Hagskýrslur um utanríkisverslun


Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1960, Síða 24

Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1960, Síða 24
22* Verzlunarskýralur 19S9 Skipin eru öll nýsmíðuð, nema Keilir, sem var smíðaður 1950. Af fiskiskip- unum eru þessi úr tré: Árni Geir, Áskell, Dalaröst, Guðbjörg, Gullver, Gullþórir, Jón Gunnlaugsson, Máni, Stapafell og Þorbjörn. Hin eru úr stáli. í verði skip- anna eru talin öll tæki, sem talin eru hluti af skipinu, svo og heimsiglingarkostn- aður. Fyrir getur komið, að tæki, sem talin eru í innflutningsverði, séu keypt liér á landi, og séu því tvítalin í innflutningi. Þó að ekki muni kveða mikið að þessu, er vafasamt að treysta um of á tölur þær, sem hér eru birtar um innflutn- ingsverð skipa. Á árinu 1959 voru fluttar inn 3 flugvélar, allar frá Bandaríkjunum. Yar það ein millilandaflugvél, Leifur Eiríksson, innkaupsverð 8 978 þús. kr., og tvær smærri flugvélar, innkaupsverð samtals 560 þús. kr. Eins og áður er tekið fram, er fob-verð innfluttra vara umreiknað í íslenzkar krónur á skráðu gengi og á það jafnt við innflutt skip og flugvélar sem um annan innflutning. Finnst því erlent kaupverð ofan greindra skipa og flugvéla með því að umreikna innflutningsverðmæti þeirra eftir skráðu gengi án yfirfærslugjalds. Það skal tekið fram, að í verzlunarskýrslum er cif-verð skipa og flugvéla tahð vera það sama og fob-verð þeirra. í 3. yfirliti er sýnd árleg neyzla nokkurra vara á hverju 5 ára skeiði, síðan um 1880 og á hverju ári siðustu 5 árin, bæði í heild og á hvern einstakling. Að því er snertir kaffi, sykur og tóbak er miðað við innflutt magn og talið, að það jafngildi neyzlunni. Sama er að segja um öhð framan af þessu tímabili, en eftir að komið var á fót reglulegri ölframleiðslu í landinu er hér miðað við innlent framleiðslumagn. — Vert er að liafa það í huga, að innflutt vörumagn segir ekki rétt til um neyzlumagn, nema birgðir séu hinar sömu við byrjun og lok viðkom- andi árs, en þar getur munað miklu. Tölurnar, er sýna áfengisneyzluna, þarfnast sérstakra skýringa. Árin 1881—1935 er miðað við innflutt áfengismagn og talið, að það jafngildi neyzl- unni. Þá er og allur innfluttur vínandi talinn áfengisneyzla, þó að hluti hans hafi farið til annarra nota. Upplýsingar eru ekki fyrir hendi um, hve stór sá hluti hefur verið, en hins vegar má gera ráð fyrir, að meginhluti vínandans hafi á þessu tíma- bili farið til drykkjar. — Frá árinu 1935 er miðað við sölu Áfengisverzlunar ríkis- ins á sterkum drykkjum og léttum vínum og hún talin jafngilda neyzlunni, en vínandainnflutningurinn er ekld meðtalinn, enda er sá hluti lians, sem farið hefir til framleiðslu brennivíns og ákavítis hjá Áfengisverzluninni, talinn í sölu hennar á brenndum drykkjum. Þó að eitthvað af vínandainnflutningi hennar kunni að hafa farið til neyzlu þar fram yfir, er ekki reiknað með því í töflunni, þar sem ógerlegt er að áætla, hversu mikið það magn muni vera. Hins vegar má gera ráð fyrir, að það sé mjög lítið hlutfallslega. — Innflutningur vínanda síðan 1935 er sýndur í töflunni, en hafður í sviga, þar sem hann er ekki með í neyzlunni. — Það skal tekið fram, að áfengi, sem áliafnir skipa og flugvéla mega taka með sér inn í landið, er ekki talið í þeim tölum, sem hér eru hirtar, en þar er nú orðið um að ræða talsvert magn. Þetta ásamt öðru, sem hér kemur til greina, gerir það að verkum, að tölur 3. yfirlits um áfengisneyzluna eru ótraustar, einkum seinni árin. — Mannfjöldatalan, sem notuð er til þess að finna neyzluna hvert ár, er meðaltal fólksfjölda í ársbyrjun og árslok. Fólkstala fyrir 1959, sem við er miðað, er 171 901. Hluti kaffibætis af kaffineyzlunni samkvæmt yfirlitinu var sem hér segir síðus- tu 5 árin (100 kg); 1955: 1 767, 1956: 1 774, 1957: 1 655, 1958: 1 855, 1959: 1 562. 4. yfirht sýnir verðmæti innfluttrar vöru eftir mánuðum og vöru- deildum. Skip eru, eins og fyrr greinir, tekin á skýrslu hálfsárslega, með inn-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208

x

Hagskýrslur um utanríkisverslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um utanríkisverslun
https://timarit.is/publication/1123

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.