Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1980, Side 11
Verslunarskýrslur 1979
9*
meðalgengi dollars 1978, miðað við miðgengi. Samkvæmt útreikningum Seðla-
bankans er hækkun frá 1978 til 1979 á ársmeðalgengi allra erlendra gjaldmiðla,
vegin með hlutdeild þeirra í gjaldeyriskaupum og -sölu, 31,4% á kaupgengi og
34,8% á sölugengi. Þótt ýmsir fyrirvarar komi hér til, mun þetta hlutfall komast
næst því að sýna áhrif gengisbreytinga á verðmætistölur Verslunarskýrslna 1979.
Hér skal á það bent, að mikið kveður að því, að innflutningur — og í enn ríkari
mæli útflutningur — sé verðskráður og greiddur í gjaldmiðli annars lands en þess,
sem selur hingað eða kaupir héðan vöru.
Sú regla gildir almennt, að verðmæti utanríkisverslunar eru tekin á skýrslu á því
gengi, sem gildir hverju sinni, er vörur eru tollafgreiddar inn í landið eða út úr því.
Áður fyrr var vikið frá þessu, þegar um var að ræða verulega gengisfellingu í einu
stökki, en á seinni árum hefur almennu reglunni verið fylgt.
í árslok 1979 var skráð gengi Seðlabankans á erlendum gjaldeyri sem hér segir
(í kr. á tiltekna einingu):
Eining Kaup Sala
Bandaríkjadollar i 394,40 395,40
Sterlingspund t 879,50 881,70
Kanadadollar i 336,20 337,10
Dönsk króna 100 7 377,15 7 395,85
Norsk króna 100 8 008,10 8 028,40
Sænsk króna 100 9 475,10 9 499,10
Finnskt mark 100 10 653,70 10 680,70
Franskur franki 100 9 804,80 9 829,70
Ðelgískur franki 100 1 410,60 1 414,20
Svissneskur franki 100 24 688,60 24 751,20
Gyllini 100 20 747,00 20 799,60
Vestur-þýskt mark 100 22 906,90 22 965,00
Líra 100 49,00 49,12
Austurrískur schilling 100 3 184,50 3 192,60
Escudo 100 792,00 794,00
Peseti 100 596,45 597,95
Yen 100 164,64 165,06
Dollargengið var eins og áður segir 24,1 % hærra í árslok 1979 en í árslok 1978,
en gengi eftirtalinna gjaldmiðla hærra sem hér segir: Sterlingspunds 36,0%,
danskrar krónu 18,0%, norskrar krónu 26,4%, sænskrar krónu 28,1%, sviss-
nesks franka 25,6% og vestur-þýsks marks 31,6%.
Innflutningstölur verslunarskýrslna eru afleiðing umreiknings í íslenskar krón-
ur á sölugengi, en útflutningstölur eru miðaðar við kaupgengi.