Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1960, Blaðsíða 17
Verzlunarskýrslur 1959
15
2. yfirlit (frh.). Sundurgreining á cif-verði innflutningsins 1959, eftir vörudeildum
«o h V 5 . s ■2 WDO a “ 9 á £2 ‘l'S o K >M S>Jj
« g jfl > É u
1000 kr. 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr.
89 Ýmaar unnar vörur, ót. a 27 521 511 2 940 30 972
91 Póstbögglar óflokkaðir eftir innihaldi 45 1 11 57
92 Lifandi dýr, ekki til manneldis 4 0 1 5
93 Endursendar vörur farþegaflutningur o. fl 627 12 75 714
Samtals 1339 530 21 418 180 571 1541519
Samtals án skipa 1229 261 21 418 180 571 1431250
notkun hennar í verzlunarskýrslum, og vísast til þess. í töflum I og II (bls. 1—3)
er yfirht um skiptingu vöruskrárinnar.
Þyngd hverrar einstakrar vörutegundar í töflu IV A er brúttóþyngd, og
er í því sambandi vísað til 1. kafla inngangsins, þar sem gerð er grein fyrir ástæð-
unum fyrir því, að frá og með árinu 1951 er magn innflutningsins gefið upp með
brúttóþyngd. Annar töludálkur töflu IV A sýnir hundraðshluta nettóþyngdar af
brúttóþyngd fyrir hverja vörutegund í tollskránni, samkvæmt því sem þetta
hlutfall reyndist á árinu 1950, sjá bls. 9*.
Næstsíðasti dálkur töflu IV A sýnir fob-verðmæti hverrar innfluttrar
vörutegundar. Mismunur cif-verðs og fob-verðs er flutningskostnaður vörunnar
frá útflutningsstaðnum ásamt vátryggingariðgjaldi. Flutningskostnaður sá, sem
hér um ræðir, er ekki einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá erlendri
útflutningshöfn til íslands, heldur er í sumum tilfehum líka um að ræða farmgjöld
með járnbrautum eða skipum frá sölustað til þeirrar útflutningshafnar, þar sem
vöru er síðast útskipað á leið til íslands. Kemur þá líka til umhleðslukostnaður o. fl.
Fer þetta eftir því, við hvaða stað eða höfn afhending vörunnar er miðuð. Eittlivað
kveður að því, að vörur séu seldar cif íslenzka innflutningshöfn. í slíkum tilfellum
er tilsvarandi fob-verð áætlað.
2. yfirlit sýnir verðmæti innflutningsvaranna bæði cif og fob eftir
vörudeildum. Ef skip eru undanskilin — en fyrir þau er fob-verðið talið það
sama og cif-verðið — nemur fob-verðmæti innflutningsins 1959 alls 1 229 261 þús.
kr., en cif-verðið 1 431 250 þús. kr. Fob-verðmætið 1959 var þannig 85,9% af
cif-verðmætinu, en árið áður var það 86,9% af því. Ef litið er á einstaka flokka,
sést, að þetta lilutfall er mjög mismunandi, og enn meiri verða frávikin til heggja
handa, ef litið er á hinar einstöku vörutegundir.
Til þess að fá einhverja vitneskju um, hvernig mismunur cif- og fob-verðs
skiptist á vátryggingu og flutningskostnað, hefur hið fvrr nefnda verið áætlað og
verður flutningskostnaðurinn þá sá mismunur, sem fram kemur, þegar fob-verð
ásamt áætlaðri vátryggingu er dregið frá cif-verðinu. Vátryggingin er áætluð með
því að margfalda cif-verðmæti hvers vöruflokks, að viðbættu yfirfærslugjaldi,
með þeim iðgjaldshundraðshluta, sem telja má, að eigi að meðaltali við hvern
flokk. Tryggingariðgjald fyrir olíur og bensín með tankskipum er nú talið 0,3%
af cif-verði, og fyrir ýmsar aðrar vörur er það talið sem liér segir: Kol 0,75%,