Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Síða 33
Verzlunarskýrslur 1950
31
8. Tollarnir.
Customs Duties.
Tafla VIII (bls. 108—109) sýnir tolltekjur ríkissjóðs, til-
fallnar árið 1950, af hinum svonefndu gömlu tollvörum (áfengi,
tóbak, kaffi, sykur, te og kakaó, sjá nánar verzlunarskýrslur 1948, bls.
29*). Er vörumagnstollurinn á þeim miðaður við nettómagn, og er því,
með aðstoð tollskrárinnar, sem kveður á um tollgjald, hægt að sjá i
verzlunarskýrslunum, hve miklu hann hefur numið. Verðtollurinn af
þessum vörum er einnig sýndur í töflu VIII. Er hann reiknaður út með
því að margfalda innflutningsverðmætið (cif) samkvæmt verzlunar-
skýrslum með verðtolli hverrar þessara vara fyrir sig eftir tollskránni.
Af öðrum vörum miðast vörumagnstollurinn aflur á móti við brúttómagn,
sem sést ekki beinlínis í verzlunarskýrslunum. Er því örðugleikum
bundið að reikna út eftir verzlunarskýrslum og tollskrá, hve mikill
vörumagnstollur fæst af öðrum vörum en gömlu tollvörunum. Þó eru i
töflu VIII sýndar tolltekjur af nokkrum vörum, þar sem umbúða gætir
lítið eða ekkert í innflutningnum, þannig að auðvelt er að reikna út
vörumagnstoll af þeim. Er hér um að ræða trjávið, kol, olíur, salt og
sement. Loks eru í töflunni gefnar upp í einu lagi tolltekjur af öllum
öðrum vörum, með því að draga tolltekjurnar af hinum sérstaklega
fram teknu vörum frá heildartolltekjunum samkvæmt ríkisreikningnum.
Ivemur þar, eins og taflan sýnir, 23% af vörumagnstollinum og 81% af
verðtollinum. Sést af jiessu, hversu litla þýðingu tollarnir af þessum vör-
um hafa nú orðið miðað við heildartolllekjur ríkissjóðs.
Með auglýsingu fjármálaráðuneytisins nr. 2/1950, voru samkvæml
heimild í lögum nr. 112/1949, endurnýjuð óbreytt fyrir 1950 ákvæði aug-
lýsingar nr. 166/1948, um n i ð u r f e 11 in gu árið 1949 á tollum af
ýmissi kornvöru og um helmings lækkun á tolli og sykri, sjá nánar
verzlunarskýrslur 1949, bls. 26*.
Ákvæði laga nr. 95/1948 um 20 aur. viðbótarvörumagnstoll á hvert
kg af benzíni og um 200% álag á vörumagnstoll á öðrum vörum, svo og
og um 65% álag á verðtollinn — sjá nánar verzlunarskýrslur 1949, Lils.
26* — voru framlengd óbreytt með lögum nr. 2/1950, sem giltu til árs-
loka 1950. Með lögum nr. 22/1950, um gengisskráningu o. f 1., í 10. gr.
þeirra, var ákveðið, að álagið á verðtollinn skyldi vera 45%, í
stað 65% áður.
Með lögum nr. 100/1948 (dýrtíðarlög), sem giltu frá ársbyrjun 1949,
voru lögð sérstök viðbótargjöld á innflutningsleyfi fyrir
kvikmyndum, bifreiðum, bifreiðavarahlutum og vélum, lijólbörðum og
slöngum og loks heimilisvélum. Námu gjöld þessi ýmist 25, 50, 75 eða
100 af hundraði og skyldi andvirðið renna í dýrtíðarsjóð. Hér var i raun
og veru um innflutningstolla að ræða, þó að innheimtunni væri hagað
öðruvísi en á hinum almennu innflutningsgjöldum. Voru ákvæði þessi