Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1957, Page 10
8*
Verzlunarpkýralur 1955
Frá 1. júlí 1949 hefur, auk ofangreinds, verið tekið %% hlutatryggingasjóðs-
gjald (sbr. lög nr. 48/1949) af öllum útfluttum sjávarafurðum, öðrum en þeim, sem
koma frá togurum, hvalveiðum og selveiðum. — Af útfluttri beitusíld var á árinu
1955 innheimt 8% framleiðslugjald, miðað við fob-verð. en ekki var um að ræða
framleiðslugjald af öðrum sjávarvörum, sbr. Verzlunarskýrslur 1950, bls. 6*. Af
saltsíld, öllum tegundum, var reiknað matsgjald 1955, 1 kr. á tunnu, ef síldin
var metin.
Almenna útflutningsgjaldið rennur að ®/7 hlutum (þ. e. 1%%) til Fiskveiða-
sjóðs, en J/7 liluti þess (þ. e. %%) rennur til Landssambands ísl. útvegsmanna og
til byggingar fiskirannsóknarstöðvar, að hálfu til hvors. Almenna útflutnings-
gjaldið á saltfiski (%%) rennur á sama hátt til þessara tveggja síðastnefndu aðila.
— Vísast hér til laga nr. 81/1947, sem breytt var með lögum nr. 38/1948. Gjöldin
eru miðuð við fob-verð, eða, ef svo ber undir, við cif-verð að frádregnu flutnings-
og ábyrgðargjaldi til útlanda og umboðslaunum til erlendra aðila.
í ársbyrjun 1951 gengu í gildi ákvæði um innflutningsfríðindi bátaút-
vegsmanna, og voru þau framlengd lítið breytt 1952, 1953 og 1954. Samkv. þeim
fengu bátaútvegsmenn og vinnslustöðvar bátafisks umráð yfir helmingi af söluand-
virði útfluttra bátaafurða, annarra en þorskalýsis, síldar og síldarafurða. Má ráðstafa
þessum gjaldeyri til kaupa erlendis frá á vörum, sem eru á sérstökum „skilorðs-
bundnum frílista“. Dollarar og E.P.U.-gjaldeyrir, sem útflytjendur liafa þannig
fengið til ráðstöfunar, hefur verið seldur með 61% álagi, en vöruskiptagjaldeyrir
með 26% álagi, þar af leyfisgjald 1% fyrir skrifstofukostnaði og öðrum útgjöldum
vegna framkvæmdar þessara mála. í ársbyrjun 1955 voru þessi ákvæði enn fram-
lengd lítið breytt að öðru leyti en því, að innflutningsréttindi vegna afurða á vetrar-
vertíð skyldu nú aðeins ná til 45% af útflutningsverðmætinu, í stað helmings áður.
í nóvember 1955 var álagið á dollara og EPU-gjaldeyri hækkað úr 61% í 71% og
á vöruskiptagjaldeyri úr 26% í 36%. — „Bátalistaálag11 þetta er ekki innifalið í
fob-verði afurða í verzlunarskýrslum.
Yið ákvörðun á útflutningsverðmæti ísfisks í verzlunarskýrslum gilda
sérstakar reglur, sem gerð er grein fyrir í kaflanum um útfluttar vörur síðar í inn-
gangi þessum.
Nokkuð kveður að því, að útflutningsvcrðmæti sé áætlað í skýrslunum,
þ. e. að reiknað sé með því verðmæti, sem tilgreint er í útflutningsleyfi viðskipta-
deildar Utanríkisráðuneytisins. Er farið þannig að, þegar látið er uppi af hálfu
útflytjanda, að varan sé flutt út óseld. Eru ekki tök á að lagfæra þetta síðar, og er
hér um að ræða ónákvæmni, sem gctur nranað allmiklu.
Það segir sig sjálft, að í verzlunarskýrslurnar koma aðeins vörur, sem afgreiddar
eru af tollyfirvöldunum á venjulegan hátt. Kaup ísleuzkra skipa og flugvéla erlendis
á vörum til eigin nota koma að sjálfsögðu ekki í verzlunarskýrslum, og ef slíkar
vörur eru fluttar inn í landið, koma þær ekki á skýrslu, nema að svo miklu leyti
sem þær kunna að vera teknar til tollmeðferðar.
Fram að 1951 hefur þyngd vöru í verzlunarskýrslum, bæði í útflutningi
og innflutningi, verið nettóþyngd, og svo er einnig í Verzlunarskýrslum 1951 og
síðar að því er snertir útfluttar vörur. Innfluttar vörur eru hins vegar frá
og með árinu 1951 taldar með brúttóþyngd, þ. e. með ytri umbúðum.
Mælir margt með því að miða við brúttóþyngd í stað nettóþyngdar að því er snertir
innfluttar vörur. í fyrsta lagi er yfirleitt brúttóþyngdin einvörðungu gefin upp í
skýrslum innflytjenda eins og Hagstofan fær þær frá tollyfirvöldum, þar eð vöru-
magnstollur er í flestum tflfellum miðaður við brúttóþyngd. Séu innfluttar vörur