Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1952, Qupperneq 33
Vcrzlunarsli vrslur 1951
31
af hinum gömlu tollvörum 3 siðustu árin og fjögur 5 ára timabil þar
áður, og jafnframt eru tilgreindar þar vörumagnstolltekjur af öðrum
vörum og heildarupphæð verðtollsins þessi sömu ár.
Hér fer á eftir yfirlit um hundraðshluta to 111ekna ríkis-
s j ó ð s a f heildarverðmæti i n n f 1 n t n i n g s i n s . I því sambandi
verður að hafa í liuga, að innflutningsgjaldið af benzíni ásamt viðbótar-
gjöldum á innflutningsleyfi, svo og söluskattur á innfluttum vörum, cr
ekki meðtalið í tolltekjunum, eins og fyrr var getið.
1931—35 mcðallal 13,4 % 1947 18,5 %
1936—40 — 16,2 — 1948 17,7 —
1941—45 — 18,6 — 1949 19,3 —
1946—50 - 17,4 — 1950 14,7 —
1951 15,4 —
1 1. kafla inngangsins cr greint frá hinum ýmsu gjöldum á úl-
flutningsvörum, sem voru í gildi á árinu 1951. Eins og þar kemur
fram eru gjöld þessi, að úlflutningsleyfisgjaldinu fráteknu, innheimt af
ríkissjóði fyrir aðra aðila samkvæmt lagaákvæðum þar að lútandi. Teltjur
rikissjóðs af útflutningsleyfisgjaldinu 1951 námu 740 þús. kr.
8. Tala fastra verzlana.
Numbcr of Commercial Establishmcnts.
Skýrsla um tölu fastra verzlana árið 1951 í hverju lögsagnarumdæmi
á landinu er i töflu IX (bls. 114—115). Síðan 1943 er skýrsla þessi tölu-
vert meira sundurliðuð heldur en áður, þar sem reynt hefur verið að
skipta smásöluverzlununum eftir því, með livaða vörur þær verzla. Tald-
ar eru hér með verzlunum fislc-, brauð- og mjóllcurbúðir, þótt ekki þurfi
verzlunarleyfi til að reka þær, en þær hafa ekki vcrið taldar með áður
en forminu var breytt 1943. Útibú og aðskildar verzlunardeildir eru
taldar hver i sinu lagi sem sérstakar verzlanir.
Frá 1950 til 1951 fjölgaði verzlunum á öllu landinu úr 1622 í
1646, en í Reykjavík varð fjölgun úr 1018 i 1046. Utan Reykjavikur
urðu litlar breytingar á tölu verzlana. í Reykjavík fjölgaði heild- og
umboðssöluverzlunum úr 201 í 205 og í sumum greinum smásöluverzl-
unar varð dálitil fjölgun, en í öðrum fækkun. Miðað við þá aukningu
á verzlunarveltu, sem varð 1951 vegna afléttingar hafta á innflutningi,
verður fjölgunin, sem orðið hefur á tölu verzlana í Reykjavík, að teljasl
einkennilega litil. Á árinu 1951 kvað liins vegar óvanalega mikið að
eigandaskiptum á verzlunum og hefur það sennilega slaðið í einhverju
sambandi við hinar breyttu aðstæður á sviði innflutningsmála.