Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1954, Síða 17
VerzlunarskVTslur 1952
13*
tölur þessar með því að fletta upp í Verzlunarskýrslum 1924, bls. 7*, og Verzlunar-
skýrslum 1936, bls. 6*. Vcríví.itsto yfcy-vwUMb,
indices of prices indices of quantum
Innflutt Útflutt Innflutt tjtOutt
imp. exp. imp. exp.
1935 ........................... 100 100 100 100
1936 ........................... 102 97 93 107
1937 ........................... 113 110 103 112
1938 ........................... 109 103 102 119
1939 ........................... 126 133 112 111
1940 ........................... 185 219 88 127
1941 ........................... 209 310 138 127
1942 ........................... 258 329 211 127
1943 ........................... 297 282 186 177
1944 ........................... 291 289 187 188
1945 ........................... 269 294 261 194
1946 ........................... 273 332 357 187
1947 ........................... 308 362 370 172
1948 ........................... 346 370 291 228
1949 ........................... 345 345 271 180
1950 ........................... 574 511 208 173
1951 ........................... 741 628 274 246
1952 ........................... 758 645 264 209
Tveir aftari dálkarnir sýna breytingar á inn- og útflutningsmagni.
Árið 1951 nam innflutningurinn 923 964 þús. kr. og útflutningurinn 721 048 þús. kr.,
að frádregnum 5 583 þús. kr., sem haldið er utan við umreikninginn. Með sama
meðalverði 1952 og var 1951 hefðu tölurnar fyrir 1952 orðið sem hér segir: Inn-
flutningur: 889 376 þús. og útflutningur 613 582 þús. kr., auk 10 878 þús. kr.,
sem ekki er hægt að umreikna með verðinu árið áður og þar af leiðandi er haldið
utan við. Verðmunurinn stafar af breyttu vörumagni og hefur innflutningsvöru-
magnið samkvæmt þessu minnkað um 3,7% frá 1951 til 1952, en útflutningsvöru-
magnið hefur á sama tíma minnkað um 14,9%.
Tveir fremri dálkar yfirlitsins hér að ofan sýna verðbreytingar. Reiknað
með verðinu 1951 hefði innflutningurinn 1952, eins og áður segir, numið 889 376
þús. kr., en útflutningurinn, með fyrrgreindum frádrætti, 613 582 þús. kr. En til-
svarandi raunverulegar tölur eru: Innflutningur 909 813 þús. og útflutningur
630 444, og hefur þá hinn síðar nefndi verið lækkaður um 10 878 þús. kr., af ástæðu,
sem fyrr greinir. Frá 1951 til 1952 hefur því, ef hvort árið um sig er tekið sem heild,
orðið 2,3% verðhækkun á innflutningsvörunum, og 2,7% verðhækkun á útflutnings-
vörunum. Samkvæmt þessu hefur verðhlutfallið milli útfluttrar og innfluttrar vöru
batnað um 0,4%, miðað við árið áður, 1951.
Síðan 1935 hefur þyngd alls innflutnings og útflutnings verið talin
saman. Árin 1935—1950 er þyngd innflutnings í verzlunarskýrslum nettóþyngd,
en frá og með árinu 1951 er hún brúttóþyngd, eins og gerð er grein fyrir í 1. kafla
inngangsins. í töflunni hér á eftir hefur því innflutningurinn 1951 og 1952 verið
umreiknaður til nettóþyngdar, til þess að samanburður fáist við fyrri ár. Er hér
um að ræða áætlaða tölu. — í skýrslum innflytjenda eru ýmsar vörur ekki gefnar
upp í þyngd, heldur í stykkjatölu, rúmmetrum eða öðrum einingum, og hefur
þessum einingum verið breytt í þyngd eftir áætluðum hlutföllum. Auk þess hefur
þyngdin á ýmsum vörum oft verið ótilgreind í skýrslum að nokkru eða öllu leyti,
svo að orðið hefur að setja hana eftir ágizkun. Heildartölurnar fyrir þyngd inn-
flutning8 og útflutnings síðan 1935 liafa orðið sem hér segir og jafnframt er sýnd
brejtingin hvert ár, miðað við 1935 = 100: