Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1954, Síða 19
Verzlunarskýrslur 1952
15*
1935. Þetta virðist stríða hvað á móti öðru, en svo er þó ekki í raun og veru, því að
vörumagnsvísitalan tekur ekki aðeins tillit til þyngdarinnar, heldur einnig til
verðsins, þannig að viss þungi af dýrri vöru (með háu verðlagi á kg), svo sem vefn-
aðarvöru, vegur meira í vörumagninu heldur en sami þungi af þimgavöru (með
lágu meðalverði á kg), svo sem kolum og salti. Vörumagnið getur því aukizt, þótt
þyngdin vaxi ekki, ef magn dýru vörunnar vex, en þungavörunnar minnkar.
Lítil aukning á þungavöru hleypir þyngdinni miklu meira fram heldur en stórmikil
aukning á dýrum vörum, svo sem vefnaðarvöru. Skýringin á þessu ósamræmi er
því sú, að þungavörunnar gætir miklu minna á móts við hinar dýrari í innflutn-
ingnum nú heldur en áður. í útflutningnum er aftur á móti minni munur á vöru-
magnsvísitölu og þyngdarvísitölu.
1. yfirlit sýnir innflutning og útflutning í hverjum mánuði 1950—
1952 samkvæmt verzlunarskýrslum, en síðar í innganginum er yfirlit um mánaðar-
lega skiptingu innflutnings (3. kafli) og útflutnings (4. kafli) eftir vöruflokkum.
3. Innfluttar vörur.
Imports.
Tafla IV A (bls. 12—70) sýnir, hve mikið hefur verið flutt tfl landsins af
hverri vörutegund. Eru vörurnar þar í fyrsta sinn flokkaðar eftir hinni nýju vöru-
skrá Sameinuðu þjóðanna. Fremst í innganginum er gerð nánari grein fyrir þessari
vöruskrá og notkun hennar í verzlunarskýrslum, og vísast til þess. í töflum I og II
(bls. 1—3) er yfirlit um skiptingu vöruskrárinnar.
Þyngd hverrar einstakrar vörutegundar í töflu IV A er brúttóþyngd, og
er í því sambandi vísað til 1. kafla inngangsins, þar sem gerð er grein fyrir ástæð-
unum fyrir því, að frá og með árinu 1951 er magn innflutningsins gefið upp með
brúttóþyngd. Annar töludálkur töflu IV A sýnir hundraðshluta nettóþyngdar af
brúttóþyngd fyrir hverja vörutegund í tollskránni, samkvæmt því sem þetta
hlutfall reyndist á árinu 1950, sjá bls. 8*.
Næstsíðasti dálkur töflu IV A sýnir fob-verðmæti hverrar innfluttrar
vörutegundar. Mismunur cif-verðs og fob-verðs er flutningskostnaður vörimnar
frá útflutningsstaðnum ásamt vátryggingariðgjaldi. Flutningskostnaður sá, sem
hér um ræðir, er ekki einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá erlendri
útflutningshöfn til íslands, heldur er í sumum tilfeflum líka um að ræða farmgjöld
með járnbrautum eða skipum frá sölustað til þeirrar útflutningshafnar, þar sem
vöru er síðast útskipað á leið til íslands. Kemur þá líka tfl umhleðslukostnaður o. fl.
Fer þetta eftir því, við hvaða stað eða höfn af hending vörunnar er miðuð. Eitthvað
kveður að því, að vörur séu seldar cif íslenzka innflutningshöfn. í slíkum tflfellum
er tOsvarandi fob-verð áætlað.
2. yfiriit sýnir verðmæti innflutningsvaranna bæði cif og fob eftir
vörudeildum. Ef skip eru undanskilin — en fyrir þau er fob-verðið talið það
sama og cif-verðið — nemur fob-verðmæti innflutningsins 1952 afls 755 596 þús. kr.,
en cif-verðið 888 345 þús. kr. Fob-vcrðmætið 1952 var þannig 85,1% af cif-verðmæt-
inu, en árið áður var það 86,8% af því. Ef litið er á einstaka flokka, sést, að þetta
hlutfall er mjög mismunandi, og enn meiri verða frávikin tO beggja handa, ef
litið er á hinar einstöku vörutegundir.
TO þess að fá einhverja vitneskju um, hvernig mismunur cif- og fob-verðs
skiptist á vátryggingu og flutningskostnað, hefur hin fyrr nefnda verið áætluð og
verður flutningskostnaðurinn þá sá mismimur, sem fram kemur, þegar fob-verð