Hagskýrslur um utanríkisverslun


Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1956, Side 22

Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1956, Side 22
20' Verzlunarskýrslur 1954 4. Útfluttar vörur. Exports. í töflu IV B (bls. 72—78) er skýrt frá útflutningi á hverri einstakri vörutegund frá landinu í heild sinni. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir skyldleika á sama liátt sem innfluttu vörurnar, og eru yfirlit yfir þá flokkaskiptingu í töflu I og II (bls. 1—3). Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í verzlunar- skýrslum tahnn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fara fyrst frá, samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Þessi regla getur ekki átt við ísfisk, sem íslenzk skip selja í erlendum höfnum, og gilda því um verðákvörðun hans í verzlunarskýrslum sérstakar reglur, er nú skal gerð grein fyrir. Síðustu árin, sem ísfiskur var fluttur út til Bretlands, voru dregin 20% frá brúttósöluverði ísfisks til Bretlands, eins og Fiskifélagið gaf það upp, fyrir sölukostnaði og tolli. Af þessum 20% eru 9,1% tollur. Af söluverði ísfisks til V.-Þýzkalands hefur frádrátturinn, frá 1. desember 1951, sömuleiðis numið 20%, en var áður 10%, frá nóvemberbyrjun 1950, og þar áður 5%. Aðflutningsgjöld á ísfiski eru miklu lægri í Þýzkalandi en Bretlandi, en annar kostnaður meiri. Auk tolls, er hér um að ræða löndunarkostnað, svo sem uppskipun fisksins, hafnargjöld, þóknun til umboðsmanna skipanna o. fl. Áður nefnd 20% eru áætlun, sem látin er gilda jafnt fyrir öll skip, þó að sölukostnaður þeirra sé að sjálfsögðu mismunandi mikill. Auk þess er hér ekki um nákvæma tölu að ræða, jafnvel þó að miðað sé við flotann í heild. Á árinu 1954 var í fyrsta sinni útflutningur á ísfiski til Austur- Þýzkalands. Engin aðflutningsgjöld voru á þeim fiski og annar kostnaður til frá- dráttar söluandvirði ckki nema 1 500 vestur-þýzk mörk fyrir hverja sölu, eða 5 800 kr. Þessum fiski var skipað á land í Hamborg. — Auk sölukostnaðar, dregst frá brúttóandvirðinu farmgjald, sem togurum og íslenzkum fiskkaupaskipum er reiknað fyrir flutning ísfisks. Á árunurn 1947—1949 og fram að gengisbreytingu 1950 nam þetta farmgjald 200 kr. á hvert tonn ísfisks til Bretlands og 250 kr. á tonn í Þýzkalandssiglingum, sem hófust aftur 1948, eftir að hafa legið niðri síðan 1939. Með gengisbreytingunni var farmgjaldið í Bretlandssiglingum hækkað í 300 kr. og í Þýzkalandssiglingum í 350 kr. tonnið, og hefur það haldizt óbreytt síðan. Hér fer á eftir sundurgreining á verðmæti ísfisksútflutningsins 1954 (í millj. kr.): V.-Þýzkaland A.-Þýzkaland Samtalt Fob-verð skv. verzlunarskýrslum .. 9,7 3,7 13,4 Reiknaður flutningskostnaður 2,8 0,9 3,7 Áætlaður sölukostnaður og tollur . . 3,1 0,1 3,2 Brúttósölur 15,6 4,7 20,3 Ctflutningur ísfisks til Bretlands nam 27,5 millj. kr. fob. 1952, aðeins 1,7 millj. kr. 1953 og ekkert var flutt út af ísfiski til Bretlands 1954. Ástæðan fyrir þessum miklu umskiptum er sú, að í október 1952 var, að undirlagi brezkra togaraeigenda, lagt löndunarbann á íslenzkan ísfisk í Bretlandi og hefur það staðið síðan. Gjaldeyrisskil vegna ísfisksútflutningsins 1954 námu 10,2 millj. kr., eða sem svarar 76,1% fob-verðs. Ástæðan fyrir því, að ekki kemur meira heim af andvirði ísfisksins, er sú, að skipin nota mikið fé til kaupa á rekstrarvörum o. þ. h. og er slíkt ekki innifalið í áðurnefndum hundraðshluta, sem kemur til frádráttar, — auk þess sem skipshafnirnar fá allmikinn gjaldeyri til eigin nota, o. fl.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Hagskýrslur um utanríkisverslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um utanríkisverslun
https://timarit.is/publication/1123

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.