Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1957, Síða 11
Verzlunarskýnlur 1955
9
gefnar upp með nettóþyngd í verzlunarskýrslum, er það því ávalit samkvæmt útreikn-
ingi eftir ákveðnum umreikningshlutföllum, sem hljóta að verameiraeðaminnaóáreið-
anleg. í öðru lagi er fullt eins heppilegt fyrir innflytjendur og aðra notendur skýrsln-
anna, að þyngd sé gefin upp brúttó, vegna þess að þeir eru kunnugri þeirri tölu en
nettótölunni. í þriðja lagi gefur brúttóþyngd betri hugmynd um flutningaþörfina
til landsins, og enn fremur eru flutning6gjöld að sjálfsögðu miðuð við hana. Loks
felst í því mikill vinnusparnaður fyrir Hagstofuna, við samningu verzlunarskýrsln-
anna, að miðað sé við brúttó- en ekki nettóþyngd. Af öllum þcssum ástæðum var
ákveðið að taka upp brúttóþyngd í stað nettóþyngdar í verzlunar-
skýrslum, enda var áður búið að ganga úr skugga um, að það færi ekki í bág
við alþjóðasamþykktir um fyrirkomulag verzlunarskýrslna. Að vísu mun í verzlunar-
skýrslum annarra landa yfirleitt vera notuð nettóþyngd, en þar er ekki um að ræða
neina skuldbindingu eða kvöð, heldur getur hvert land hagað þessu eins og því
hentar bezt.
Sá annmarki fylgir breytingu þeirri, sem hér um ræðir, að samanburður við
eldri innflutningstölur torveldast. Er leitazt við að bæta eitthvað úr þessu með
því að sýna í töflu IV A, í sérstökum dálki, hve miklum hundraðshluta
nettóþyngd er talin nema af brúttóþyngd fyrir hverja einstaka vöru-
tegund. Hlutföll þessi voru notuð við umreikning brúttóþyngdar í nettóþyngd í
verzlunarskýrslum 1950. Var gerð sérstök athugun á innflutningnum 1950 í því
skyni að finna sem réttust lilutföll milli brúttó- og nettóþyngdar, og fengust um
þetta tiltölulega öruggar niðurstöður að því er snertir flestar vörur. 1 sumum til-
fellum var þó kaldið áfram að nota hlutföll, sem Hagstofan liafði áður notað við
útreikning á nettóþyngd viðkomandi vörutegunda.
Gjaldeyrisgengi. I árslok 1955 var skráð gengi Landsbankans á erlendum
gjaldeyri sem hér segir (í kr. á tiltekna einingu):
Eining Kaup Sala
Sterlingspund 1 45,55 45,70
tíandaríkjadollar 1 16,26 16,32
Kanadadollar 1 16,34 16,40
Dönsk króna 100 235,50 236,30
Norsk króna 100 227,75 228,50
Sænsk króna 100 314,45 315,50
Finnskt mark 100 - 7,09
Franskur franki 1 000 46,48 46,63
Belgískur franki 100 32,80 32,90
Svissneskur franki 100 374,80 376,00
Gyllini 100 429,70 431,10
Tékknesk króna 100 225,72 226,67
Vestur-þýzkt mark 100 390,00 391,30
Líra 1 000 26,04 26,12
Eftirtaldar breytingar urðu á gengisskráningu erlends gjaldeyris á árinu 1955 :
Sölugengi Kanadadollars lækkaði 28. apríl úr kr. 16,90 í kr. 16,56 og aftur 20.
okt. í kr. 16,40. Kaupgengi Kanadadollars var 6 aurum lægra en sölugengið
allt árið. Sölugengi belgískra franka hækkaði 18. ágúst úr kr. 32,75 í kr. 32,90
og kaupgengið úr kr. 32,65 í kr. 32,80. Sölugengi svissneskra franka hækkaði
18. ágúst úr kr. 374,50 í kr. 376,00 og kaupgengið úr kr. 373,30 í kr. 374,80.
b