Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1957, Blaðsíða 32
30*
Verzlunarakýralur 1955
6. Yiðskipti við útlönd eftir tollafgreiðslustöðum.
Externál trade by customs areas.
Töflu VII á bls. 137 er ætlað að sýna verð innfluttrar og útfluttrar vöru cftir
tollafgreiðslustöðum. í því sambandi skal tekið fram, að tölur þessarar töflu
eru að ýmsu Ieyti óáreiðanlegar vegna annmarka, sem erfitt er að bæta úr. T. d.
kveður talsvert að því, að farmar og einstakar vörusendingar séu tollafgreiddar —
og þar með taldar fluttar inn — í öðru tollumdæmi en þar, sem innflytjandi er
búsettur. Eins og vænta má, er það aðallega í Reykjavík, sem tollafgreiddar eru
vörur, sem fluttar eru inn af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófullkomna bugmynd um skiptingu
útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert mikið á reiki, hvaðan
útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af því, að sölusambönd, sem
hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og útflutning á sumum lielztu útflutnings-
vörunum, þannig að útflutningsvörur utan af landi eru afgreiddar í Reykjavík og
oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem útflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Tafla VII sýnir verðmæti innflutnings í pósti, en tilsvarandi skýrslur um út-
flutning í pósti eru ekki fyrir hendi, enda hefur verið lítið um, að verzlunarvörur
væru sendar út í pósti. — Póstbögglar, sem sendir eru að gjöf, hvort heldur hingað
til lands eða héðan frá einstaklingum, eru ekki teknir með í verzlunarskýrslurnar.
7. Tollarnir.
Customs duties.
Tafla Vlll (bls. 138—139) sýnir tolltekjur ríkissjóðs, tilfallnar árið 1955,
af hinum svo nefndu gömlu tollvörum (áfengi, tóbak, sykur, te og kakaó, sjá
nánar Verzlunarskýrslur 1948, bls. 29*), svo og af nokkrum öðrum vörum (trjá-
viður, kol, brennsluolíur, salt og sement). Hefur Hagstofan reiknað út verðtollinn
af þessum vörum með því að margfalda innflutningsverðið (cif) samkvæmt verzl-
imarskýrslum með verðtoUi hverrar þessara vara fyrir sig eftir tollskránni. Vöru-
magnstollurinn hefur á sama hátt verið reikuaður út með því að margfalda nettó-
eða brúttóinnflutningsmagn hverrar vöru, eftir því sem við á, með tilheyrandi
vörumagnstolli. í töflu VIII eru svo gefnar upp í einu lagi tolltekjur ríkissjóðs
af öllum öðrum vörum.
Með auglýsingu Fjármálaráðuneytisins, nr. 166/1954, voru samkvæmt lieimild
í 1. nr. 92/1953, endurnýjuð fyrir árið 1955 ákvæði auglýsingar nr. 235/1952, um
niðurfellingu tolla af kornvöru, kaffi og sykri. Eftir ákvörðun ríkisstjórnarinnar
voru frá og með 22. des. 1952 felldir alveg niður tollar af kaffi og sykri, shr. lög
nr. 12/1953. Var þctta einn þáttur í ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar til úrlausnar
verkföllum þeim, er voru leidd til lykta með samkomulagi vinnuveitenda og stéttar-
félaga 19. des. 1952.
Með lögum nr. 92/1954 voru fyrir árið 1955 endurnýjuð áður gildandi ákvæði
um, að vörumagnstollur á bensíni samkvæmt 27. kafla tollskrárinnar skuli
innheimtur með 20 aur. í stað 1 eyris, svo og um 45% álag á verðtollinn, hvort
tveggja með 6ömu undantekningum og áður voru í gildi. Ákvæðið um 250% álag
á vörumagnstollinum var með nefndum lögum framlengt til ársloka 1955.
Með lögum nr. 108/1954 voru ákvæðin um söluskatt af tollverði allrar inn-
fluttrar vöru, að viðbættum aðflutningsgjöldum og áætlaðri álagningu 10% (sjá