Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1957, Page 19
V erzlunarakýrslur 1955
17*
Rúmlestír Innflutn.-veið
brúttó þús. kr.
V/s Muninn, frá Danmörku, fiskiskip ............ 53 1 313
V/s Ófeigur III, frá Hollandi, fiskiskip ....... 66 1 072
V/s Stefán Árnason, frá Danmörku, fiskiskip .. 67 1 085
V/s Sæljón, frá Danmörku, fiskiskip ............ 62 945
V/s Ver, frá Svíþjóð, fiskiskip................. 58 990
V/s Þorgeir, frá Danmörku, fiskiskip ........... 39 719
V/s Þorsteinn, frá Danmörku, fiskiskip ......... 53 556
1 138 17 950
Flutningaskipið Kyndill er nýsmíðað og sama er að segja um eftirtalin smærri
skip: Arnfirðingur, Bjarni, Breiðfirðingur, Fjalar, Freyja, Glófaxi, Gullfaxi, Helgi
Flóventsson, Kap, Muninn, Ófeigur III, Stefán Ámason, Sæljón. Hin skipin eru
ekki nýsmíðuð, en sum þeirra hafa verið lagfærð, eða þeim breytt, áður en þau
voru flutt til landsins. Fiskiskipin Ófeigur III og Arnfirðingur eru stálskip. í verði
skipanna eru talin öll tæki, sem talin eru hluti af skipinu, svo og heimsiglingar-
kostnaður. — í fyrri Verzlunarskýrslum hefur það verið nokkuð á reiki, hvort tæki
hafa verið meðtalin í innflutningsverði skipa eða ekki. — Fyrir getur komið, að
tæki, sem talin eru í innflutningsverði, séu keypt hér á landi og séu því tvítalin í
innflutningi. Þó að ekki muni kveða mikið að þcssu, er varasamt að treysta um
of á tölur þær, sem liér eru birtar um innflutningsverð skipa.
Á árinu 1955 voru fluttar inn 7 flugvélar, ein stór millilandaflugvél frá Noregi,
innkaupsverð 8 813 þús. kr., og 6 minni flugvélar, ein frá Tékkóslóvakíu, 2 frá
Bandaríkjunum og 3 frá Þýzkalandi, kaupverð alls 1 108 þús. kr.
í 3. yfirliti er sýnd árleg neyzla nokkurra vara á hverju 5 ára skeiði,
8Íðan um 1880 og á hverju ári síðustu 5 árin, bæði í heild og á hvern einstakling.
Að því er sncrtir kaffi, sykur og tóbak er miðað við innflutt magn og talið, að
það jafngildi neyzlunni. Sama er að segja um ölið framan af þessu tímabili, en
eftir að komið var á fót reglulegri ölframleiðslu í landinu er hér miðað við innlent
framleiðslumagn. — Tölumar, er sýna áfengisneyzluna, þarfnast sérstakra skýr-
inga. Árin 1881—1935 er miðað við innflutt áfengismagn og talið, að það jafngildi
neyzlunni. Þá er og allur innfluttur vínandi talinn áfengisneyzla, þó að hluti hans
hafi farið til annarra nota. Upplýsingar eru ekki fyrir hendi um, hve stór sá hluti
hefur verið, en hins vegar má gera ráð fyrir, að meginhluti vínandans hafi á þessu
tímabili farið til drykkjar. — Frá árinu 1935 er miðað við sölu Áfengisverzlunar
ríkisins á sterkum drykkjum og léttum vínum og hún talin jafngilda neyzlunni, en
vínandainnflutningurinn er ekki meðtalinn, enda er sá hluti hans, sem farið hefir
tfl framleiðslu brennivíns og ákavítis hjá Áfengisverzluninni, talinn í sölu hennar á
brenndum drykkjum. Þó að eitthvað af vínandainnflutningi hennar kunni að hafa
farið til neyzlu þar fram yfir, er ekki reiknað með því í töflunni, þar sem ógerlegt
er að áætla, hversu mikið það magn muni vera. Hins vegar má gera ráð fyrir, að
það sé mjög lítið hlutfallslega. — Innflutningur vínanda síðan 1935 er sýndur £
töflunni, en hafður í sviga, þar sem hann er ekki með í neyzlunni. — Það skal
tekið fram, að áfengi, sem áhafnir skipa og flugvéla mega taka með sér inn í landið,
er ekki talið í þeim tölum, sem hér eru birtar, en þar cr nú orðið um að ræða talsvert
magn. Þetta ásamt öðru, sem hér kemur til greina, gerir það að verkum, að tölur
3. yfirlits um áfengisneyzluna eru ótraustar, einkum seinni árin. — Mannfjöldatalan,
sem notuð er til þess að finna ncyzluna hvert ár, er meðaltal fólksfjölda í ársbyrjun
og árslok. Fólkstala fyrir 1955, sem við er miðað, er 157 756.