Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1957, Side 22
20*
Verzlunarskýrslur 1955
Hluti kaffibœtis af kaffineyzlunni samkvæmt yfirlitinu var sem hér segir síðustu
5 árin (100 kg): 1951: 2 321, 1952: 1 541, 1953: 2 163, 1954: 1 917, 1955: 1 767.
4. yfirlit sýnir verðmæti innfluttrar vöru eftir mánuðum og vöru-
deildum. Skip eru, eins og fyrr greinir, tekin á skýrslu hálfsárslega, með inn-
flutningi mánaðanna júní og desember. Af skipunum, sem talin eru upp hér að
framan, eru þessi talin með innflutningi júnímánaðar: Fjalar, Freyja, Kap, ófeigur
III, Sæljón, Þorgeir og Þorsteinn. öll hin skipin eru með innflutningi desember-
mánaðar.
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu IV B (bls. 72—78) er skýrt frá útflutningi á hverri einstakri
vörutegund frá landinu í heild sinni. Eru vörumar þar flokkaðar eftir skyldleika
á sama hátt sem innfluttu vörurnar, og eru yfirlit yfir þá flokkaskiptingu í töflu I og
II (bls. 1—3).
Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í verzlunar-
skýrslum talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um borð í skip (fob) á
þeirri höfn, er þær fara fyrst frá, samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Þessi regla
getur ekki átt við ísfisk, sem íslenzk skip selja í erlendum höfnum,
og gilda því um verðákvörðun hans í verzlunarskýrslum sérstakar reglur, er nú
skal gerð grein fyrir. Frá 1. des. 1950 hafa vegna kostnaðar og innflutningstolls
verið dregin 20% frá brúttósöluverði ísfisks til Vestur-Þýzkalands, eins og það hefur
verið gefið upp af Fiskifélaginu. Auk tolls, er hér um að ræða löndimarkostnað,
svo sem uppskipun fisksins, hafnargjöld, þóknun til umboðsmanna skipanna o. fl.
Áður nefnd 20% eru áætlun, sem látin er gilda jafnt fyrir öll skip, þó að sölukostn-
aður þeirra sé að sjálfsögðu mismunandi mikill. Auk þess er hér ekki um nákvæma
tölu að ræða, jafnvel þó að miðað sé við flotann í heild. Engin aðflutningsgjöld eru
á ísfiski til Austur-Þýzkalands og annar kostnaður til frádráttar söluandvirði ekki
nema 1 500 vestur-þýzk mörk fyrir hverja sölu, eða 5 800 kr. Þessum fiski er skipað
á land í Hamborg. — Auk sölukostnaðar, dregst frá brúttóandvirðinu farmgjald,
sem togurum og íslenzkum fiskkaupaskipum er reiknað fyrir flutning ísfisks. Á árun-
um 1947—1949 og fram áð gengisbreytingu 1950 nam þetta farmgjald 200 kr. á
hvert tonn ísfisks til Bretlands og 250 kr. á tonn í Þýzkalandssiglingum, sem hófust
aftur 1948, eftir að hafa legið niðri síðan 1939. Með gengisbreytingunni var farm-
gjaldið í Bretlandssiglingum hækkað í 300 kr. og í Þýzkalandssiglingum í 350 kr.
tonnið, og liefur það haldizt óbreytt síðan. Hér fer á eftir sundurgreining é
verðmæti ísfisksútflutningsins 1955 (í millj. kr.):
V.-Þýzkaland A.>Þýzkaland SamtaU
Fob-verð skv. verzlimarskýrslum . . 10,3 0,6 10,9
Reiknaður flutningskostnaður 3,5 0,2 3,7
Áætlaður sölukostnaður og tollur .. 3,4 0,0 3,4
Brúttósölur 17,2 0,8 18,0
Útflutningur ísfisks til Bretlands nam 27,5 millj. kr. 1952, en aðeins 1,7 millj.
kr. 1953 — hvort tveggja fob. Ekkert var flutt út af ísfiski til Bretlands 1954, en
útflutningur þangað 1955 er talinn 42 þús. kr. fob. Löndunarbann það, sem í október
1952 var lagt á íslenzkan ísfisk í Bretlandi að undirlagi togaraeigenda þar, hélzt
allt árið 1955.