Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1952, Side 14
Verzlunarskýrslur 1951
12,k
að verðhækkun innflutningsvaranna hafi ekki nema að tiltölulega litlu
leyti orkað á meðalinnflutningsverðlagið 1950 til hækkunar. Hins vegar
](om hún fram með öllum sínum þunga i innflutningsverðinu 1951.
Hækkunin á verðlagi útflutningsafurða frá árinu 1950 í heild til ársins
1951 í heild verður af þessum sökum miklu minni en fram kæmi, el'
verðhækkunin frá júní 1950 til jafnlengdar 1951 væri reiknuð út. Aftur
á móti má gera ráð fyrir, að þessi mismunur yrði ekki verulegur fyrir
innflutninginn. Tölur þær, sem hér hafa verið gefnar upp um verð-
hækkun innflutnings og útflutnings, hvors um sig, frá 1950 til 1951,
eru af þessari ástæðu illa sambærilegar.
Síðan 1935 hefur þyngd a 11 s innflutnings og útflutnings
verið talin saman. Árin 1935—1950 er þyngd innflutnings í verzlunar-
skýrslum nettóþyngd, en frá og með árinu 1951 er liún brúttóþyngd,
eins og' gerð er grein fyrir í 1. kafla inngangsins. í töflunni hér á eftir
hefur því innflutningurinn 1951 verið umreiknaður til nettóþyngdar,
til þess að samanburður fáist við fyrri ár. Er hér um að ræða áætlaða
tölu..— í skýrslum innflytjenda eru ýrnsar vörur ekki gefnar upp í
þyngd, heldur í stykkjatölu, rúmmetrum eða öðrum einingum, og hef-
ur þessum eininguin verið breytt í þyngd eftir áætluðum hlutföllum.
Auk þess hefur þyngdin á ýmsum vörum oft verið ótilgreind í skýrsl-
um að nokkru eða öllu leyti, svo að orðið hefur að setja hana eftir
ágizkun. Heildartölurnar fyrir þyngd innflutnings og útflutnings síðan
1935 hafa orðið sem hér segir og jafnframt er sýnd breytingin hvert
ár, miðað við 1935 = 100:
Innflutningur Útflutningur
1000 kg Hiutfall 1000 kg Hlutfall
1935 333 665 100,0 117 127 100,0
1936 321 853 99,5 134 403 114,3
1937 333 970 100,1 148 657 127,9
1938 337 237 101,1 158 689 135,6
1939 341 856 102,5 150 474 128,5
1940 226 928 68,0 186 317 159,1
1941 231 486 69,4 204 410 174,5
1942 320 837 96,1 203 373 173,6
1943 305 279 91,5 209 940 179,2
1944 302 934 90,8 234 972 200,6
1945 329 344 98,7 199 985 170,7
1946 436 639 130,9 174 884 149,3
1947 530 561 159,0 171 606 146,5
1948 486 985 145,9 262 676 242,3
1949 499 194 149,6 211 910 180,9
1950 488 825 146,5 148 914 127,1
1951 433 000 129,8 217 264 185,5
Netlóþyngd innflutningsins 1951 er 433 000 tonn, en brúttóþyngdin
442 079, sjá töflu I á bls. 1. Er síðari talan aðeins rúmlega 2% hærri
cn sú fyrri, og er munurinn ekki meiri vegna þess, að fyrir sumar
magnmestu innflutningsvörurnar er enginn eða mjög lítill munur á
brúttó- og nettóþyngd. — Lækkunin, sem varð á heildarþyngd inn-