Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1956, Blaðsíða 11
Verzhmarakýrslur 1954
9
auleg. í öðru lagi er fullt eins heppilegt fyrir inuílytjendur og aðra notendur skýrsln-
anna, að þyngd sé gefin upp brúttó, vegna þess að þeir eru kunnugri þeirri tölu en
nettótölunni. í þriðja lagi gefur brúttóþyngd betri hugmynd um flutningaþörfina
til landsins, og enn fremur eru flutningsgjöld að sjálfsögðu miðuð við hana. Loks
felst í því mikill vinnusparnaður fyrir Hagstofuna, við samningu verzlunarskýrsln-
anna, að miðað sé við brúttó- en ekki nettóþyngd. Af öllum þessum ástæðum var
ákveðið að taka upp brúttóþyngd í stað nettóþyngdar í verzlunar-
skýrslum, enda var áður búið að ganga úr skugga um, að það færi ekki í bág
við alþjóðasamþykktir um fyrirkomulag verzlunarskýrslna. Að vísu mun í verzlunar-
skýrslum annarra landa yfirleitt vera notuð nettóþyngd, en þar er ekki um að ræða
neina skuldbindingu eða kvöð, heldur getur hvert land hagað þessu eins og því
hentar bezt.
Sá annmarki fylgir breytingu þeirri, sem hér um ræðir, að samanburður við
eldri innflutningstölur torveldast. Er leitazt við að bæta eitthvað úr þessu með
því að sýna í töflu IV A, í sérstökum dálki, hve miklum hundraðshluta
nettóþyngd er talin nema af brúttóþyngd fyrir hverja einstaka vöru-
tegund. Hlutföll þessi voru notuð við umreikning brúttóþyngdar í nettóþyngd í
verzlunarskýrslum 1950. Var gerð sérstök athugun á innflutningnum 1950 í því
skyni að finna sem réttust hlutföll milli brúttó- og nettóþyngdar, og fengust um
þetta tiltölulega öruggar niðurstöður að því er snertir flestar vörur. í sumum til-
fellum var þó haldið áfram að nota hlutföll, sem Hagstofan hafði áður notað við
útreikning á nettóþyngd viðkomandi vörutegunda.
Gjaldeyrisgengi. í árslok 1954 var skráð gengi Landsbankans á erlendum
gjaldeyri sem hér segir (í kr. á tiltekna einingu):
Eining Kaup Sala
Sterlingspund 1 45,55 45,70
Bandaríkjadollar í 16,26 16,32
Kanadadollar 1 16,84 16,90
Dönsk króna 100 235,50 236,30
Norsk króna 100 227,75 228,50
Sænsk króna 100 314,45 315,50
Finnskt mark 100 - 7,09
Franskur franki 1 000 46,48 46,63
Belgískur franki 100 32,65 32,75
Svissneskur franki 100 373,30 374,50
Gyllini 100 429,70 431,10
Tékknesk króna 100 225,72 226,67
Vestur-þýzkt mark 100 387,40 388,70
Líra 1 000 26,04 26,12
Eftirtaldar breytingar urðu á gengisskróningu erlends gjaldeyris á árinu 1954 :
Sölugengi Kanadadollars breyttist alloft á árinu. í árslok 1953 var það kr. 16,82,
hækkaði síðan í kr. 16,86 og aftur 26. febr. í kr. 16,94. Hinn 2. apríl lækkaði
gengið í kr. 16,70, en hækkaði aftur 20. ágúst í kr. 16,90 og hélzt óbreytt til
ársloka. Kaupgengi Kanadadollars var 6 aurum lægra en sölugengið allt árið.
Sölugengi belgískra franka hækkaði 15. des. úr kr. 32,67 í kr. 32,75 og kaup-
gengið úr kr. 32,56 í kr. 32,65. Sölugengi svissneskra franka hækkaði 11. febr.
úr kr. 373,70 I kr. 374,50 og kaupgengið úr kr. 372.50 í kr. 373,30. Sölugengi
hollenzkra gyllina hækkaði 11. febr. úr kr. 429,90 í kr. 430,35 og aftur 15. des.
b