnir þátt hvers
lands hlutfallslega í verzluninni við ísland samkvæmt íslenzku verzlun-
arskýrslunum. — Upplýsingar eru ekki fyrir hendi um, hve mikið af
verðmæti verzlunarinnar við hvert land 1950 er afleiðing umreiknings
í krónur á genginu í gildi fyrir 20. marz 1950. Einhverja hugmynd er
])ó hægt að fá um þetta með því að skipta hlutfallslega eftir heildar-
verði innflutnings og útflutnings þeim fjárhæðum, sem hér er um að
ræða, sjá bls. 9*.
I töflu III A og B (bls. 4—11) er verðmæti innflutnings frá liverju
landi og útflutnings til þess skipt eftir vöruflokkum, en í töflu V A og
B (bls. 73—95) eru taldar upp innfluttar og útfluttar vörur og sýnt,
hvernig innflutnings- og útflutningsmagn hverrar þeirrar skiptist eftir
löndum. Hvað snertir s u n d u r 1 i ð u n i n n f 1 u t n i n g s i n s er hér ekki
farið eins djúpt og í töflu IV A. Aðalreglan er að gefa upp hvert hag-
skýrslunúmer, sem eru liðlega 500 að tölu, en þó er vikið frá þessu til
beggja hliða, hagskýrslunúmer dregin saman tvö eða fleiri annars vegar,
og klofin á einstök tollnúmer hins vegar. Er hér í höfuðdráttum fylgt
sömu reglum og gert var í verzlunarskýrslum undangengins árs.
Sundurliðun útflutningsvaranna í töflu V B er hins vegar
ávallt eins djúp og í aðaltöflunni IV B. Við sundurliðun hvers innflutn-
ingsatriðis á lönd hefur í töflu V A verið farið eftir þeirri reglu að geta
alltaf lands, ef verðmætið nær 50 þúsund kr. Sé það minna, er við-
komandi land sett í „önnur lönd“ eða „ýmis lönd“. Þar eru því aðeins
lönd með minna verðmæti en 50 þús. kr. og þau a. m. k. tvö talsins, en
oftast fleiri. Sé ekki um að ræða nema eitt land með minna verðmæti
en 50 þús. kr., er það sjálft nefnt. í töflu V B, útflutningur, eru hins
vegar tilgreind öll lönd, sem hver útflutningsvara hefur verið flutt vit til.
I töflu VI (bls. 96—106) er talinn upp innflutningur frá hverju
landi og útflutningurinn til þess, en aðeins verðmætið, enda sést tilsvar-
andi magn að jafnaði í töflum V A og B, og i töflum IV A og B, þar
sem þó ekki er sundurliðun á lönd. Sundurliðun innflutningsins er í
töflu VI hagað svo, að hagskýrslunúmer eru tilgreind, ef verðmætið