Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1952, Page 170
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ýtarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út i
sjálfstæðum heftum, og fást þau keypt einstök. Menn gela líka
gerzt áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beint
lil Hagstofunnar, Arnarhvoli, Reykjavik. Sími 2802. — Askrifendur
að Hagskýrslunum fá þær sendar jafnóðum og þær lcoma út, en
vegna óvissu um, hvaða hefti og hve mörg, koma út árlega, er
ekki um að ræða fast áskriftargjald, heldur greiða áskrifendur
jafnóðum hið ákveðna verð skýrslnanna, eða fleiri hefti i einu,
eftir því sem henta þykir.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innllutning og útflutning, fiskafla, bag bankanna, framfærslu-
vísitölu og ýmislegt fleira, sem ekki þykir taka að birta í sér-
stöku hefti af Hagskýrslum. Ennfremur bráðabirgðaskýrslur
um ýmislegt, sem slðar koma um ýtarlegri skýrslur. Áskriftar-
gjald er 15 krónur um árið.